Feykir - 07.05.2015, Blaðsíða 4
4 17/2015
Lumarðu á frétt?
Hafðu samband við Feyki
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is ...allir með!
„Grásleppuvertíðinni er lokið á Hofsósi og menn farnir að huga að strandveiðum. Einhverjir
bátar eru enn að grásleppuveiðum frá Sauðárkróki en einnig eru sumir farnir að huga að
strandveiðum, þó verkföll komi til með að trufla veiðarnar,“ sagði Gunnar Steingrímsson,
hafnarvörður hjá Skagafjarðarhöfnum í samtali við Feyki á mánudaginn.
Dagana 26. apríl til 2. maí var 53 tonnum landað á Skagaströnd og tæpum 120 tonnum á
Sauðárkróki. Alls gera þetta ríflega 170 tonn á Norðurlandi vestra. Ekki var róið frá Hofsósi og ekki
bárust aflatölur frá Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Skagaströnd
Addi afi GK 97 Grásleppunet 2.571
Alda HU 112 Grásleppunet 2.391
Bogga í Vik HU 6 Grásleppunet 1.792
Daðey GK 777 Grásleppunet 10.384
Dagrún HU 121 Grásleppunet 3.993
Diddi GK 56 Grásleppunet 1.623
Hjördís HU 16 Grásleppunet 4.335
Húni HU 62 Grásleppunet 3.558
Signý HU 13 Grásleppunet 1.675
Sæfari HU 200 Gráskeppunet 1.144
Sæfari Hu 200 Landb. Lína 1.161
Sæunn HU 30 Handfæri 905
Vestri BA 63 Rækjuvarpa 16.851
Alls á Skagaströnd 53.383
Sauðárkrókur
Bryndís SK 8 Grásleppunet 1.313
Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 2.991
Gammur II SK 12 Grásleppunet 1.663
Hafborg SK 54 Grásleppunet 1.432
Hafey SK 10 Grásleppunet 1.698
Heiðrún SH 198 Grásleppunet 1.416
Málmey SK 1 Botnvarpa 101.868
Már SK 90 Grásleppunet 3.551
Röst SK 17 Rækjuvarpa 912
Vinur SK 22 Grásleppunet 1.539
Þytur SK 18 Grásleppunet 1.925
Alls á Sauðárkróki 120.308
Aflatölur vikuna 26. apríl - 2. maí
Grásleppuvertíðinni lokið í Hofsósi
Egill Bjarnason héraðsráðunautur
fæddist á Uppsölum í Akrahreppi í
Skagafirði 9. nóvember 1927.
Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki 15. apríl 2015. Útför
fór fram 25. apríl 2015.
Komin kveðjustund
kallar vini á fund.
Minningar margar vakna
mikils er nú að sakna.
Fallinn ert þú að fold
feðrahulin mold.
Orðstír mun lifa lengi
í lífinu snerta strengi.
Færi þakkir þér
þessar línur hér
er eygir þú bjarmabandið
bjarta sumarlandið.
Kveðja frá vini.
Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður
í Búnaðarsambandi Skagfirðinga.
Egill Bjarnason
M I N N I N G
Skagfirðingar og Eyfirðingar íhugi
samvinnu í atvinnumálum
Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju og formaður Starfsgreinasambands Íslands
Björn Snæbjörnsson formaður
Einingar Iðju og formaður
Starfsgreinasambands
Íslands flutti hátíðarræðu á
fundi stéttarfélaganna í
Skagafirði sem haldinn var í
Fjölbrautarskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki á frídegi
verkalýðsins, 1. maí. Björn
sagði nauðsynlegt að rifja
upp þann mikla árangur sem
verkalýðsbarátta í heila öld
hefur skilað íslensku
launafólki.
„Hér eru vinnuaðstæður og
réttindi launafólks með því besta
sem gerist í heiminum og fyrir
það ber að þakka, en þessi ríku
réttindi sem launamenn hér á
landi hafa, féllu ekki af himnum
ofan. Það er áberandi að yngra
fólkið er ekki að velta því fyrir sér
hvernig réttindin hafa komist á,
það voru afar okkar og ömmur
sem börðust af einurð og festu
fyrir bættum kjörum og
réttindum komandi kynslóða og
baráttan kostaði blóð, svita og
tár. Við megum aldrei sofna á
verðinum, heldur standa vörð
um það sem áunnist hefur í
baráttunni um leið og við
sækjum fram, verkalýðsbarátta
er eilífðarbarátta.“
Einfalt reikningsdæmi
Verkfallsaðgerðir aðildarfélaga
Starfsgreinasambands Íslands á
landsbyggðinni hófust í síðustu
viku. Aðgerðirnar ná til yfir 10
þúsund félagsmanna aðildar-
félaganna og hafa mikil áhrif á
fjölda vinnustaða um land allt.
