Feykir - 02.10.2014, Blaðsíða 8
8 37/2014
Tímalaus og notaleg tónlist
Róbert og Guðmundur gefa út geisladiskinn Orð
Geisladiskurinn Orð með
þeim Róberti Óttarssyni og
Guðmundi Ragnarssyni kemur
út þann 6. október nk. Í
tilefni þess ætla þeir félagar
að leggja land undir fót
ásamt hljómsveit og halda
þrenna útgáfutónleika, á
Sauðárkróki, Siglufirði og í
Reykjavík. Feykir hitti
Guðmund og Róbert og spurði
þá í út í tónlistina, samstarfið
og undirbúninginn fyrir
komandi útgáfutónleika.
Róbert og Guðmundur leiddu
hesta sína fyrst saman í Dægur-
lagakeppni Kvenfélags Sauðár-
króks fyrir nokkrum árum
„Eftir það byrjuðum við stund-
um að gutla saman í tónlist, þá
kynntist ég nokkrum af lög-
unum hans, einu af öðru. Ég
fékk litla skammta í einu því ég
þyki ekki það skýr að ég geti lært
mörg lög í einu,“ segir Róbert í
gamansömum tón. „Þannig
byrjuðum við að vinna saman
en við höfum þekkst mikið
lengur,“ bætir Guðmundur við
en félagarnir eru báðir Sigl-
firðingar. „Það má segja að við
höfum kynnst þegar ég var að
vinna með móður Róberts á
Siglufirði,“ segir Guðmundur.
„Ég var alltaf að vappa í kring
um Guðmund, honum til lífs og
yndisauka væntanlega,“ bætir
Róbert við og þeir hlægja.
Upptökur á geisladiskinum
hófust í byrjun árs en hugmynd-
ina um að gefa út disk segja þeir
Róbert og Guðmundur að hafi
komið fyrir ári síðan að frum-
kvæði Róberts en að það hafi
tekið hann smá tíma að sann-
færa Guðmund um að slá til.
„Hvorugur okkar hefur verið
það mikið í tónlist, bara með
vinstri ef svo má segja. Ég var að
syngja í Karlakórnum Heimi og
spilaði með Harmonikkufél-
aginu. Róbert hefur þó gefið út
einn disk,“ segir Guðmundur.
,,Þá höfðum við báðir tekið þátt í
uppsetningu á sýningunum
Manstu gamla daga og verið í
ýmsum öðrum smærri verkefn-
um saman“. „Þetta var verkefnið
fyrir árið 2014 að koma út
þessum geisladiski. Í fyrra var
ákveðið að diskurinn kæmi út
15. október, þannig að tíma-
planið hefur nokkurn veginn
haldist,“ segir Róbert. Upptökur
fóru fram í stúdíó Benmen hjá
Sigfúsi Arnari Benediktssyni
(Fúsa Ben) og segja þeir upp-
tökur hafa gengið vel en lög
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Róbert og Guðmundur tóku lagið fyrir blaðamenn Feykis. MYND: BÞ
geisladisksins eru ellefu talsins.
Þeir lögðu upp með að fá
heimafólk til liðs við sig við að
koma geisladisknum á koppinn
og tókst það að að mestu og
segjast þeir vera ánægðir með
útkomuna. Allt efni disksins er
frumsamið, Guðmundur semur
lög og nokkra texta en aðrir
textahöfundar eru Hilmir Jó-
hannesson, Engilráð Sigurðar-
dóttir, Ársæll Guðmundsson,
Gunnar Sandholt og Herdís
Sæmundardóttir. En hvernig
myndu þeir lýsa tónlistinni? –
„Einhverskonar sveitapopp, lög
sem maður syngur með en þau
hafa flest orðið til í því umhverfi
- þar sem allir sitja saman að
syngja,“ útskýrir Guðmundur.
„Mínir vinir segja diskinn
notalegan. Hann hefur verið að
rúlla heima hjá mér og fólki
finnst notalegt að hafa diskinn á.
Þú grípur lögin kannski ekki
alveg í fyrstu en eftir tvær þrjár
spilanir þá hrífa þau þig með sér,“
bætir Róbert við. Guðmundur
tekur undir og segir tónlistina
vera tímalausa og notalega.
Aðspurðir um hvort þeir eigi
uppáhaldslag á plötunni segist
Róbert eiga erfitt með að velja
eitthvert eitt lag umfram annað.
