Feykir - 02.10.2014, Qupperneq 2
2 37/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Litið í Laufskálarétt
Það gerist á um það bil tíu ára fresti að undirrituð lætur sjá sig
í Laufskálarétt. Eins og annað breytist tilgangur ferðarinnar í
tímanna rás. Fyrst minnist ég þess að hafa barið umrædda rétt
augum sem 19 ára unglingur „á djamminu,“ einhvern tímann
seint á síðustu öld. Að sjálfsögðu var tekinn allur pakkinn,
réttin, sætaferðin og ballið í Miðgarði.
Eitthvað hefur nú setið eftir af
þeim minningum því rúmum
áratug seinna þótti mér tímabært
að sýna þáverandi sveitungum
mínum á Ströndum þessi undur
og stórmerki. Að þessu sinni var
leigt orlofshús í Fljótum, farið í
réttina á forláta Ford Econoline,
sem við reyndar festum í snjó í
Fljótum. Sætaferð á ballið, sem
að þessu sinni var í reiðhöllinni
og endurfundir við ýmsa sem
maður hafði ekki séð í áratug.
Tæpum áratug síðar lá leið mín enn í Laufskálarétt, nánar
tiltekið síðasta laugardag. Að þessu sinni var vinnubíllinn
gangsettur, myndavélin sett á öxlina og brunað í Hjaltadal-
inn. Eftir að hafa mætt hátt í fimmtíu bílum á þessari stuttu
leið átti ég von á að það væri kannski heldur rólegt í réttinni,
almenningurinn að tæmast og menn farnir að týnast til síns
heima.
Sú var þó aldeilis ekki raunin. Bílastæðið við réttina minnti
á Smáratorg eða Kringluna í jólaösinni, það var meira að segja
mættur lögreglumaður til að stjórna umferðinni. Sveitastúlkan
brá á það ráð að leggja utanvegar í bröttum kanti og dreif sig í
mannmergðina, því ekki vantaði hana! Og endurfundirnir
urðu engu færri en fyrr, nema nú voru ef til vill liðin 20 ár
síðan fundum bar saman.
Stemningin svona sambland af íslenskri réttarstemningu
og bandarískri Hollýwood stemningu þar sem ekki var
þverfótað fyrir mynda- og kvikmyndatökuliði, sumir meira að
segja komnir upp í krana til að ná „rétta skotinu.“ Íslenskur
fjöldasöngur í bland við fjölþjóðlegar raddir gestanna.
Íslenskum harðfiski rennt niður með erlendu söngvatni.
Það er ekki auðvelt að lýsa því hvað gerir Laufskálarétt – já
og raunar stóðréttir yfirleitt – að svona eftirsóttum viðburðum.
Raunar man enginn lengur hvenær það komst í tísku að fara í
stóðréttir og ferðamenn urðu margfalt fleiri en hrossin. En
það er eitthvað með Skagfirðinga og Húnvetninga og hesta.
Því hvar sem tveir menn eru samankomnir í þessum héruðum
má búast við að sé hestamannamót. Eða alla vega einhver
hestatengdur viðburður.
Á ferðum mínum um Krókinn með gesti og ferðafólk í
sumar hafa margir haft orð á hestunum sem dvelja í þartil-
gerðum hólfum vítt og breytt um bæinn, að vísu tímabundið
því um er að ræða náttúrulegar sláttuvélar. Við íbúarnir erum
löngu hætt að taka eftir þessu en margir reka upp stór augu, en
finnst þetta engu að síður ákaflega umhverfisvænt og sniðugt.
Og að sjálfsögðu bendir maður ferðafólki á það hversu
hógværir Skagfirðingar eru að hafa styttu af hesti á torgi
bæjarins og kenna það að auki við umræddan hest. Víðast
hvar annars staðar eru nefnilega einhverjir fyrirmenn settir á
stall á slíkum torgum.
Kristín S. Einarsdóttir
Lögreglufréttir
Óhöpp og
dólgslæti um
Laufskála-
réttarhelgi
Síðastliðin helgi gekk
nokkuð vel fyrir sig að sögn
lögreglunnar á
Sauðárkróki. Jafnan fjölgar
talsvert af fólki í firðinum
vegna Laufskálaréttar með
tilheyrandi glens og gleði
en stundum kárnar
gamanið.
Tvö slys urðu tengd
réttarstörfum, ein kona slas-
aðist á fæti á leið niður fjallið
og karlmaður slasaðist í
réttinni er hann varð undir
hesti. Þá var einn ökumaður
stöðvaður með fíkniefni í
fórum sínum og annar gisti
fangageymslur fyrir dólgs-
læti.
Þá var ein líkamsárás
kærð sem átti sér stað fyrir
utan Laufskálaréttarballið í
reiðhöllinni. Lögreglan fylgdi
brotaþola á Heilbrigðis-
stofnunina Sauðárkróki til
aðhlynningar en sauma
þurfti fimm spor við auga-
brún mannsins. /BÞ
Áreittu stúlkur á Borgarsandi
Eltu og blístruðu á þær
Þrír menn eltu þrjár stúlkur
sem voru að leik á
Borgarsandi á Sauðárkróki sl.
sunnudag. Stúlkurnar, sem
eru á aldrinum 12 til 13 ára,
forðuðu sér undan mönnunum
og tilkynntu athæfið til
lögreglu.
