Feykir - 09.07.2015, Page 4
4 26/2015
Daníel Logi Heiðarsson er 13
ára júdókappi frá Blönduósi.
Foreldrar hans eru María
Jóhanna Van Dijk sjúkraþjálfari
og Sigfús Heiðar Árdal
sjúkraflutningamaður. Daníel
æfir fótbolta með Umf. Hvöt og
júdó með Pardusi með góðum
árangri og hefur m.a. orðið
Íslandsmeistari tvisvar sinnum.
Helstu íþróttaafrek: -Íslands-
meistari í júdó tvö ár í röð.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar ég var með pabba á
refaveiðum og sá tófuna koma í
ætið.
Uppáhalds íþróttamaður: -Edwin
van der Sar, Hollenskur mark-
maður
Ef þú mættir velja þér
andstæðing, hver myndi það vera
og í hvaða íþróttagrein myndu
þið spreyta ykkur? -Ronaldo í
fótbolta.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Ég mundi verja hjá
honum vítaspyrnu
Helstu afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Lifa af hvert einasta
skólaár.
Helsta fyrirmynd í lífinu: Pabbi því
að hann er svo góður veiðimaður
og ég ætla að verða það líka.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? - Vinna í unglingavinn-
unni, spila golf og veiða.
Hvað er framundan? -Utanlands
ferð með mömmu og bróðir mínum
og ferð í Vatnaskóg.
Daníel Logi Heiðarsson / júdó / fótbolti
Ætla að verða
góður veiðimaður
eins og pabbi
( GARPURINN ) berglind@feykir.isÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
Sannfærandi sigur
Stólanna á Hömrunum
1. deild kvenna í knattspyrnu
Stelpurnar í meistaraflokki
Tindastóls tóku hressilega á
móti Hömrunum frá Akureyri
sl. fimmtudagskvöld og sýndu
enga gestrisni í leiknum sem
fram fór á Sauðárkróksvelli í
kaldri Skarðagolunni.
Stólarnir voru betri allan
tímann og höfðu leikinn í
höndum sér enda fór svo að
gestirnir þurftu að hirða
boltann þrisvar úr markinu.
Þrátt fyrir að leika á móti
golunni var strax ljóst að
heimastúlkur voru líklegri til að
láta að sér kveða í leiknum enda
var ekki liðinn nema um 9
mínútur þegar Hugrún Páls-
dóttir skoraði laglegt mark eftir
góða sendingu Hrafnhildar
Björnsdóttur inn fyrir vörn
gestanna. Afgreiðslan hnitmið-
uð og markmaður átti ekki séns
á að verja. 1 – 0 og allt að gerast.
Seinni hálfleikur var rétt
hafinn þegar Hrafnhildur
Björnsdóttir fékk boltann vel
utan vítateigs og lét vaða á
markið og sveif hann yfir
markmann Hamranna sem
kom engum vörnum við. Um 10
mínútum síðar bætti hún við
öðru marki sínu, þriðja marki
Tindastóls, þegar hún tók
aukaspyrnu vel utan vítateigs
eftir að Kolbrún hafði verið felld
eftir enn eitt hlaup hennar upp
völlinn. Hrafnhildur ákvað að
láta vaða á markið enda með
blessaða goluna með sér og
uppskar laglegt mark eins og
áður sagði og úrslit urðu 3-0.
Með sigrinum eru Stóla-
stúlkurnar komnar með 10 stig
og söxuðu á forskot Hamranna
sem sitja í öðru sæti með 12 stig
eftir 5 leiki. Á toppnum trónir
Völsungur taplaus með 18 stig
en hefur spilað einum leik fleira.
