Feykir - 24.01.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
03
TBL
23. janúar 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Ebba Kristjánsdóttir, Kvistholti, Skagafirði
Ætlaði aldrei að prjóna aftur!
HVAÐ ERTU MEÐ
Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN kristin@feykir.is
-Ég man ekki eftir mér öðvísi en að
dunda eitthvað í handavinnu eða
einhvers konar föndri, segir Ebba
Kristjánsdóttir í Kvistholti í Skagafirði,
sem deilir hannyrðum sínum með lesendum Feykis þessa vikuna.
-Ekki var ég mikið fyrir það að
prjóna vegna þessa að mitt fyrsta
verkefni í skóla er ég var níu ára
gömul, var að prjóna utan um
herðatré og sauma í það, sem ég
gerði samviskusamlega og mætti
með það í næsta tíma fullklárað.
Eitthvað var kennarinn ekki sáttur
og sagði mér að herðatréð væri ekki
nógu stórt og rakti það upp og þá
fauk í mig og ég sagði henni að hún
skyldi prjóna þetta sjálf og ég hét því
að ég skyldi aldrei prjóna aftur!
Komst ég upp með það þar til eg
var 14 ára að ég fór í handa-
vinnukenslu hjá Friðbjörgu og þá
var ég látin prjóna tvíbandavettlinga
sem gekk brösulega en tókst.
-Sem unglingur þá heklaði ég
mikið og saumaði út. Um tvítugt fór
ég að prjóna og hef ekki tölu á því
hvað ég er búin að prjóna margar
peysur.
-Mitt fyrsta verk í bútasaumi var
að handsauma 21 blokk með
„sunbunet sue“ stelpum á og þegar
ég var búin að því var það lagt til
hliðar í nokkur ár. Árið 2003
byrjaði ég á fullu í bútasaumnum
og þá kláraði ég stelputeppið og var
ekki aftur snúið
-Ég er með margt í vinnslu núna,
t.d er ég að prjóna lopapeysu á mig,
prjóna ungbarnaföt og sauma teppi
úr bútasaum, sem er úr afgöngum.
Hugmyndin af því kom úr blaði
með uppskriftum að því hvernig
maður getir nýtt afgangana sýna og
eru þetta skemmtilegustu teppin
vegna þess að ég raða ekki niður
litunum heldur tek ég þá af
handahófi og að lokum verður úr
því flott teppi.
Fóðurbíll á hliðina
Húnaþing vestra
Fóðurbíll fór á hliðina á þjóðvegi 1 um Víðidal í Húna-
þingi vestra á þriðjdaginn, skammt frá bænum
Enniskoti. Hálka var á þessum slóðum þegar óhappið
varð.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu urðu engin
slys á fólki en nokkur töf var á umferð þar sem engin
hjáleið var framhjá slysstað. /BÞ
TILTEKTARDAGAR
10-40% afsláttur af völdum vörum
á meðan birgðir endast.
Magnað verð á flottum græjum.
hjá Tengl
i
Sýningarvélar
á lækkuðu verði
Lyklaborð og mýs á 10-40% afslætti
Prentarar, fjölnotatæki
og skannar á 20-30% afslætti
Flakkarar og aðrir aukahlutir
á allt að 40% afslætti
Kíktu í heimsókn og
gerðu frábær kaup!
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Verslun Kjarnanum Hesteyri 2
550 Sauðárkróki Sími 455 9200 www.tengillehf.is
- verslaðu við fagmanninn!
Dell Inspiron 15R
Tilboðsverð: 107.990 kr
(áður 134.990)
•Intel Dual Core i3 1.9GHz örgjörvi
• 4GB 1600MHz vinnsluminni
• 500GB harður diskur, 5400rpm
• 15.6“ WLED True-Life skjár (1366x768)
Lenovo IDP S400 i5
Tilboðsverð: 103.900 kr.
(áður 119.900)
•Intel Core i5 1.8GHz örgjörvi
•4GB vinnsluminni (4GB mest)
•500GB harður diskur, 5400rpm
•14“ LED skjár (1366x768)
Lenovo IDP S400 i3
Tilboðsverð: 101.200 kr.
(áður 119.900)
•Intel Core i3 1.9GHz örgjörvi
•4GB vinnsluminni (4GB mest)
•500GB harður diskur, 5400rpm
•14“ LED skjár (1366x768)
Efst til vinstri: Hlíf yfir þorratrogið því mér leiddist að nota alltaf dúk.
Til vinstri: Teppi sem Elín Árdís dóttir mín á.
Fyrir ofan: teppi sem Hjörleifur sonur minn á