Feykir - 22.05.2014, Page 12
12 Feykir 19/2014
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014x 14
Hvað höfum við verið að gera
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagastrandar, tókst margt af
ætlunarverkum sínum á
síðasta kjörtímabili. Meðal
annars getur sveitarstjórnin
verið stolt af stærsta
verkefninu sem var að koma á
hitaveitu í byggðinni í
samstarfi við RARIK.
Samhliða var lagður
ljósleiðari í öll hús sem tóku
inn hitaveitu. Þar með er
Skagaströnd eitt fárra
sveitarfélaga á landinu sem
getur boðið íbúum sínum
upp á þessa þjónustu.
Talsverðar umbætur voru
gerðar á höfninni þar sem nýtt
vigtarhús var byggt, athafna-
svæði malbikað og ný tré-
bryggja er í smíðum. Í félags-
heimilinu voru gerðar
stórfelldar endurbætur á neðstu
hæð sem hafa stækkað og bætt
aðstöðu fyrir bókasafnið og
skapað félagsstarfi eldri borgara
nýtt og betra umhverfi.
Í umhverfismálum voru
stigin mikilvæg skref í átt til
hins betra. Nokkur árangur
náðist en þar eins og svo víða
má gera betur með góðu
samstarfi við íbúana. Endur-
bætur á félagslegum eignum
tókust vel. En talsvert verk er
enn óunnið í viðhaldi eigna
sveitarfélagsins.
Skóla- og fræðslumál voru
sett undir mæliker með það að
markmiði að gera gott starf enn
betra. Niðurstaða þeirrar um-
ræðu varð meðal annars sú að
teknar voru upp viðræður við
Hjallastefnu um aðkomu að
rekstri leikskólans. Í þessu máli
hefur tekist gott samstarf við
H-LISTI SKAGASTRANDARLISTINN
Adolf Berndsen oddviti listans skrifar
foreldra og starfsmenn leik-
skóla. Hjallastefnan og sveitar-
stjórn hafa tekið þá afstöðu að
ákvörðun um innleiðingu
Hjallastefnu í leikskólanum
verði tekin af nýrri sveitarstjórn.
Traust fjárhagsstaða
Fjárhagsleg staða sveitarfélags-
ins er góð þar sem það er skuld-
laust, utan þess sem bundið er
við félagslegar íbúðir. Auk þess
á sveitarfélagið nokkurn sjóð
sem ætlaður er til samfélagslegra
verkefna og til þess að hafa
möguleika á að koma af stað
nýjum atvinnutækifærum, ef
þau bjóðast, sem og að bæta
þjónustu og grunngerð sveitar-
félagsins.
Á kjörtímabilinu sem nú er
að ljúka hefur sveitarstjórn haft
það að markmiði að hækka sem
minnst álögur á íbúana, ekki
síst á barnafjölskyldur. Sveitar-
stjórn hefur, ólíkt mörgum
öðrum sveitarfélögum, forðast
niðurskurðaraðgerðir sem
bitnað hefðu á störfum og
þjónustu við íbúana. Þetta hefur
verið mögulegt vegna góðrar
rekstrar- og fjárhagsstöðu.
Horft til framtíðar
Næstu sveitarstjórnar bíður það
mikilvæga verkefni að sækja
fram en ekki síður að verja það
sem fyrir er. Á síðustu árum
hafa átt sér stað umfangsmiklar
breytingar á atvinnulífi, margar
neikvæðar en aðrar jákvæðar.
Nægir þar að nefna starfsemi
Vinnumálastofnunar og BioPol.
Á tímum samdráttar hjá hinu
opinbera höfum við þurft og
þurfum áfram að berjast af
alefli fyrir þeim störfum sem
kostuð eru af ríkisvaldinu. Á
sama tíma leitum við nýrra
tækifæra í samstarfi við
einkaaðila sem og stjórnvöld.
Nú hefur sveitarfélögunum í
A-Hún. tekist að leggja drög að
samstarfi við stjórnvöld um
atvinnuuppbyggingu í sýslunni
meðal annars með nýtingu
orku úr héraði. Áætlað er að því
verkefni verði ýtt úr vör í sumar.
Með hitaveitu opnast mögu-
leikar á að byggja og reka nýja
sundlaug sem lengi hefur verið
til umræðu. Í fráveitumálum
erum við orðin á eftir, því þarf
að taka á. Í ferðaþjónustu er
mikill óplægður akur. Þar hefur
stefnan verið tekin á að leysa úr
skorti á gistingu. Sveitarfélagið
hefur stofnað hlutafélag um
byggingu hótels og hyggst leita
samstarfs við hagsmunaaðila í
þeirri grein.
