Feykir - 08.05.2014, Side 5
17/2014 Feykir 5
Alsýn
Rúnar Kristjánsson
Aflafréttir vikuna 27. apríl – 04. maí 2014
Tæpum 220 tonnum landað á Sauðárkróki
Í viku 18 var landað tæpum 220 tonnum á
Sauðárkróki, rúmu hálfu tonni á Hofsósi,
rúmum 140 tonnum á Skagaströnd. Engu var
landað á Hvammstanga en að sögn Péturs
hafnarstjóra hlýtur það að fara að lagast með
tilkomu strandveiðanna. /GSG
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Fannar SK-11 Grásleppunet 1.181
Gammur II SK-120 Grásleppunet 1.860
Hrappur SK-121 Grásleppunet 520
Klakkur SK-5 Botnvarpa 218.319
Leiftur SK-136 Grásleppunet 2.115
Maró SK-33 Handfæri 200
Már SK-90 Rauðmaganet 7.410
Nona SK-141 Rauðmaganet 3.836
Nökkvi ÞH-27 Rækjuvarpa 13.296
Oddur SK-100 Grásleppunet 6.281
Steini SK-14 Grásleppunet 6.271
Séra Árni SK-101 Grásleppunet 2.080
Vinur SK-22 Grásleppunet 2.519
Þinganes SF-25 Rækjuvarpa 6.131
Alls á Sauðárkróki 218.319
Geisli SK-66 Handfæri 599
Alls á Hofsósi 599
Arnar HU-1 Botnvarpa 375.574
Bjarmi HU-33 Handfæri 790
Blær HU-77 Landb.lína 1.080
Dagrún HU-121 Grásleppunet 15.083
Guðm. Á Hópi GK-203 Landb.lína 1.007
Ólafur M. HU-54 Grásleppunet 2.721
Óli Gísla HU-212 Lína 22.731
Sæfari HU-200 Landb. lína 2.213
Alls á Skagaströnd: 421.299
Knattspyrna
Samtök sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra
,,Allur kostnaður skellur á okkur” Uppgjör vegna Norðurslóðaverkefnis
til skoðunar
Meistaraflokkur kvenna hjá
Tindastóli mætir liði KR í
úrslitaleik föstudaginn 9.
maí nk. Leikurinn hefst
kl.19 og verður spilaður á
KR vellinum. Mikil óánægja
er með valið á vellinum á
meðal leikmanna og
stuðningsmanna Tindastóls,
en KR-ingar hafa spilað alla
sína leiki í Reykjavík það
sem af er tímabilinu. Feykir
hafði samband við Gísla
Sigurðsson í
meistaraflokksráði kvenna
hjá Tindastóli.
-Það virðist alltaf vera
lengra að keyra á Sauðárkrók
heldur en frá Sauðárkróki til
Reykjavíkur. KR stúlkurnar
eru búnar að spila alla sína
leiki í Reykjavík. Stelpurnar
okkar eru búnar að fara tvisvar
í Bogann, suður, Úlfarsdalinn
og eru núna settar á heimavöll
KR í úrslitaleik, þetta er bara
ósanngjarnt. Landsbyggða-
liðin eru alltaf send suður til
þeirra. Þetta kostar okkur
heilmikið, stelpurnar fórna
gríðarlega miklum tíma í
þetta, fá sér frí úr vinnu og
skóla og allur kostnaðurinn
við ferðina skellur á okkur.
Þetta væri annað ef kostn-
aðinum yrði skipt til helminga
líkt og er gert í Bikarnum sem
dæmi, segir Gísli.
,,Gæti allt eins verið
leikur í undankeppninni”
Leikmönnum Tindastóls þyk-
ir ansi hart að þurfa að borga
allan ferðakostnað auk þess að
mæta liði KR á þeirra
heimavelli í úrslitaleik. Feykir
heyrði í Sunnu Björk Atla-
dóttur leikmanni Tindastóls.
-Mér finnst þetta auðvitað
fáránlegt því þarna er um að
ræða úrslitaleik. Ég hélt að
spila ætti alla úrslitaleiki á
hlutlausum velli, þannig að
liðin myndu mætast á miðri
leið. Ég veit svo sem að það er
ekki hlaupið að því að mæta
liði frá höfuðborgarsvæðinu á
miðri leið en eitt er víst að
heimavöllur KR er ekki á milli
Vesturbæjarins og
Sauðárkróks! Ég hélt að
leikurinn yrði spilaður annað
hvort á Skaganum eða í
Mosfellsbæ, en fyrst svona er
væri alveg eins hægt að hafa
hann á Akureyri! Eins skiptir
þetta máli varðandi
ferðakostnað, en lið eiga sjálf
að standa kostnað af ferðum í
leiki, sbr. grein 9.1. reglugerðar
KSÍ um deildarbikarkeppni
kvenna. Því finnst mér ansi
hart að þurfa að borga allan
ferðakostnað auk þess að
mæta liðinu á þeirra
heimavelli. Þetta gæti því eins
verið leikur í undankeppninni.
En hvernig sem þetta
vallarmál fer, er engin
spurning að við stelpurnar
komum til með að láta þetta
ekki á okkur fá og mætum
ákveðnar til leiks og höfum
gaman. Þetta er jú í fyrsta
skiptið sem við leikum til
úrslita, segir Sunna./GSG
Á vegum stjórnar SSNV er
verið er að kanna hvort góðir
stjórnsýsluhættir hafi verið
viðhafðir þegar ráðstafað var
fjármunum af reikningi
Samtaka sveitarfélaga á NV
tengdu verkefni, sem lauk
fyrir nokkrum árum, í þágu
samtakanna. KPMG og
Lögmenn Höfðabakka vinna
nú að greinargerð um málið
fyrir stjórn samtakanna sem
bíða niðurstöðu þeirrar vinnu.
