Feykir - 27.03.2014, Síða 11
12/2014 Feykir 11
Við hvað starfar þú? -Ég starfa við tamningar á Sauðárkróki.
Hefurðu tekið þátt í KS deildinni áður? -Já.
Hvernig hefur það gengið? -Það hefur gengið upp og niður,
en oftast ágætlega. Mig hefur oftast vantað góða hesta í allar
greinarnar.
Hvernig líst þér á KS deildina í ár? -Ég held að þetta stefni vel,
verði bara mjög gaman að hafa svona liðakeppni. Þetta gæti
aukið spennuna á meðal keppenda.
Varstu sáttur við sæti þitt í fimmganginum? -Já, já, en það er
alltaf hægt að gera betur.
Hvaða hrossum teflir þú fram í vetur? -Þeir hestar sem ég
kem nokkuð örugglega með eru Fífill frá Minni-Reykjum og
Hreinn frá Vatnsleysu og svo eru einhverjar fleiri pælingar.
Hverjir eru aðalkostir þeirra? -Fífill er með nokkuð jafnar og
góðar gangtegundir og gæti þ.a.l. skorað ágætlega í fjórgang
ef allt gengur eftir. Hreinn er með gott tölt og frábært skeið og
það telur tvöfalt í fimmgangi.
Ætlar þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum keppnum í vetur? -Já,
ég mun taka þátt í fleirum keppnum í vetur. Ég reikna með
að fara með eitthvað í Skagfirsku mótaröðina og svo verða
einhver fleiri mót í Reiðhöllinni og einnig einhver fleiri ísmót.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá þér fyrir keppni? -Að hafa allt
eins og venjulega, breyta engu.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Hrímnisliðið er besta
liðið.
Breytir engu
fyrir keppni
Hörður Óli Sæmundarson er sá síðasti í röð fjögurra
nýrra knapa í KS-deildinni sem við kynnum til leiks
hér í Feyki. Þessi Grundfirðingur sem nú starfar við
tamningar á Sauðárkróki er í Hrímnisliðinu og teflir
m.a. fram gæðingunum Fífli frá Minni-Reykjum og
Hreini frá Vatnsleysu.
KS-deildin / Hörður Óli Sæmundarson
( KNAPAKYNNING ) kristin@feykir.is
M
yn
d:
K
oll
a
Gr
.
SIGURÐUR HANSENKLAUSUR
M.E.H. 2
Steinninn skvetti dropanum
þar til dropinn holar steininn
þannig vinnur þrautseigjan á ofureflinu
því ofureflið sigrar ekki þrautseigjuna
sem vinnur í tímaleysinu
og tímaleysið setur sér ekki mörk.
Fermingar forðum daga
Gamlar fermingarmyndir frá Norðurlandi vestra
Fermingarbörn á Hvammtanga árið 1953. Úr myndasafni Björns Þóris Sigurðssonar (Bangsa). Nöfn á börnunum
eru frá vinstri: Drengir; Ólafur Höskuldsson, Jón Þórhallsson, Sigurgeir Ögmundsson, Eggert Jóhannesson og Eggert
Hjartarson. Stúlkur; Bryndís Maggý Sigurðardóttir, María Björnsdóttir og Guðrún Pétursdóttir. Sömu drengir eru á
myndinni hér fyrir neðan.
Myndina í bakgrunni tók Pétur Hannesson af fermingu í Sauðárkrókskirkju. Myndin er tekin á árunum 1954-1958.