Sjávarútvegur og þjónusta
við hann er og verður mikil-
vægasta atvinnugreinin okkar
og nauðsynlegt að búa sem best
að þeirri grein. Götur og gang-
stéttir þarfnast endurbóta sem
fara verður í sem fyrst. Í sam-
göngumálum héraðsins er end-
urnýjun Skagastrandarvegar
forgangsmál.
Skagastrandarlistinn - H listi
- er skipaður jákvæðu fólki með
reynslu á ólíkum sviðum sem
býður nú sem áður fram krafta
sína til að gera gott samfélag
enn betra.
Adolf H.Berndsen
í 1. sæti Skagastrandarlistans,
H-listans
Áherslur í atvinnumálum
Einstaka áherslur í
uppbyggingu atvinnu á
svæðinu er eitthvað sem
Ð-listinn Við Öll setur
nokkur spurningarmerki við.
Telja frambjóðendur að ekki
sé rétt að kasta fram
einhverjum hugmyndum sem
líta vel út fyrir kjósendur og
þegar nánar verði skoðað sé
ómögulegt að framkvæma
þær svo að þær leiði til
virðisauka fyrir sveitarfélagið
í heild sinni.
Eðli slíkrar atvinnuþróunar
sem þarf að fara fram á svæðum
eins og Skagaströnd er háð
allmörgum óvissuþáttum sem
eyða verður með greiningar-
vinnu, s.s. á fjárhagslegri
afkomu verkefna til lengri og
skemmri tíma, greiningum á
þörfum verkefnisins, m.a. því
þjónustustigi sem er í sveitar-
félaginu eða næsta nágrenni,
aðbúnaði sem þarf og er til
staðar og ekki síst ávinningum
sveitarfélagsins í heild sinni.
Margt fleira kemur til sem of
langt mál er að telja hér.
Ð-listinn er afl sem krefst
þess að gagnsæ vinnubrögð
verði viðhöfð í öllum verkum
sveitarfélagsins. Má með
nokkru sanni segja að með
Ð-LISTI VIÐ ÖLL Á SKAGASTRÖND
Inga Rós Sævarsdóttir sem skipar 2. sætið skrifar
gagnsæiskröfunni sem fram
kemur í Sveitarstjórnarlögum
nr. 138/2011 sé verið að setja
sveitarstjórnum framtíðarinnar
þá kröfu að ástunda fagleg
vinnubrögð og skrúfa verði
fyrir að einstök verkefni séu
tekin fram fyrir önnur á
varhugaverðum grunni.
Er því stefna Ð-listans í
reynd sú þegar kemur að
atvinnumálum og uppbyggingu
þess að hefja þurfi strax
greiningarvinnu á því hvaða
atvinnu sé hægt að stunda á
Skagaströnd til langframa. Í því
felst að spyrja hvaða verkefni sé
hægt að byggja upp miðað við
núverandi þjónustustig í
sveitarfélaginu og hvaða
þjónustu þarf að auka við eða
koma á fót til að auka val-
möguleika í atvinnuuppbygg-
ingu á svæðinu. Þá ekki síst
þegar síðasta hluta greiningar-
innar verður lokið, hvaða
verkefni er best að laða að
svæðinu eða hefja atvinnu-
rekstur í, á því kjörtímabili sem
í hönd fer.
Margar framúrskarandi
hugmyndir eru að ganga manna
á milli um atvinnuuppbyggingu
í sveitarfélaginu. Margar þeirra
eru byggðar á gömlum merg,
nýjar hugmyndir um atvinnu-
rekstur eru einnig fjölmargar.
Þessar hugmyndir allar verður
að skoða með gagnrýnu
hugarfari, gæta þess að ýta engu
út af borðinu en fyrst og fremst
þarf að veita aðgengi að
sveitarstjórninni sjálfri svo að
verkefnin sem nýst geta
samfélaginu fari ekki eitthvað
annað og megi skrá í
sögubækurnar sem tækifærið
sem Skagaströnd missti af.
Ð-listinn Við Öll, stefnir að
því að leyfa öllum sjónarmiðum
að koma fram og veita engu
brautargengi umfram annað
frekar en að hafna einstökum
hugmyndum strax úr hendi.
Þessa vinnu erum við ekki að
hræðast en fögnum öllum sem
koma vilja verkefnum af stað
sem til hagsbóta verður fyrir
sveitarfélagið Skagaströnd.
Inga Rós Sævarsdóttir
í 2. sæti Ð-lista Við Öll.