Feykir - 02.10.2014, Síða 4
4 37/2014
Aflatölur 21. - 27. september 2014
Um 375 tonn að landi
Í viku 39 var rúmu 131 tonni landað á Skagaströnd og 234 tonnum á Sauðárkróki. Þá var landað
rúmum 6 tonnum á Hofsósi og eftir nokkurt hlé var aftur róið á Hvammstanga en þar var þremur
tonnum landað. Alls eru þetta um 375 tonn á Norðurlandi vestra, sem er um 25 tonnum meira en
í síðustu viku. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KGSKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Blær HU Landb.lína 1.380
Dagrún HU-121 Handfæri 415
Hafrún HU-12 Dragnót 4.228
Hamar SH-224 Handfæri 29.086
Muggur KE-57 Landb. lína 6.730
Ólafur Magnúss. HU-54 Þorskfisknet 1.567
Óli Gísla HU-212 Handfæri 1.276
Sighvatur GK-57 Lína 63.371
Stella GK-23 Landb.lína 7.121
Sæunn HU 30 Handfæri 97
Alls á Skagaströnd: 131.260
Farsæll SH-30 Botnvarpa 87.000
Gammur SK-12 Þorskfisknet 1.928
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 2.212
Samkeppni í
mjólkuriðnaði
Samkeppni er mikilvæg til
þess að draga fram það besta í
hverjum og einum. Það að
vera ekki í samkeppni leiðir
til stöðnunar og á Íslandi er
nú landbúnaður í ákveðinni
samkeppni við aðrar
innlendar og innfluttar
matvörur.
Í mjólkuriðnaði hefur ríkt lítil
samkeppni við innflutning
vegna takmarkana á innflutningi
og ofurtolla í þeim tilfellum
þegar flutt er inn. Mjólk er hins
vegar í samkeppni við aðrar
neysluvörur t.d. gosdrykki og
safa. Oft vill gleymast í um-
ræðunni að samkeppnin þarf að
vera á báðum endum, bæði í
smásölu og í innkaupum á
afurðum en þegar kemur að
innkaupum á mjólkurafurðum
er nánast engin samkeppni í
dag. Bændur hafa ekkert val,
þeir selja sína framleiðslu til
einokunarhrings sem kaupir
samkvæmt ákveðinni verðskrá.
Það er því gríðarlega mikil-
vægt hagmunamál til lengri
tíma fyrir bændur að fá fleiri
kaupendur að mjólk, það sé
raunverulegt val hvers lögbýlis
hverjum það selur sínar afurðir.
Samkeppni ýtir undir vöru-
þróun. Nýjasta dæmið er að það
er ekki fyrr en lítill aðili hefur
framleiðslu á glúten frírri mjólk
að stóri einokunarhringurinn sá
ástæðu til þess að gera það líka.
Þrátt fyrir að eftirspurn eftir
þeirri vöru hafi verið til staðar í
áratugi var henni ekki svarað
fyrr en mjólkurbúið Arna hóf
framleiðslu nú nýverið.
Nokkrir aðilar hafa áður gert
tilraun til að vinna mjólk þrátt
fyrir mjög óhagstætt rekstrar-
umhverfi, þar sem ráðandi aðili
á markaði hefur svarað allri
samkeppni af fullri hörku og
beitt öllum ráðum í bókinni til
að drepa semkeppnina í fæð-
ingu í stað þess að fagna henni.
Þeirra á meðal er Kaupfélag
Skagfirðinga sem sá viðskipta-
tækifæri í því að kaupa Mjólku
og halda rekstri hennar áfram,
reyndar með því að fá til þess
meðgjöf frá MS í formi
endurgreiðslu á verðmismun
sem Mjólka var látin greiða.
Með kaupunum hefur KS í raun
staðfest að það er vel hægt að
reka litla einingu í mjólkuriðnaði
ef allir sitja við sama borð og fá
hráefnið á eðlilegu verði.
