Feykir - 12.03.2015, Qupperneq 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
10
TBL
12. mars 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
www.skagafjordur.is
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021
Gönguskarðsárvirkjun – Aðrennslislögn og nýtt stöðvarhús
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins
Skagafjarðar 2009-2021 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og umhverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga
um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Breytingin felst í skilgreiningu á nýju iðnaðarsvæði (I-3.3) undir fyrirhugað stöðvarhús nýrrar Gönguskarðsárvirkjunar,
ofan við Sauðárkrók, sunnan Gönguskarðsár. Einnig er ný lega aðveitupípu og rafstrengs merkt inn á þéttbýlis-
uppdrátt, auk þess sem gömul lega aðveitustokks verður felld út. Virkjunin verður merkt inn á sveitarfélagsuppdrátt.
Breytingartillagan og umhverfisskýrsla verða til sýnis í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá og með 10. mars
2015 til 29. apríl 2015. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www. skagafjordur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi miðvikudaginn 29. apríl 2015 annaðhvort
til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar eða á netfangið: jobygg@skagafjordur.is
Sauðárkróki 9. mars 2015
Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúi
Afurðahæsta sauðfjárbúið í Vallanesi
Uppgjör fjárræktarfélaganna 2014
Vallanes í Skagafirði er
afurðahæsta sauðfjárbú landsins
árið 2014 samkvæmt uppgjöri
fjárræktarfélaganna í landinu.
Ærnar á búinu skiluðu að jafnaði
40 kílóum af kjöti en meðal fallþungi
dilkanna var 22 kíló. Það eru Selma
Guðjónsdóttir og Valdimar Eiríks-
son sem reka Vallanesbúið. Þau eru
með tiltölulega ungt fé. Byrjuðu
fjárbúskap haustið 2011 að afloknu
fjárleysi vegna riðuniðurskurðar.
„Þetta er einstaklega glæsilegur
árangur og sýnir að fjárkaupin hafa
tekist vel, sömuleiðis blöndun fjár-
stofna úr þremur fjarlægum hér-
uðum. Að sjálfsögðu var fituhlutfall
nokkuð hátt 8,87 sem óhjákvæmi-
lega fylgir svona miklum vænleika
en gerðin var líka 10,68,“ sagði Eyþór
Einarsson ráðunautur þegar hann
gerði grein fyrir glæsilegum árangri
Vallanesbúsins á aðalfundi félags
Sauðfjárbænda fyrir skömmu.
Í samtali við Valdimar kom fram
að nokkrir samverkandi þættir
hefðu skapað þennan góða árangur.
Í fyrsta lagi hefði vorið verið ein-
staklega gott sem og haustið þannig
að lömbin voru í samfelldum bata
fram að slátrun. Miklar úrkomur
síðasta sumar hefðu orðið þess
valdandi að Eyvindarstaðaheiði, þar
sem féð gekk, hafi verið með allra
fallegasta móti og raunar hefði hann
ekki séð hana jafn vel gróna og
grösuga um göngur fyrr. Þá hefði
aðeins vantað tvö lömb af fjalli sl.
haust. Valdimar sagði að fjárstofninn
væri að uppruna úr Öræfum, Þistil-
firði og Snæfellsnesi og ekki væri
merkjanlegur munur á afurðum
ánna eftir hvaðan þær væru. /ÖÞ
Merete Rabölle afhenti Valdimar viðurkenninguna. MYND: ÖÞ
www.skagafjordur.is
Tillaga að deiliskipulagi
Deplar í Austur-Fljótum
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 25.02.2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Depla í
Austur-Fljótum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Deiliskipulagstillagan felur í sér gerð deiliskipulags þar sem fyrirhuguð er uppbygging jarðarinnar Depla með áherslu á
ferðaþjónustu, veiði og gistiskála. Skipulagssvæðið tekur til hluta jarðarinnar og er um 9,3 hektarar að stærð. Heildar
byggingarmagn verður um 3000 m2. Tillagan liggur frami í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 10. mars 2015 til
29. apríl 2015 og á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www. skagafjordur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 29. apríl 2015 annaðhvort
til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar eða á netfangið: jobygg@skagafjordur.is
Sauðárkróki 9. mars 2015
Jón Örn Berndsen,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Sylvía Magnúsdóttir
nýr formaður UMSS
95. ársþing UMSS
95. ársþing UMSS var
haldið laugardaginn 7.
mars í Tjarnarbæ,
félagsheimili hesta-
mannafélagsins Léttfeta
á Sauðárkróki sem
einnig var gestgjafi að
þessu sinni.
Formannsskipti urðu í
sambandinu þar sem
Sylvía Magnúsdóttir frá
Hlíðarenda í Óslandshlíð
tók við af Jóni Daníel
Jónssyni sem gegnt
hefur embættinu
síðustu ár.
Viðsnúningur varð á
rekstri sambandsins þar
sem niðurstaða rekstrar-
reiknings sýndi rúmlega
eina milljón króna í afgang
í stað rúmra sextán
hundruð þúsunda í mínus
árið áður. Munaði þar
mestu um aukna styrki
milli ára en þess má geta að
UMSS sá um Unglinga-
landsmótið sl. sumar. Þá
var samþykkt á þinginu að
sækja um að halda
Unglingalandsmót UMFÍ
2018.
Tveir gestir heiðruðu
þingið með nærveru sinni,
þeir Viðar Sigurjónsson frá
ÍSÍ og Baldur Daníelsson
frá UMFÍ, og ávörpuðu
fundargesti.
Ný stjórn er skipuð
eftirfarandi: Sylvía
Magnúsdóttir formaður,
Gunnar Þór Gestsson,
Þorvaldur Gröndal, Guð-
mundur Þór Elíasson og
Steinunn Rósa Guð-
mundsdóttir. Úr stjórn
gekk Guðríður Magnús-
dóttir. /PF
Sylvía ásamt fráfarandi formanni, Jóni Daníel Jónssyni. MYND: PF