Feykir


Feykir - 07.05.2015, Qupperneq 1

Feykir - 07.05.2015, Qupperneq 1
 á BLS. 6-7 BLS. 3 Halla og Jón Guðmann eru matgæðingar vikunnar Uppskriftir sem vekja kátínu BLS. 11 Skagfirðingurinn Sólveig Þórarinsdóttir opnar nýja jógastöð syðra Jóga er fyrir alla Jóhanna Herdís er á jarð- skjálftasvæðunum í Nepal Öll fötin þvegin í höndum með sérstakri tækni 17 TBL 7. maí 2015 35. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Stofnendur heiðraðir á afmælishátíð Skagfirðingasveit 50 ára Þann 1. maí efndi Björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki til afmælisfagnaðar í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá stofnun sveitarinnar. Um 200 manns lögðu leið sína í Sveinsbúð til að halda upp á þennan merka áfanga og rifjaðar voru upp sögur af fræknum björgunarafrekum og ævintýralegum uppákomum. Sögu sveitarinnar voru gerð góð skil í máli og myndum en hápunktur athafnarinnar var án efa þegar stofnendur Skag- firðingasveitar voru heiðraðir. Í miðju afmælinu fékk sveitin hinsvegar útkall en aðstoða þurfti veika konu niður frá Gvend- arskál við Hóla. Samkvæmt upplýsingum frá sveitinni gekk björgunarstarfið vel og voru þeir komnir fljótt aftur til baka. /BÞ Þrír styrkir af þrjátíu til skagfirskra kvenna Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað við hátíðlega athöfn í Bláa lóninu þann 30. apríl og fengu 33 verkefni styrki að heildarupphæð kr. 35 milljónir. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra afhenti styrkina en í ár bárust 239 umsóknir hvaðanæva af landinu og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum. Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað síðan 1991, en það var þáverandi félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, sem hafði frumkvæði að styrkveitingunum. Þeir eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar. Einn af þremur hæstu styrkjunum hlaut Hildur Þóra Magnúsdóttir á Ríp í Hegranesi, kr. 2.300.000 vegna verkefn- isins „Pure Thyroid- þurrkun og nýting skjaldkirtla úr sláturdýrum“. Inntaka á þurrkuðum skjaldkirtli úr hreinum dýra- afurðum virkar vel á vanvirkan skjald- kirtil en hráefnið er afgangsafurð sem fellur til við slátrun. Varan sem um ræðir eru hylki sem innihalda þurrkaða skjald- kirtla úr íslenskum sláturdýrum. Feykir hefur áður fjallað um þetta verkefni sem var annað tveggja sem hlutu í vetur verð- laun í samkeppninni Ræsing í Skagafirði. Þá hlutu þær Anna Lilja Pétursdóttir í Varmahlíð og Kolbrún María Sæmunds- dóttir á Syðstu-Grund í Blönduhlóð hvor um sig 400 þúsund króna styrki til að gera viðskiptaáætlanir. Verkefni Önnu Lilju kallast „Ferðaskrifstofa/ bókunar- stofa í Skagafirði“ og verkefni Kol- brúnar Maríu „Litla hestafólkið.“ /KSE SÖLUSTJÓRI NORÐURLANDI VESTRA Þröstur I. Jónsson hefur hafið störf hjá BYKO sem sölustjóri og þjónustar alla íbúa frá Skagafirði til Hólmavíkur. Þröstur verður staðsettur á Sauðárkróki en mun vinna út frá verslun okkar á Akureyri. Sími: 821 4059 • tj@byko.is G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N Fermingargjafir Græjubúð Tengils er stútfull af frábærum fermingartilboðum

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.