Feykir - 08.05.2014, Blaðsíða 1
á
BLS. 6
BLS. 11
Fertugur bridgeklúbbur á
Króknum
Gleði og gaman
við völd
BLS. 7
Rætt við Lindu Björk
Zumbakennara
Ótrúleg orka
leysist úr læðingi
Marjolijn van Dijk og Heiðar
Jóhannsson matreiða
Grafið hreindýr
og marineraðar
gæsabringur
17
TBL
8. maí 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
FERSKUR Á NETINU
Hér er laust pláss!
Feykir er sterkur
auglýsingamiðill
á Norðurlandi vestra.
Hafðu samband
Feykir.is
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Mynd: Hjalti Árnason
Það var mögnuð stemning í menningarhúsinu Hörpu í
Reykjavík sl. sunnudag og nutu bæði Karlakórinn
Heimir og Kristinn Sigmundsson sín vel í þessu musteri
íslenskrar tónlistar. Á annað þúsund manns sóttu
þessa stærstu tónleika sem kórinn hefur haldið
hérlendis og áhorfendur stóðu upp til heiðurs kórnum
og Kristni og klöppuðu upp nokkur aukalög.
„Þetta er bara eins og draumur í dós“ sagði Gísli Árnason,
formaður karlakórsins, þegar blaðamaður Feykis hitti hann
nýkominn af sviði í Hörpu, ásamt kórfélögum sínum og
Kristni Sigmundssyni. Raunar var Gísli frekar raddlítill eftir
tónleikana, enda búinn að syngja í Miðgarði kvöldið áður á
Sæluvikutónleikum þar sem kórinn kom einnig fram með
Kristni. /KSE
Heimir í Hörpu ásamt Kristni Sigmundssyni
Nutu sín vel í musteri
íslenskrar tónlistar
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
DELL Inspiron 5521
Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur ·
15.6“ HD WLED · Windows 8
Hefði mikla þýðingu fyrir samfélagið
Söfnun fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki
Sjúkraflutningamenn á Hvammstanga
hafa komið af stað söfnun fyrir
sjálfvirku hjartahnoðtæki sem nefnist
Lucas 2. Að sögn Gunnars
Sveinssonar sjúkraflutningamanns
mun tækið hafa mikla þýðingu fyrir
samfélagið þar sem fáir koma að
endurlífgun þegar hún á sér stað.
Lucas 2 kemur alveg í staðinn fyrir
þann sem hnoðar og viðheldur
fullkomnu hnoði í langan tíma svo
lengi sem hann hefur rafmagn, sem
er mun lengur heldur en venjulegur
maður hefði úthald til.
„Söfnunin hefur farið ágætlega af stað
og höfum við leitað til fyrirtækja og
einstaklinga í samfélaginu. Nú þegar
hafa safnast 750 þúsund krónur frá
tveimur aðilum, en kostnaður við kaup á
þessu tæki er 2,5 milljónir. Þetta er í
fyrsta sinn sem fer fram almenn söfnun
fyrir sjúkrabíla á Hvammstanga frá því
ég kom inn í þetta fyrir átta árum,“ segir
Gunnar. Það var fyrst byrjað að safna
fyrir Lucas 2 á Akranesi og þá gáfu tvö
fyrirtæki tæki þangað. Nú eru þau í
Búðardal að bíða eftir tækinu sínu sem
þau hafa safnað fyrir. „Við töldum að
okkar góða samfélag myndi taka vel á
móti þessu hér eins og annarsstaðar og
það hefur verið virkilega gaman að finna
stuðninginn,“ segir Gunnar.
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Hvammstanga hafa ákveðið að
halda utan um söfnunina og er
reikningsnúmerið: 0159-15-200135 og
kennitalan: 711006-2140/GSG