Feykir


Feykir - 07.05.2015, Blaðsíða 2

Feykir - 07.05.2015, Blaðsíða 2
2 17/2015 Ég er þessi nútíma kona sem endar á því að líta á fésbókina þegar ég leggst til hvílu á kvöldin og byrja á því sama þegar ég opna augun á morgnana. Með tilkomu snjallsímans er þessi ágæti vefur svo á hliðarlínunni allan daginn og hjálpar með að hafa sam- band við miklu fleira fólk en ég ella kæmist yfir – og stundum fleiri en ég kæri mig um. Fylgjast með stöðu heimsmála, litríkum kjólum og Omaggio æði og svona mætti lengi telja. Ef í harð- bakkann slær nota ég jafnvel fésbókina til að kalla á börnin mín í mat. Einn af fylgifiskum þessarar snjallsímatækni er hið svo- kallaða auto correct eða sjálfvirk leiðrétting sem er stundum haldin býsna mikilli forræðishyggju á kostnað notandans. Nú ætla ég ekki að reyna að halda því fram að ég hafi aldrei farið flatt á þessari leiðréttingu sjálf, en hef einmitt þess vegna lúmskt gaman að því þegar aðrir lenda í því. Ég er þessi seinheppna týpa sem hef stundum verið ansi nærri því að senda nafna mannsins míns, sem er á tengiliða- listanum í símanum mjög persónuleg skilaboð. Einu sinni sendi ég nærri níræðum góðvini mínum tölvupóst sem endaði á orðunum „ég vona að heilsan sé ekki betri“ – ætlaði að sjálfsögðu að segja „ekki verri“ eða „vona að heilsan sé betri.“ Það væri líka alveg ég að senda persónuleg facebook skilaboð á rangan aðila eða bjóða 50 eða jafnvel 500 þúsund í eitthvað á sölusíðu sem ég væri tilbúin að borga 5000 fyrir. Í síðustu viku skildi ég ekkert í ungu konunni á feykir.is sem sagði mikilvægt að þrífa íbúðina sína kvölds og morgna! Ég var að því kominn að benda viðkomandi á að leita sér sálfræðiaðstoðar eða finna sér sjálfshjálparhóp vegna þrá- hyggju þegar ég fór að lesa greinina betur. Reyndist hún fjalla um mikilvægi þess að þrífa húðina kvölds og morgna! Svona atvik reyni ég hiklaust að afsaka með stöðu himin- tunglanna við fæðingu mína. Ég er nefnilega fædd í hrúts- merkinu sem gefur mér leyfi til að vera fljótfær og hugsa áður en ég framkvæmi og láta vaða á súðum. Ég var nýlega komin í vinnuna á þriðjudagsmorgun, eftir að hafa gengið Grundarstíginn og þvert yfir Hegrabrautina í þungum þönkum, en þó létt í spori – ef hægt er að nota það orðalag um hávaxna konu sem er 30 kílóum yfir kjörþyngd – með dásamlegan fuglasöng ómandi fyrir eyrum mér í logni og sólskini þegar þessi stöðuuppfærsla blasti við mér: „Sól og stilla, maður heyrir í hinum ýmsu fullum syngja og ömmur af hrossaskít fylkir vitin. Minnir mig á gamla daga þegar maður var í sauðburði á þessum árstíma. Það er komið vor.“ Öll eigum við okkar stef sem við tengjum við vorin, og þó ég sé ekki að tengja við allt sem þarna stendur þá veit ég hvað viðkomandi er að fara. Og hefði svo auðveldlega getað lesið þetta allt öðruvísi. Já eða skrifað þetta sjálf! Með kærri kveðju og ósk um að nú sé vorið komið til að vera. Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Fésbókin gefur tóninn inn í daginn „Kröfurnar fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar“ Víðtæk áhrif verkfallsaðgerða „Menn eru mjög staðfastir og mér sýnist að menn séu almennt að virða verkföll,“ sagði Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar stéttarfélags í Skagafirði, þegar Feykir sló á þráðinn áður en blaðið fór í prentun. Verkfallsaðgerðir hófust á miðnætti aðfaranótt þriðjudags en þá lögðu rúmlega 10 þúsund félagar Starfsgreinasambandsins niður vinnu, þ.m.t. félags- menn Öldunnar og Stéttarfélagsins Samstöðu á Blönduósi. Verkfallið tekur til allra þeirra sem eru að starfa eftir almennum kjarasamningi Starfsgreina- sambandsins og Samtaka atvinnulífisins, sem og þjónustu- samningi milli sömu aðila. Það mun standa í tvo heila sólarhringa og lýkur því á miðnætti þann 7. maí eða á aðfaranótt föstudags. Félagsmenn Öldunnar starfa