Feykir - 09.07.2015, Qupperneq 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
á
BLS. 5
BLS. 10
Fanney Dögg og Elvar Logi
opna hestaleigu á
Hvammstanga
Smituðumst af
hestapest á
unga aldri
BLS. 6
Sóley Björk Guðmundsdóttir
kynnir nýtt smáforrit í
viðtali við Feyki
Lifandi landslag –
hulduheimar
Feykir spjallar við
Pétur Halldórsson um...
Barokkhátíð á
Hólum í Hjaltadal
26
TBL
9. júlí 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Fangaðu sumarið
Þú færð réttu
Canon græjuna í
Græjubúð
Tengils
Sameining hestamannafélaganna í
Skagafirði var samþykkt á
aukaaðalfundi sem haldinn var sl.
mánudagskvöld. Að sögn Jónínu
Stefánsdóttur formanns Stíganda
var gott hljóð í fundarmönnum en
þangað mættu 31 kosningabærir
félagsmenn.
Sameiningin var samþykkt með 25
atkvæðum með sameiningu en fimm
atkvæðum á móti. Einn var óákveðinn
og skilaði auðu. Jónína segir næstu skref
vera þau að nú setjast aðilar niður frá
öllum hestamannafélögunum, tveir frá
Léttfeta, tveir frá Stíganda og einn frá
Svaða, og hefja undirbúningsvinnu að
stofnun nýs félags. „Þeir fara í það
hlutverk að leggja drög að nýjum
samningi og nýjum lögum, auglýst
verður eftir nafni á nýju félagi og þess
háttar. Þegar þeirri undirbúningsvinnu
er lokið er áætlað að halda aðalfund
fljótlega eftir áramót og þá verður kjörin
stjórn,“ sagði Jónína um framhaldið í
samtali við Feyki. /KSE
>> Sjá framhald fréttar á bls. 2
Samgönguminjasafnið í Skagafirði hefur tekið til sýningar
nýuppgerðan Willis jeppa. Jeppinn var í eigu Sigurmons
Hartmannssonar frá Kolkuósi en hann keypti bílinn nýjan
árið 1962 og var í hans eigu alla tíð þar til hann kom í
Stóragerði.
Þegar jeppinn kom í eigu Sigurmons var bæði búið að lengja
bílinn og setja hús á hann, það var gert af Agli Vilhjálmssyni.
Hann stóð á verkstæðinu í Stóragerði í nokkur ár áður en
Gunnar Þórðarson byrjaði að gera hann upp árið 2014 en því
verkefni lauk vorið 2015. „Á Kolkuósi var bæði verslun og
sláturhús í gamla daga og byggði pabbi Sigurmons húsið. Þeir
voru framúrstefnumenn sem voru langt á undan sinni samtíð
og hugsuðu stórt. Fyrsti rúnturinn var að sjálfsögðu tekinn
heim í Kolkuós og gaman að segja frá því að húsið er líka
nýuppgert og kláraðist 2013,“ segir í fréttatilkynningu frá
safninu. /BÞ
Sameining hestamannafélagana samþykkt
Undirbúningur hefst að stofnun nýs félags
Fyrsti rúnturinn tekinn heim í Kolkuós
Gunnar Þórðarson við Willis-jeppann sem er nú til sýnis á Samgönguminjasafninu í Stóragerði. MYND: ÚR EINKASAFNI
Nýuppgerður Willis jeppi til sýningar á Samgönguminjasafni Skagafjarðar
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!