Úrskurður Samkeppnis-
stofnunar hefur enn og aftur
vakið athygli á þeirri staðreynd
að stjórnendur Mjólkursam-
sölunnar treysta sér ekki til að
vera í samkeppni við óskylda
aðila og eru tilbúnir að ganga
mjög langt inn á grátt svæði í
laga túlkun til að fella þá sem
ætla að veita þeim alvöru
samkeppni. Það er auðvelda
leiðin í samskiptum að beita
stærðinni fyrir sig og bregða
fæti fyrir minni aðila með
bolabrögðum í stað þess að
mæta þeim í hillum verslanna
með betri vöru eða betra verði.
Núverandi fyrirkomulag í
mjólkuriðnaði hefur alið af sér
Þýskir kokkar
og bakarar
á eldra stigi Ársala
Þriðjudagurinn 23.
september hófst þannig hjá
okkur í Ársölum að þegar
börn og foreldrar komu í
skólann voru þau fest á
filmu þýskrar myndatöku-
konu sem hafði komið sér
fyrir á skólalóðinni. Að
undanförnu hafa verið hér í
Skagafirði þýskir mynda-
tökumenn og konur á
vegum þýskrar sjónvarps-
stöðvar að mynda skagfirskt
mannlíf frá sólarupprás til
sólarlags.
Í samráði við Ólafshús komu
svo til okkar á eldra stigið fjórir
þýskir kokkar og bakarar og
elduðu fyrir okkur hádegis-
matinn. Með þeim í för voru
einnig þýskir sjónvarpsmenn
sem tóku upp viðburðinn og
tóku börn og starfsfólk tali.
Börnunum fannst tilkomu-
mikið að sjá fjóra hvítklædda
starfsmenn í eldhúsinu þegar
þau sóttu matinn og eitt barn-
anna spurði af hverju væri
læknir í eldhúsinu!
Þýska föruneytið fór síðan
inn á tvær deildir, bar fram
matinn þar og tók börnin tali.
Á þýskum matseðli dagsins var
dýrindis nautahakksbuff með
lauk og hvítlauk, kartöflur með
steinselju og rjómasveppasósa
með myndarlegum sveppum
út í. Þetta féll öllum vel í geð
enda hinn ljúffengasti matur.
Yngstu börnin voru eitthvað
feimin við að prófa steinselju-
kartöflurnar en þá sagði
deildarstjórinn við þau: „Iss,
þetta eru blómakartöflur,“ og
það var nóg til að fá þau til að
borða af bestu lyst því hver vill
ekki borða blómakartöflur? Í
eftirrétt var kaka sem ber
nafnið „Donauwelle“, alveg
einstaklega ljúffeng berja-,
súkkulaðikaka sem rann
ljúflega niður litla hálsa og
stóra. Það féll börnunum
sérlega vel í geð að fá þennan
dýrindis eftirrétt enda ekki vön
því að fá eftirrétt í leikskólanum
nema til hátíðabrigða.
Fréttamaður tók leikskóla-
stjóra tali og fannst merkilegt
hvað Íslendingar eiga mikið af
börnum og hvað búið er vel að
börnum í leikskólanum. Það er
óhætt að segja að þessi heim-
sókn var skemmtileg viðbót
við daglegt líf og starf í Ársöl-
um. Sjónvarpsstöðin ZDF
mun væntanlega sýna þátt um
mannlífið í Skagafirði um
næstu páska svo þá er nú
vissara að setja sig í stellingar
fyrir framan sjónvarpstækin.
Anna Jóna Guðmundsdóttir
leikskólastjóri
Leikskólinn Ársalir
Sauðárkróki
AÐSENT ANNA JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR SKRIFAR
kerfi sem er værukært og latt og
kýs lögfræðiklæki og bola-
brögð í stað vöruþróunar og
markaðssetningar. Þessi vinnu-
brögð koma á endanum niður á
mjókurframleiðendum og
koma óorði á fyrirtæki þeirra og
framleiðslu.