Ef hann yrði að velja myndi það
líklegast vera lagið Orð, sem er
titillag plötunnar. Guðmundur
tekur undir og segir að textinn í
því lagi sé einstaklega góður og
útsetningin hæfi lagi og texta
vel. Guðmundur nefnir einnig
lagið Húsið sem er samið um
sumarhús fjölskyldunnar en geti
átt við öll sumarhús.“ Róbert
segir að lagið Flottastur sé einnig
í uppáhaldi en það er fyrsta lagið
sem hann söng eftir Guðmund
og þeir tóku í áðurnefndri
Dægurlagakeppni. „Hann breytti
aðeins útsetningunni á laginu og
fyrir vikið fannst mér það enn
flottara,“ segir Róbert. „Það var í
rokkstíl en svo hægðum við það
verulega niður og við það
breyttist það mikið. Það er texti
um Skagafjörð, þ.e. Skagafjörður
sem er flottastur,“ segir Guð-
mundur og bætir við að eigin-
kona hans, Herdís Sæmundar-
dóttir, hafi samið megnið af
textanum í því lagi.
Þessa dagana æfir hljóm-
sveitin stíft til að undirbúa kom-
andi útgáfutónleika sem verða
haldnir á Mælifelli 10. október
kl. 21, 11. október í Rauðku á
Siglufirði kl. 21 og í Iðnó í
Reykjavík 17. október kl. 21.
Einnig verður diskurinn kynnt-
ur sérstaklega á Bændadögum í
Skagfirðingabúð. „Þetta er allt
að smella saman hjá okkur. Nú
er nýr hrollur byrjaður að fara
um mann, mætir einhver?“ segir
Róbert og kímir við. Þeir segjast
vera vongóðir um að fólk mæti
enda skipar hljómsveitina ein-
valalið; Fúsi Ben er á gítar,
Rögnvaldur Valbergsson á hljóm-
borði, Margeir og Jóhann Frið-
rikssynir á bassa og trommur. Í
bakröddum eru Sigurlaug Vor-
dís, Guðbrandur Ægir Ásbjörns-
son og Gunnar Sandholt.
Orð verður hægt að fá í Skagfirðingabúð,
Hlíðarkaup, Sauðárkróksbakaríi og í öllum
betri verslunum um land allt.
Geisladiskurinn verður einnig til sölu á
útgáfutónleikunum. Svo verður auðvitað
hægt að kaupa diskinn hjá Róberti og
Guðmundi, en þeir eru með Facebook-síðu
sem heitir ORÐ.
Feðgin leika Emil, Ídu og Anton
Leikfélag Sauðárkróks setur upp Emil í Kattholti
Æfingar standa nú sem hæst
á leikritinu Emil í Kattholti í
uppsetningu Leikfélags
Sauðárkróks. Feðginin
Guðbrandur Guðbrandsson,
Eysteinn Ívar og Emilíana Lillý
fara með hlutverk Emils, Ídu
og pabbans Antons. Feykir
kíkti á æfingu í vikunni, þar
sem „allt var að gerast“ og
komin mikil stemning í húsið,
enda farið að síga vel á seinni
hluta æfingatímabilsins.
Guðbrandur er einn af reynslu-
boltum Leikfélagsins, þó hann
segist ekki hafa byrjað að leika
„fyrr en“ 1995. Þrátt fyrir það á
hann 25 uppfærslur að baki.
Sonurinn Eysteinn Ívar sem er
þrettán ára, er að leika sitt þriðja
hlutverk hjá Leikfélaginu, en
hann var 7 ára þegar lék
litlabróður Vöndu í Pétri Pan.
Emilíana Lillý á níu ára afmæli
tveimur dögum fyrir frumsýn-
ingu. Systkinin eru sammála
um að æfingaferlið sé búið að
vera skemmtilegt þó þau séu
stundum dálítið þreytt. „En
það borgar sig, þetta er rosa
gaman,“ segir Eysteinn. Lillý
segist ekki líkjast Ídu í Kattholti
en segir að bróðir sinn hafi
verið alveg eins og Emil þegar
hann var yngri. Eysteinn kann-
ast við að hafa verið uppátækja-
samur en segist þó hafa sloppið
við smíðaskemmuna. Emil og
Ída hlakka til frumsýningarinnar
þó smá sviðskrekkur sé farinn
að gera vart við sig, en reynslu-
boltinn Guðbrandur segir að
það sé bara af hinu góða,
„maður má ekki vera of slakur.“
Emil í Kattholti var síðast á
sviði hjá Leikfélaginu fyrir 26
árum en LS var annað áhuga-
leikfélag landsins til að setja
Emil upp. Þá fór Páll Friðriksson,
sem nú leikstýrir, með sitt fyrsta
hlutverk hjá Leikfélaginu. Páll
og Ragnar Heiðar Ólafsson, sem
bæði leikur í sýningunni og
hannar og smíðar sviðsmynd,
voru í óða önn að raða upp
húsakynnum í Kattholti þegar
Feykir bar að garði.
Sagði Páll æfingarferlið
ganga vel og allt vera samkvæmt
áætlun, en frumsýning verður í
Bifröst laugardaginn 11. októ-
ber. /KSE
Guðbrandur ásamt börnum sínum Emilíönu Lillý og Eysteini Ívari. MYND: KSE