„Það var blístrað á þær og
þeir fóru að elta þær, þær
forðuðu sér yfir sandmönina
nálægt Ernunni og hringdu á
hjálp, enn með mennina á eftir
sér. Þegar þær komust upp á
reiðveginn kom fólk ríðandi og
þá snéru mennirnir við og fóru
niður í fjöru og ég kom augna-
bliki seinna og náði í þær,“ segir
Halldór Bjarnason, faðir einnar
stúlkunnar, í færslu á Facebook.
Þau svör fengust frá Lögregl-
unni á Sauðárkróki að menn-
irnir, sem eru af erlendu bergi
brotnir, hafi fengið tiltal og þeim
gert grein fyrir því að svona
hegðun væri ekki liðin. Menn-
irnir töluðu ekki íslensku og
takmarkaða ensku. Af gefnu
tilefni vill lögreglan koma þeim
skilaboðum áleiðis að árétta
fyrir börnum að gefa sig ekki á
tal við ókunnuga.
Halldór segist ekki vita hvað
mönnunum gekk til í samtali við
Feyki og hann sé ekki að leggja
dóm á það en hvað sem því líður
þá hræddu þeir stelpurnar og er
dóttir hans nokkuð skelkuð eftir
atvikið. „Dóttir mín er ekki
hrifin af því að vera ein úti eftir
þetta, mér þætti betra að geta
sagt henni að þeir væru farnir og
það væri engin ástæða til að
óttast þá. Ég myndi persónulega
vilja láta fjarlægja þessa menn,
setja frímerki á rassgatið á þeim
og senda þá heim,“ segir Halldór
að endingu. /BÞ
Halldór bóndi á Molastöðum með forystuhrút. MYND: HH
Skagfirska jólsveiflan
til útflutnings
Í fyrsta skipti í tuttugu ár
blæs sveiflukóngurinn
Geirmundur Valtýsson til
tónleika í Reykjavík undir
yfirskriftinni Jólagleði
Geirmundar. Tónleikarnir
verða haldnir í Austurbæ
þann 29. nóvember nk. og
með honum í för verður
frábært listafólk. Flutt
verða þekktustu lög
Geirmundar, þekkt jólalög
og lög af jóladiski
Geirmundar sem út kom á
síðasta ári.
Gestasöngvarar með Geir-
mundi verða Óskar Pétursson,
jólastelpurnar Anna Karen og
Valdís, Helga Möller og Diddú
sem nú kemur fram með
Geirmundi í fyrsta sinn.
Hljómsveit undir styrkri
stjórn Vilhjálms Guðjónssonar
mun annast undirleik og
kynnir verður Þorgeir Ást-
valdsson. Miðasala er hafin á
Miði.is. /BÞ
Jólagleði
Geirmundar
í Austurbæ
Hrútadagar í Akrahreppi og Fljótum
Haldið í gamlar hefðir
Það verður sannkölluð
hrútahelgi í Skagafirði um
næstu helgi. Haldnar verða
tvær hrútasýningar, annars
vegar í Fljótum og hins vegar í
Akrahreppi. Er þetta annað
árið í röð sem hvor sýning um
sig er haldin.
Áratuga hefð er fyrir hrúta-
sýningum en vegna smithættu
lögðust þær af í mörgum sveitum.
Fyrr á tímum þótti gott að eiga
stóra og fallega hrúta og voru
bændur þá ákaflega stoltir ef
þeirra hrútar dæmdust hátt á
hrútasýningum og var það
ákveðin mælieining á hversu
góðir bændur menn væru, því fé
er jafnan fóstra líkt.
Fjárræktarfélag Fljótamanna
stendur fyrir hrútadegi á Þrasa-
stöðum í Fljótum næstkomandi
laugardag, 4. október. Dagskráin
hefst kl 13:30. Hægt verður að
kaupa kynbótalömb, en einnig
verður á dagskrá hrútasýning og
lambatrítl hjá börnum. Boðið
verður upp á léttar veitingar að
hætti Fljótakvenna og heima-
framleiðsla Fljótamanna kynnt.
Í tilkynningu um sýninguna er
vakin athygli á því að einungis
má selja sauðfé innan Trölla-
skagahólfs, að Svarfaðardal
undanskildum.
Í Akrahreppi verður hrúta-
sýning haldin í fjárhúsunum á
Þverá sunnudaginn 5. október og
hefst hún kl. 13:00. Á dagskrá er
eftirfarandi: Veturgamlir hrútar
15 efstu, lambhrútar 15 efstu,
tvílitir lambhrútar 7 efstu, skraut-
gimbrasýning barna (yngri og
eldri), hrútauppboð og líflamba-
sala og -sýning. Kaffiveitingar
verða í boði kvennfélags Akra-
hrepps. Einnig verða gimbrar til
sýnis og sölu og hefur verð verið
ákveðið 20 þúsund krónur fyrir
hrút og 15 þúsund fyrir gimbur.
Allir eru boðnir velkomnir á
hrútasýningarnar, sem nú eru
fyrst og fremst fjölskylduhátíðir
til að halda í gamlar hefðir, koma
saman og hafa gaman, með
sauðkindina í öndvegi. /KSE