Nú alltof lengi hefur umræða
staðið um „landbúnaðarkerfið
gegn neytendum“. Sú umræða
hefur farið um víðan völl og
látið eins og hagsmunir fari ekki
saman. Sem er alrangt, hags-
munir framleiðanda afburða
íslenskra matvara fara algerlega
saman við hagsmuni neytenda.
Það er því dapurlegt að fylgjast
með forráðamönnum Mjólkur-
samsölunnar sem ætla nú að
fara í það að deila við dómarann
frekar en að sætta sig við að það
kerfi sem komið var á fót 2004
þjóni einungis hagsmunum
þess einokunarkerfis. Hags-
munir landbúnaðarins og neyt-
enda eru aðrir. Þeir eru að til
verði raunveruleg samkeppni í
innkaupum mjólkurafurða,
ólíkar hugmyndir þrífist um
afleiddar vörur sem leiðir af sér
vöruþróun. Það er einfalt mál
að finna slíkt dæmi, sem einmitt
kom í kjölfar annars dóms
Samkeppnisstofnunar og sner-
ist um íslenska matvælafram-
leiðslu. Mjólkuriðnaðurinn á að
fylgja fordæmi garðyrkjubænda
frá 2009 og brjóta af sér hlekki
þess kerfis sem leitt hefur af sér
einokun og doða. Möguleikarnir
eru endalausir ef viljinn og
kjarkurinn er fyrir hendi!
Magnús Þór Jónsson og
G.Valdimar Valdimarsson,
stjórnarmenn í Bjartri framtíð.
Klakkur SK-5 Botnvarpa 127.319
Már SK-90 Handfæri 1.185
Óskar SK-13 Handfæri 374
Röst SK-17 Rækjuvarpa 12.734
Steini Sk-14 Handfæri 967
Vinur SK-22 Handfæri 502
Alls á Sauðárkróki 234.221
Ásmundur SK-123 Landb. lína 3.704
Geisli SK-66 Línutrekt 2.415
Alls á Hofsósi 6.119
Harpa HU-4 Dragnót 3.033
Alls á Hvammstanga 3.033
AÐSENT MAGNÚS ÞÓR JÓNSSON OG G.VALDIMAR VALDIMARSSON SKRIFA
Frítt í sund, fótbolta
og fjölmargt annað
Hreyfivikan 29. september – 5. október
Hreyfivikan (e. Move Week)
hófst á mánudag en herferðin
nær um gjörvalla Evrópu
dagana 29. september – 5.
október 2014. Hreyfivikan er
hluti af „The NowWeMove
2012-2020“ herferð sem
hefur þá framtíðarsýn að 100
milljónir fleiri Evrópubúa verði
orðnir virkir í hreyfingu og
íþróttum fyrir árið 2020 og að
fólk finni hreyfingu sem
hentar því.
Sex aðilar eru skráðir þátttak-
endur á Sauðárkróki og einn á
Skagaströnd. Boðið hefur verið
upp á fría Zumba tíma á
Sauðárkróki og á Skagaströnd
og verður boðið frítt í Zumba í
Þreksporti á föstudag og
laugardag. Leikskólinn Ársalir á
Sauðárkróki – eldra stig tekur
þátt m.a. með því að fara með
börnin í gönguferðir, Sjúkra-
þjálfarar frá Heilbrigðisstofnun-
inni Sauðárkróki ætla að bjóða
upp á fræðslu í fyrirtækjum.
Fræðsla um hreyfingu og
kynning á Ringo verður í FNV,
Knattspyrnudeild Tindastóls
verður með opnar æfingar fyrir
alla krakka að 16 ára aldri og
Sveitafélagið Skagafjörður bíður
öllum frítt í sund milli kl. 17 og
19 alla daga hreyfivikunnar.
Þetta gildir í laugarnar á Sauð-
árkróki, Hofsósi og í Varmahlíð.
Nánari upplýsingar á www.
iceland.moveweek.eu/ /BÞ