Feykir - 22.05.2014, Síða 8
8 Feykir 19/2014
Norðan við hrun –
sunnan við siðbót
Áttunda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið
Á fimmtudag og föstudag
í síðustu viku var haldin í
Háskólanum á Hólum
ráðstefnan „Norðan við
hrun, sunnan við siðbót,“
sem er áttunda ráðstefnan
um íslenska þjóðfélagið.
Um er að ræða árlega
ráðstefnu sem fjórir
háskólar og háskólasetur á
landsbyggðinni skiptast á
að halda. Blaðamenn
Feykis brugðu sér heim að
Hólum og fylgdust með
málstofu um fjölmiðla og
hittu skipuleggjendur
ráðstefnunnar.
Dagskrá og skipulag ráðstefn-
unnar var í höndum starfsfólks
Ferðamáladeildar Háskólans á
Hólum; Georgette Leah Burns,
Guðrúnar Þóru Gunnarsdóttur
og Guðrúnar Helgadóttur og
nutu þær góðrar aðstoðar Önnu
Margrétar Jakobsdóttur, sem er
verknemi í viðburðastjórnun við
Háskólann á Hólum. Umsjón
með veitingum og gistingu var í
höndum Þórhildar Maríu
Jónsdóttur og starfsfólks Ferða-
þjónustunnar á Hólum.
„Þetta var áttunda ráðstefnan
um íslenska þjóðfélagið, en þessi
ráðstefna er haldin að vorlagi til
skiptis af Háskólanum á Akur-
eyri, Háskólasetri Vestfjarða,
Háskólanum á Bifröst og
Háskólanum á Hólum. Yfirskrift
ráðstefnunnar að þessu sinni var
Norðan við hrun - sunnan við
siðbót? Óhætt er að segja að
yfirskriftin hafi vakið áhuga og
um fimmtíu stórfróðleg erindi
voru flutt um hinar ýmsu hliðar
hruna og siðbóta - eða skulum
við segja siðaskipta? Níunda
ráðstefnan verður haldin að ári
hjá Háskólasetri Vestfjarða á
Ísafirði,“ sagði Guðrún Helga-
dóttir, prófessor við Háskólann á
Hólum í samtali við Feyki að
ráðstefnunni lokinni.
Fjölbreytt efnistök
Að sögn Guðrúnar voru milli 60
og 70 manns á ráðstefnunni og
voru ráðstefnugestir mjög virkir
í umræðum, áhugasamir og létu
mjög vel af skipulagi og
framkvæmd ráðstefnunnar.
3
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Áhugaverðir staðir séðir með augum barnanna
Bæklingur um
Skagafjörð
austan Vatna
Börn og unglingar í
leikskólanum Tröllaborg og
Grunnskólanum austan
Vatna í Skagafirði unnu á
dögunum skemmtilegt
samstarfsverkefni sem er
bæklingurinn Heima-
byggðin okkar – Áhugaverð-
ir staðir séðir með augum
barnanna. Hvert aldursstig
tók að sér ákveðinn
verkþátt í útgáfunni og
mun afraksturinn liggja
frammi á helstu ferða-
mannastöðum í sumar.
Verkefnið var á dögunum
tilnefnt til foreldraverð-
launa Heimila og skóla.
Starfsstöðvar skólanna eru á
þremur stöðum, Sólgörðum
í Fljótum, Hofsósi og
Hólum í Hjaltadal. Báðir
skólarnir eru grænfána-
skólar. Grenndarkennsla er
líður í grænfánastarfinu og í
tengslum við hana vaknaði
sú spurning, hvað börn,
sem kæmu sem gestir á
þetta svæði, hefðu gaman af
því að skoða. Ákveðið var
að gefa út ferðamanna-
bækling og nemendur
skiptu með sér verkum.
Elsta deild leikskólans sá
um myndatökur fyrir
bæklinginn. Í grunnskól-
anum sá yngsta stigið um
textagerð, miðstig um
innslátt í tölvu og ungl-
ingastig um að þýða textann
yfir á dönsku og ensku.
Þýskumælandi nemandi sá
um að þýða textann yfir á
þýsku með aðstoða kennara
í skólanum. Uppsetning var
í höndum starfsmanna leik-
og grunnskólans.
Eftirfarandi staðir og
sögufrægar persónur
eru til umfjöllunar í
bæklingnum:
Hólar og nágrenni:
Nýibær, Hóladómkirkja,
Guðmundur góði,
Gvendarskál og
Auðunarstofa.
Hofsós og nágrenni:
Pakkhúsið,
Vesturfarasetrið, Sólvík,
sundlaugin og
Staðarbjargarvík.
Fljót:
Hrafna-Flóki, KS Ketilási,
Sólgarðar, Skeiðsfossvirkjun
og Félagsheimilið Ketilási.
Guðrún Helgadóttir, prófessor við Háskólann á Hólum, afhendir Albertínu F. Elías-
dóttur, verkefnastjóra við Háskólasetur Vestfjarða, keflið en Háskólasetrið mun sjá
um næstu ráðstefnu.
FRÁSÖGN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Ferðaþjónustan á Hólum sá um
veitingar og þjónustu af mikilli
fagmennsku og var þeim óspart
hrósað bæði fyrir matinn og
viðmót starfsfólksins.
Á fimmtudeginum voru
málstofur í gangi allan daginn,
þrjár í einu. Var m.a. fjallað um
skapandi byggðaþróun, skóla-
þróun, samskipti og líðan fólks,
hetjur, flögð og minni, hrun,
strauma að utan, íslenska
þjóðfélagið, hrunið og ferðamál.
Lykilfyrirlestur ráðstefnunnar
flutti Guðni Jóhannesson og bar
hann heitið Saga sögu hrunsins.
Boðið var upp á hátíðarkvöld-
verð undir Byrðunni og síðan
var opið í Bjórsetri Íslands.
Á föstudeginum voru mál-
stofur um nýfrjálshyggju, skóla
án aðgreiningar og einstaklings-
miðlun, stjórnun og fjölmiðla. Í
ráðstefnulok var keflið afhent og
tók Albertína Friðbjörg Elías-
dóttir við því fyrir hönd
Háskólaseturs Vestfjarða, sem
mun bjóða heim á næstu
ráðstefnu að ári liðnu.
En var það eitthvað sem stóð
uppúr á ráðstefnunni, að mati
Guðrúnar? „Það voru tvær til
þrjár samhliða málstofur þannig
að ég gat ekki hlustað á nema
Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku við HÍ, fjallaði um
stöðu kvenna í fjölmiðlum.
Þessi börn ásamt kennara sínum, Heiðu Björk Jóhannsdóttur, kynntu bækl-
inginn sinn fyrir gestum ráðstefnu sem haldin var á Hólum í síðustu viku.
hluta fyrirlestranna, en það var
nýmæli að þessu sinni hve mörg
erindi voru flutt um menntun og
skólamál. Þar var dregin mjög
skýr mynd af afleiðingum
hrunsins og aðdraganda þess á
hinum ýmsu skólastigum allt frá
leikskóla til háskóla. En það sem
uppúr stendur er hvernig hrun
og endurreisn eða siðbót kallast
á, sú gerjun og átök sem fylgja
öllum siðaskiptum sögunnar og
hversu langt það ferli er og
flókið,“ sagði Guðrún að lokum.
Birgir Guðmundsson, dósent við HA, og Sigurður Kristinsson, prófessor við HA,
fjölluðum um blaðamenn sem fagstétt.