Björn sagði að launakjörin á
Íslandi verði að vera sambærileg
við aðrar þjóðir.
„Þetta er svo einfalt reikn-
ingsdæmi, þegar við horfum á
þjóðflutninga íslensks launafólks
til annarra landa á undanförnum
Björn Snæbjörnsson hélt ræðu á frídegi verkalýðsins á Sauðárkróki. MYND: KSE
árum. Nú ætla launþegar að
rétta sinn hlut, exelskjöl
lögfræðinga og hagfræðinga
vinnuveitenda breyta engu þar
um.“
Verkalýðshreyfingin á að
láta byggðamál sig varða
Björn sagði að landsbyggðin ætti
á margan hátt undir högg að
sækja, höfuðborgarsvæðið sogi
til sín fólk og fjármuni.
„Skagfirðingar og Eyfirðingar
þekkja ágætlega umræðuna,
þegar lagt er til að flytja opinber
störf út á land. Við viljum byggja
landið allt og það þýðir að dreifa
verður opinberum störfum. Það
segir sig sjálft, ekki nægir að setja
sér göfug markmið í þessum
efnum. Skagfirðingar og Eyfirð-
ingar hafa sameiginlegra hags-
muna að gæta og við eigum að
íhuga möguleikana á enn frekari
samvinnu í þessum málum,
verkalýðshreyfingin getur beitt
sér víða. Verkalýðshreyfingin á
að láta byggðamál sig varða.“
Verk að vinna í
byggðamálum
Björn sagði að gjarnan væri
horft til starfsemi Öldunnar
stéttarfélags í Skagafirði, þegar
þróttmikið félagsstarf innan
Starfsgreinasambands Íslands
væri á dagskrá. „Í gildandi
byggðaáætlun er talað um að
stuðlað verði að fjölbreyttum
atvinnutækifærum um land allt
með dreifingu starfa á vegum
ríkisins. Það er ekki nóg að setja
göfug markmið á blað, en standa
svo ekki við þau. Skagfirðingar
og Eyfirðingar þekkja ágætlega
umræðuna, þegar lagt er til að
flytja opinber störf út á land. Við
viljum byggja landið allt, og það
þýðir að dreifa verður opin-
berum störfum. Það segir sig
sjálft, ekki nægir að setja sér
göfug markmið í þessum efnum,
verkalýðshreyfingin hefur verk
að vinna í byggðamálum.
Skagfirðingar og Eyfirðingar
hafa sameiginlegra hagsmuna að
gæta og við eigum að íhuga
möguleikana á enn frekari
samvinnu í þessum málum,
verkalýðshreyfingin getur beitt
sér víða. Verkalýðshreyfingin á
að láta byggðamál sig varða,“
sagði Björn Snæbjörnsson í
ræðu sinni á Sauðárkróki. /KEP
Frestur veittur til að nálg-
ast eigur á læstu svæði
Hreinsunarátak á Hofsósi
Eins og Feykir hefur fjallað
um stendur Svf. Skaga-
fjörður fyrir sérstöku
hreinsunarátaki á Hofsósi.
Vegna verkfallsaðgerða og
annarra óviðráðanlegra
orsaka hefur það dregist að
farið yrði í hreinsun á
svæðinu sem um ræðir í
nágrenni frystihúss FISK
Seafood á Hofsósi.
Að sögn Sigríðar Magnús-
dóttur, sem er formaður
umhverfis- og samgöngu-
nefndar og formaður heil-
brigðiseftirlitsnefndar hjá Svf.
Skagafirði, verður þeim
munum sem fjarlægðir verða
af svæðinu komið í geymslu á
læstu svæði í 45 daga og
eigendum gefinn kostur á að
nálgast þá þar, gegn því að
greiddur verður kostnaður
vegna hreinsunar.
Þeir sem hyggjast nýta sér
það þurfa að setja sig í
samband við Ómar Kjart-
ansson hjá ÓK gáma-þjónustu
sem hefur lykla að svæðinu.
/KSE