Feykir - 08.05.2014, Blaðsíða 6
6 Feykir 17/2014
Linda Björk ásamt Andreu Björk, dóttur sinni en hún stundar einnig Zumba af krafti.
Það var fjör í Zumbatíma í Ljósheimum sl. þriðjudag.
samkvæmisdans og fengu ég og
frænka mín, dóttir hennar, oft
að vera með henni í tímunum.“
Linda var 12 ára gömul þegar
hún flutti á Blönduós og þangað
kom Danslína Huldu í tvær
vikur á ári og kenndi dans á
Blönduósi og á Skagaströnd.
„Foreldrar mínir voru ekki
efnamiklir og man ég eftir að
hafa fengið að sitja og horfa á
vinkonur mínar í danstímunum
vegna þess að þau áttu ekki
pening til að geta leyft mér að
fara á námskeiðið,“ rifjar Linda
upp og bætir svo við: „En það
var ekki nema eitt ár sem það
var því ég réð mig í að bera út
blöðin og passa börn til að geta
eignast pening og verið með.“
Þegar Linda var 16 ára gömul
veiktist aðstoðardanskennarinn
sem var með Huldu fyrsta
daginn og námskeiðið átti að
byrja og var Linda þá fengin til
að fylla í skarðið. „Það fannst
mér eitt það skemmtilegasta
sem ég hafði tekið mér fyrir
hendur.“
Linda segist hafa sinnt
dansáhugamálinu eftir fremsta
megni í gengnum árin en hún
var mikið í línudans á
Skagaströnd frá árinu 1998.
„Við hópurinn brölluðum
ýmislegt saman. Við fórum í
keppnir, sýndum fyrir
ferðamenn og fleiri og fórum á
Linda Björk og Kristján hófu
búskap árið 1991 á æskuslóðum
Kristjáns, Steinnýjarstöðum,
sem eru 12 km norður af
Skagaströnd. Saman eiga þau
fjögur börn; Kristján Heiðmar
(f. 1991) nú bifvélavirki á
Sauðárkróki, Andreu Björk (f.
1993) stúdent frá Fjölbrauta-
skólanum á Akranesi, Gunnþór
Inga (f. 1997) nema í FNV og
Freydísi Ósk (f. 2002). Ásamt
því að reka kúabú á bænum eru
þau með um 100 kindur og
nokkra hesta. „Sveitin er ekki
þéttbýl og frekar fámenn en
afskaplega gott mannlíf þar.
Þetta er yndisleg og mjög
Ótrúleg orka leysist
úr læðingi
festival í Glasgow svo eitthvað
sé talið.“
Dans og fitness við
sjóðheita suður-
ameríska tónlist
Linda Björk kynntist Zumba
Fitness fyrst á netinu og segist í
kjölfarið hafa skellt sér til
Reykjavíkur í tíma til þess að
prófa. „Ég fór svona aðeins að
viða að mér upplýsingum út á
hvað Zumba Fitness gekk.
Síðan fór ég í tíma á Skagaströnd
en þá var Jóga og pilateskennari
með Zumbatíma þar og
stundaði ég Zumba Fitness í eitt
ár. Hún var m.a. sú sem hvatti
mig til að fylgja hjarta mínu,“
útskýrir Linda og heldur áfram:
„Ég tók þá ákvörðun að skella
mér út til Kaupmannahafnar í
nóvember 2012 og tók
kennararéttindi til að kenna
Zumba fitness, og Zumba
toning (með lóðum) og er svo
búin að bæta við mig Zumba
Kids sem er sérsniðið fyrir börn
frá 4-12 ára.“ Fljótlega eftir að
hafa aflað sér kennararéttindi
ákvað hún að vera með lokuð
Zumba námskeið á Blönduósi
og í Víðihlíð í Húnaþingi vestra.
„Þetta var í byrjun janúar 2013
og ég er bara búin að vera
óstöðvandi síðan,“ segir hún og
hlær. „Ég bætti svo Skagaströnd
við sl. haust. Stundum hittumst
við með laugardags Zumba-
partý og eru þá allir velkomnir,
en það var einmitt í einu slíku á
Skagaströnd sem ung kona
kom frá Sauðárkróki og spurði
mig eftir tímann hvort ég gæti
ekki verið með námskeið á
Sauðárkróki því henni þætti
þetta svo skemmtilegt. Eftir
smá umhugsun og athugun á
húsakosti með góðum
hátölurum skelltum við okkur
bara af stað í að auglýsa
vornámskeið og er ég með tíma
tvisvar í viku í Ljósheimum.“
Hún segir ágæta mætingu vera
á námskeiðið en enn sé hægt að
bæta við og vera með í fjörinu.
„Zumba er sérlega
skemmtileg hreyfing sem
hentar öllum aldri og báðum
kynjum en þar er blandað
saman dansi og fitness við
sjóðheita suður-ameríska
tónlist. Kenndir eru dansar eins
og salsa, merengue, reggateon,
cumbia, samba, quebredita,
soca, calypso og fl. Í Zumba
nýtur maður tónlistarinnar í
botn og er ótrúleg orka sem
leysist úr læðingi við að dansa,
maður bókstaflega gleymir öllu
öðru um stund,“ segir Linda að
endingu.
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
friðsæl sveit,“ segir Linda
Björk.
Fyrir rétt rúmu ári festu
hjónin kaup á mjalta róbót og
segir Linda Björk ýmislegt hafa
breyst við tilkomu hans.
„Maður er ekki eins bundinn
við ákveðinn tíma við
fjósverkin og hægt að hagræða
því eftir öðrum verkum,“ segir
hún en nú gefst henni tækifæri
til að sinna áhugamáli sínu af
meiri krafti - dansinum. „Ég
hef alveg ofsalega gaman af
öllu sem viðkemur dansi en
mín fyrstu kynni af
samkvæmisdansi voru í Nýja
dansskólanum í Reykjavík þar
sem kona frænda míns kenndi
Linda Björk Ævarsdóttir hefur alltaf haft unun af dansi en hún hefur verið að kenna Zumba á Blönduósi,
Skagaströnd, Hvammstanga og í Víðihlíð í Húnaþingi vestra og nú í Ljósheimum í Skagafirði. Feykir
spjallaði við Lindu Björk og spurði hana út í dansinn og búskapinn en hún og Kristján Steinar
Kristjánsson, eiginmaður hennar, reka kúabú á Steinnýjarstöðum í Skagabyggð.
Rætt við Lindu Björk Zumba danskennara