Feykir - 02.10.2014, Side 11
37/2014 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
getur látið sig hlakka til að hlusta á Gunnu Dís og Andra.
Spakmæli vikunnar
Óeðlilegur er sá maður
sem aldrei skiptir um skoðun.
– A. Barthélemy
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... meðal hæna verpir 228 eggjum á ári?
... Íslendingar drekka meira Coca Cola en aðrar þjóðir?
... jörðin er eina plánetan sem ekki er skírð eftir guði?
... hikstaköst ganga vanalega yfir á innan við fimm mínútum?
... venjuleg húsfluga lifir í 10-25 daga?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Einu sinni voru þrír menn á eyðieyju og hittu anda sem gaf þeim eina
ósk hverjum. Sá fyrsti óskaði sér þess að finna bát til að geta siglt
heim til sín og varð honum að ósk sinni. Sá næsti óskaði sér þess
að það kæmi þyrla að sækja hann. Þá varð sá þriðji og síðasti svo
einmana að hann óskaði að hinir tveir mennirnir kæmu aftur til hans.
Krossgáta
Feykir spyr...
[SPURT Á
FACEBOOK]
Tekur þú
þátt í Hreyfi-
vikunni
– Move
Week?
JÓHANN GUÐMUNDSSON
SAUÐÁRKRÓKI:
Nei, ég er ekki að flytja neitt.
LINDA BJÖRK ÆVARSDÓTTIR
SKAGABYGGÐ:
-Já, svo sannarlega með fjórum
Zumbatímum.
ÁLFHILDUR LEIFSDÓTTIR
SAUÐÁRKRÓKI:
-Ég mætti í Zumba og bauð vini
með. Ég stefni líka á að skella mér í
sund með börnin mín í Varmahlíð.
DÚFA DRÖFN
ÁSBJÖRNSDÓTTIR
SAUÐÁRKRÓKI:
Já, mjög mikið.
Snöggsteikt lifur
með súrsætri sósu
og nammi í eftirrétt
FORRÉTTUR
Salat með öllu
Dressing:
Rauðlaukur skorin í tvennt, svo
í sneiðar og loks settur í box.
Grenandin hellt yfir og látið
liggja yfir nótt.
Salat:
Salatblanda
vínber
mangó, smátt skorið
paprika, rauð og gul
gúrka
Aðferð: Rauðlaukurinn veiddur
upp úr og settur í salatið. Einnig
gott hella örlitlu yfir salatið en
ekki miklu þar sem laukurinn er
mjög sætur.
Salatið passar rosalega vel
með með kjúklingarétt.
AÐALRÉTTUR
Snöggsteikt lifur með
súrsætri sósu
1 lifur, skorinn í þunnar sneiðar
(um ½ til 1 sm)
hveiti
salt og pipar
Aðferð: Lifrinni er velt upp úr
hveiti og krydduð með salti og
pipar. Næst er hún snöggsteikt á
sjóðandi heitri pönnu, bara í 1-2
mín. á hvorri hlið annars verður
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Þegar ég er beðin um
uppskriftir af einhverju þá
verð ég alveg tóm, þannig ég
varð að setjast niður og hugsa mjög stíft, en þar sem sláturstíð
er í fullum gangi ætla ég aðeins að að vera í svona „haust mat,“
segir Hjördís Bára Sigurðardóttir en hún og Sigurjón Elí
Jónsson á Hvammstanga eru matgæðingar vikunnar.
„Ég hef rosalega gaman að því að prófa ýmislegt og þá sérstaklega
í salat eða með kjúkling. Mig langar rosalega að skora á hana
Sólrúnu systir þar sem maturinn hennar klikkar ekki. Hún býr á
Akranesi ásamt Jakobi Inga og þremur börnum.“
hún of þurr. Borið fram með
hrísgjónum, súrsætrisósu og
salati.
EFTIRRÉTTUR
Nammi
100 g döðlur
2 msk hnetusmjör (gróft)
Aðferð: Maukað vel saman í
matvinnsluvél, búið til kúlur og
setið í frost í 10 mín. Hjúpið með
súkkulaði.
Verði ykkur að góðu!
Hjördís Bára og Sigurjón Elí.
Hjördís Bára og Sigurjón Elí matreiða
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Lumarðu
á frétt?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra