Feykir - 07.05.2015, Síða 6
6 17/2015
Sólveig segist vera stolt dóttir
heiðurshjónanna Tóta og Helgu.
„Pabbi, Þórarinn Þórðarson, er
frá Ríp í Hegranesi og mamma,
Jakobína Helga Hjálmarsdóttir,
er frá Hólkoti í Unadal. Ég
er fædd á Akureyri 25. júní
árið 1980, á sama tíma og
þjóðin var að velja sér Vigdísi
Finnbogadóttur sem fyrsta
kvenforseta heimsins, þetta var
virkilega staðurinn og tíminn
til að koma í heiminn,“ sagði
Sólveig aðspurð um uppruna
sinn þegar Feykir spjallaði
við hana á dögunum.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Sólveig er gift æskuástinni frá
Króknum, honum Hólmari
Loga Sigmundssyni, flugmanni
hjá Landhelgisgæslu Íslands
en þau kynntust fyrir ríflega
20 árum í heimabænum. Þau
eiga saman þrjú börn; Karín
8 ára, Sólon 6 ára og Hákon 4
ára. Sólveig segir Karínu stunda
jóga í Hörðuvallaskóla. „Karín
stundar jóga í Hörðuvallaskóla
og þau eru öll mjög áhugasöm
og leika sér mikið á jógadýnunni
heima,“ segir Sólveig þegar
blaðamaður innir hana eftir því
hvort börnin séu líka farin að
stunda jóga.
Að loknu stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra lá leið Sólveigar í
höfuðborgina þar sem hún
lagði stund á viðskiptafræði í
Háskólanum í Reykjavík, sem
þá var nýr skóli. „Að loknu
B.Sc. námi við HR lánaðist
mér að fá starf á verðbréfasviði
Landsbankans, ég lauk
löggildingu í verðbréfamiðlun
2004 og starfaði sem gjaldeyris-
og afleiðumiðlari fram að
efnahagshruninu 2008. Ég tók
svo við afleiðunum sem skildar
voru eftir í Skilanefndinni
og kom þeim flestum í hús, á
sama tíma tók ég masterspróf
í stjórnun og stefnumótun
fyrirtækja í Háskóla Íslands. Ég
samdi svo um starfslok 2011
og snéri mér alfarið að jóga í
kjölfarið,“ rifjar Sólveig upp,
Jógakennarinn og viðskiptafræðingurinn Sólveig Þórarinsdóttir frá Sauðárkróki
er Skagfirðingur í húð og hár, ættuð úr Hegranesi og Unadal á Höfðaströnd. Hún
opnaði nýlega Sólir jóga og heilsusetur í Örfirisey og býður þar upp á fjölbreytta
þjónustu á sviði jóga heilsu. Sólveig er fædd á sama tíma og Vigdís
Finnbogadóttir var kosinn forseti og hvort sem það hefur haft áhrif eða ekki þá
er þarna greinilega á ferðinni athafnasöm kona sem lætur verkin tala.
aðspurð um frekara nám og
starfsferil.
Var engan veginn
móttækileg í upphafi
Sólveig segir að fyrsta reynsla
sín af jóga hafi verið meðgöngu-
jóga sem hún prófaði á sinni
fyrstu meðgöngu árið 2007.
„Ég var engan vegin móttækileg
á þeim tíma og tók ákvörðun
um að þetta væri ekkert
fyrir mig, heldur bara fyrir
„öðruvísi fólk“, hvað sem það
nú þýddi. En fyrir tilstuðlan
frænku minnar, Skagfirðingsins
Valdísar Sigurgeirsdóttur, ákvað
ég að prófa heitt jóga fáum
árum síðar. Ég kolféll fyrir því
og það var ekki aftur snúið, ég
náði mér í 500 klukkustunda
kennararéttindi í Asíu en ég hef
stundað jóga reglulega síðan
árið 2010,“ segir Sólveig.
Hún bætir því við að
fjölbreytileikinn í jóganu sé
alveg gríðarlegur og hún hafi
þá sýn að jóga sé fyrir alla.
„Galdurinn felst bara í því að
finna sér jógategund við sitt
hæfi. Ég hef ánægju af þeim
öllum en get ekki neitað því
að mér líður einstaklega vel
þegar ég næ þessum heilandi
og endurnærandi áhrifum sem
fást í heitu jóga. Einnig finnst
mér skemmtilegt og krefjandi
að stunda Ashtanga jóga, þar
sem ég vinn mest með aga og
kúnstina að sleppa tökunum.“
Sólveig segir alltaf hægt að bæta
á sig nýrri þekkingu varðandi
jóga: „Það er með þetta eins
og annað, maður verður aldrei
fullnuma en það er líka fegurðin
í fræðunum, að læra svo lengi
sem við lifum.“
Sólveig lét verkin tala
þegar hún opnaði Sólir jóga
og heilsusetur á Fiskislóð út á
Granda 25. apríl síðastliðinn.
„Við höfum fengið alveg
frábærar viðtökur og fullt
út úr húsi hjá okkur alla
daga. Við breyttum gömlu
fiskvinnsluhúsnæði og útkoman
er hreint út sagt frábær, töluvert
öðruvísi en það sem þekkist þar
en við höfðum endurnýtingu
á efnivið í bland við fallega
hönnun að leiðarljósi,“ segir
Sólveig um viðtökurnar.
Auk fjölmargra tegunda
af jóga er einnig boðið
upp á þjónustu eins og
næringarráðgjöf hjá Sólum
jóga og heilsusetri, sem og golf
jóga, sem kom blaðamanni
nýstárlega fyrir sjónir. Aðal-
næringarráðgjafi Sóla er
Elísabet Margeirsdóttir, sem er
mörgum kunnug fyrir afrek sín í
utanvegahlaupum. Sólveig segist
telja mikilvægt að bjóða upp
á vettvang þar sem fólk getur
nálgast allt sem tengist heilsu
á breiðum grundvelli, enda
Sólveig Þórarinsdóttir frá Sauðárkróki opnar nýja jógastöð syðra
„Jóga er fyrir alla, galdurinn
felst bara í því að finna sér
jógategund við sitt hæfi“
„Mér líður allra best í sveitinni hjá foreldrum mínum á Helgustöðum,“ segir Sólveig.
Sólveig, Hólmar og börn. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI
Hákon, Sólon og Karín.