Að sögn Þórðar Bogasonar
lögmanns SSNV er hægt að
gera grein fyrir öllum
greiðslum og millifærslum,
enginn grunur leiki á að neitt
óeðlilegt eða saknæmt hafi
farið fram.
Bjarni Jónsson,
stjórnarformaður SSNV, sagði í
samtali við Feyki að um leið og
stjórn SSNV og starfandi
framkvæmdarstjóra varð
kunnugt um málið hafi stjórnin
falið KPMG og Lögmönnum
Höfðabakka að skoða málið og
afla ítarlegri skýringa á
uppgjörinu og ferli þess og
vinna um það greinargerð.
Stjórn SSNV sendi
aðildarsveitarfélögum sínum
bréf vegna málsins dagsett 10.
apríl 2014, þar sem gerð er
grein fyrir þróunarverkefninu
NORCE sem leitt var af
Atvinnuþróunarfélagi Norður-
lands vestra (ANVEST) á
árunum 2004-2009 og hvernig
gerð verður grein fyrir því
uppgjöri og tekjufærslum við
gerð ársreiknings SSNV fyrir
árið 2013. Í bréfinu segir m.a.
að sem kunnugt er rann
ANVEST inn í SSNV árið 2005
en verkefninu var haldið áfram
á kennitölu ANVEST.
„Lokauppgjör vegna verkefnis-
ins fór hins vegar fram síðar og
var ekki gerð sérstaklega grein
fyrir því í fjárhagsuppgjöri
SSNV. Um þetta var stjórn
SSNV ekki kunnugt og telur
hún að í samræmi við góða
stjórnunarhætti hefði átt að
gera grein fyrir því.“ Að lokum
segir í bréfinu til sveitar-
félaganna að stjórn SSNV vilji
af þessu tilefni vekja athygli á
því að við ársuppgjör og
samþykkt ársreiknings fyrir
árið 2013 muni stjórnin greina
sérstaklega frá tekjufærslum
vegna þátttöku SSNV í
verkefninu í gegnum ANVEST
og lokauppgjöri þess. „Af hálfu
stjórnarinnar er nú unnið að
greinargerðinni. Markmið
stjórnarinnar er að tryggja að
fjárhagslegt uppgjör SSNV taki
ávallt til allra þátta í starfsemi
samtakanna og sé í samræmi
við góða stjórnunarhætti innan
stjórnsýslu sveitarfélaga.“ /BÞ
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Bjarni leiðir lista VG
og óháðra í Skagafirði
Gréta Sjöfn leiðir K-lista Skagafjarðar
Bjarni Jónsson skipar fyrsta sætið á lista VG og óháðra í
Skagafirði til sveitarstjórnarkosninganna 31. maí 2014.
Annað sætið vermir Hildur Magnúsdóttir og það þriðja
Björg Baldursdóttir.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðir K-lista Skagafjarðar fyrir næstu
sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 31. maí nk. Annað sætið skipar Sigurjón
Þórðarson og það þriðja Hanna Þrúður Þórðardóttir.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014
1. Bjarni Jónsson, fiskifræðingur
2. Hildur Magnúsdóttir, atvinnuráðgjafi
og viðskiptafræðingur
3. Björg Baldursdóttir, kennari
4. Valdimar Óskar Sigmarsson, bóndi
5. Íris Baldvinsdóttir,
grunnskólakennari og þroskaþjálfi
6. Einar Þorvaldsson, tónlistarkennari
7. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir,
lista- og sölumaður
8. Úlfar Sveinsson, bóndi
9. Helga Rós Indriðadóttir,
óperusöngkona og leiðsögumaður
10. Gísli Árnason,
framhaldsskólakennari
11. Helgi Svanur Einarsson,
garðyrkjunemi
12. Steinunn Rósa Guðmundsdóttir,
þroskaþjálfi
13. Jónas Þór Einarsson, sjómaður
14. Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir,
grunnskólakennari
15. Ólafur Þór Hallgrímsson, prestur
16. Lilja Gunnlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri og frumkvöðull
17. Harpa Kristinsdóttir, veitingamaður
18. Guðrún Hanna Halldórsdóttir,
kennari og deildarstjóri
1. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri
2. Sigurjón Þórðarson,
framkvæmdastjóri
3. Hanna Þrúður Þórðardóttir,
frumkvöðull og starfsmaður í
liðveislu
4. Ingvar Björn Ingimundarson, nemi
5. Guðni Kristjánsson, ráðgjafi
6. Guðný H Kjartansdóttir, verkakona
7. Gísli Felix Ragnarsson,
frístundaleiðbeinandi
8. Þorgerður Eva Þórhallsdóttir,
þjónustufulltrúi
9. Jón G. Jóhannesson, sjómaður
10. Steinar Skarphéðinsson, vélstjóri
11. Helgi Thorarensen, prófessor
2. Benjamín Baldursson, nemi
13. Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir,
deildarstjóri
14. Þorsteinn T. Broddason,
verkefnastjóri
15. Guðrún Helgadóttir , deildarstjóri
16. Leifur Eiríksson, gæðastjóri
17. Pálmi Sighvatsson, bólstrari
18. Ingibjörg Hafstað, bóndi