víða í Skagafirði og hefur vinnustöðvunin víðtæk áhrif. Almennt sinna félagsmenn Öldunnar störfum í kjöt- og fiskvinnslu. Eru í ýmsum þjónustustörfum, s.s. í ferða- þjónustu, ræstingum, starfa í mötuneytum og flutningum. „Bílstjórar Vörumiðlunar lögðu niður störf á miðnætti. Þeir sem voru á leiðinni til Reykjavíkur komu til baka í tæka tíð en fyrirtækið hafði útvegað þeim bílaleigubíl. Þetta hefur áhrif á alla flutninga, þar með talið löndunarþjónustu og strand- veiðar þar sem enginn er til að taka á móti fiskinum,“ segir Þórarinn þegar hann tekur dæmi um þau víðtæku áhrif sem vinnustöðvunin hefur. Þórarinn segir samninga- viðræður ekki ganga vel. „Við teljum þessar kröfur sem við erum að setja fram fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar en viðsemjendur okkar eru á annarri skoðun, eins og gengur og gerist.“ Mjög snúin staða „Þetta eru okkar almennu félagsmenn sem eru að starfa í sláturhúsum, kjötvinnslum, ferðaþjónustu, verkstæðum og mjög víða. Þeir eru ansi margir,“ sagði Ásgerður Pálsdóttir formaður Samstöðu um hvar félagsmenn þeirra lögðu niður störf. Hún segir verkfallsaðgerð- ir hafa gengið vel og engin kvörtun um verkfallsbrot borist. „Það eru verkfallsverðir á vegum félagsins sem fara um á svæðunum og fylgjast með. Síðan er fólk duglegt að láta vita ef það heldur að það sé eitthvað að fara úrskeiðis.“ Ásgerður segir ekkert ásættanlegt tilboð hafi borist og því sé staðan mjög snúin. „Á meðan svo er þá gengur ekkert mikið. En auðvitað vonumst við eftir því að það komi sem fyrst – okkar markmið er að ná góðum kjarasamningi, það er ekki markmiðið að vera í verkfalli,“ sagði Ásgerður. /BÞ Breyttur útivistartími 1. maí „Forvarnarteymi Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill minna á að 1. maí síðast liðinn breyttist úti- vistartími barna og mega börn, 12 ára og yngri, nú vera úti til kl. 22. Hvetjum við ökumenn til að hafa gætur á aukinni umferð barna nærri umferðargötum og virða merkingar og hraðatakmarkanir. Einnig viljum við minna börn og foreldra á mikilvægi hjálma og annars hlífðarbúnaðar.“ /Fréttatilk. „Grafalvarlegt ástand í íslenskum landbúnaði“ Verkfall dýralækna Mast Á mánudag fundaði stjórn Bændasamtaka Íslands vegna þess ástands sem upp er komið í íslenskum landbúnaði, en samkvæmt fréttatilkynningu er það grafalvarlegt. Verkfall dýralækna hjá Matvæla- stofnun geti hreinlega knúið sum búanna í gjaldþrot og valdið mikilli röskun á kjötframleiðslu í landinu. Í fréttatilkynningunni segir að á meðan verkfall dýralækna hjá Matvæla- stofnun stendur yfir getur engin heilbrigðisskoðun farið fram og því er staðan alvarlegust í alifugla- og svínarækt. Vegna hraðrar versnunar í lausfjárstöðu búanna geti verkfallið knúið sum þeirra í gjaldþrot, þar sem þau koma ekki kjöti á markað. Velferð dýranna sé verulega ógnað þar sem að þéttleiki í eldihúsum er kominn yfir leyfileg mörk. Í tilkynningunni kemur fram að Bændasamtökin hafi sent bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að þessu tilefni og krafist að- gerða strax vegna þessa neyðarástands. Samtökin leggja þunga áherslu á að ráðherra geri allt sem í valdi hans stendur til að stuðla að lausn deilunnar. Einnig fer fulltrúi Bændasamtakanna í fagráði fram á að ráðið verði kallað saman nú þegar til að ræða um stöðuna sem, eins og áður hefur komið fram, er grafalvarleg. /ÞKÞ Fótboltinn af stað á Hofsósi Knattspyrna : 2. deild Lið Tindastóls hefur leik í 2. deildinni í knattspyrnu nú um helgina en þá fá strákarnir hans Sigga Donna lið Leiknis frá Fáskrúðsfirði í heimsókn. Líkt og síðustu sumur er Sauð- árkróksvöllur ekki klár þó ástand vallarins sé með skásta móti. Því verður spilað á Hofsósi laugar- daginn 9. maí kl. 14:00. /ÓAB Feykir.is ÁNINGARSTAÐURINN ÞINN Á NETINU!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.