Næsti leikur Stólastúlkna
verður háður laugardaginn 11.
júlí þegar neðsta lið riðilsins,
Höttur frá Egilsstöðum, kemur í
heimsókn. Óhætt er að hvetja
alla til á kíkja á völlinn og fylgjast
með stelpunum okkar leika
flottan fótbolta. /PF
Stefanía
hreppti silfrið
Frjálsar
Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum, fyrir 11-14
ára, fór fram á Selfossi
helgina 27.- 28. júní. Á vef
Tindastóls segir að um 240
keppendur hafi verið skráðir
til leiks, þar af fimm frá
UMSS.
Stefanía Hermannsdóttir
náði bestum árangri
Skagfirðinga á mótinu, en
hún varð í 2. sæti í spjótkasti
í flokki 12 ára stúlkna og
kastaði 24,13 m. Heimamenn
í HSK/Selfossi sigruðu með
yfirburðum í stigakeppni
mótsins, UFA varð í 2. sæti
og FH í 3. sæti. /BÞ
Einum
færri náðu
Stólarnir að
sigra Dalvík/
Reyni
2. deild karla
Tindastóll tók á móti Dalvík/
Reyni í 2. deild karla í
knattspyrnu sl. mánudags-
kvöld. Liðin skipuðu tvö
neðstu sæti deildarinnar
fyrir leikinn en Stólarnir lyftu
sér í 9. sætið með 1-0
baráttusigri.
Tindastólsmenn léku á
móti snörpum vindi í fyrri
hálfleik og voru óheppnir að
vera ekki yfir í hálfleik en
strákarnir fengu nokkur ágæt
færi eftir hornspyrnur en
markvörður gestanna átti
stórleik í markinu.
Staðan í hálfleik 0-0 og
snemma í síðari hálfleik fékk
Bjarni Smári Gíslason að líta
sitt annað gula spjald og var
því sendur í sturtu. Gestirnir
komust betur inn í leikinn í
kjölfarið en Stólarnir áttu
fínar skyndisóknir og í kjölfar
þeirra fleiri stórhættulegar
hornspyrnur. Það var loks á
74. mínútu sem Fannar Örn
Kolbeinsson kom boltanum
af harðfylgi í mark gestanna
við mikinn fögnuð samherja
sinna og hálf frosinna stuðn-
ingsmanna Tindastóls.
Eyfirðingarnir pressuðu
að marki Tindastóls undir
lokin en höfðu ekki erindi
sem erfiði. /ÓAB
Tindastólsstúlkur geysast í sókn.
MYND: PF
Stóðu sig stórvel
Norðurlandamótaröð barna- og unglinga
Annað mót Norðurlands-
mótaraðarinnar fór fram á
Arnarholtsvelli í Svarfaðardal
hjá Golfklúbbnum Hamri
Dalvík, sem fram fór sunnu-
daginn 5. júlí. Á heimasíðu
Golfklúbbs Sauðárkróks segir
að keppendur frá GSS hafi
hreppt fullt af verðlaunum og
stóðu sig öll stórvel á mótinu.
Mótið er kynjaskipt að venju.
Í byrjendaflokki sigraði Rebekka
og Una Karen varð í 2. sæti. Þá
varð Tómas í 2. sæti í
byrjendaflokki einnig. Í flokki 12
ára og yngri sigraði Anna Karen
og Reynir Bjarkan varð í 2.sæti
einnig í sama flokki. Í flokki 14
ára og yngri sigraði Hildur Heba
og Marianna varð í 3.sæti. Þá
varð Hákon Ingi í 3.sæti í sama
flokki. Þá fengu Gísli Kristjáns-
son og Hildur Heba Einarsdóttir
nándarverðlaun. Öll úrslit er að
finna á www.golf.is
Mótaröðin er fjögur mót. Það
fyrsta var á Sauðárkróki, annað á
Dalvík og þriðja verður á
Ólafsfirði 26. júlí. Lokamótið
verður síðan í september á
Akureyri þar sem Norðurlands-
meistarar í hverjum flokki verða
krýndir. /BÞ
Ungir skagfirskir golfarar fagna góðum árangri. MYND: GSS
Daníel Logi er tvöfaldur Íslandsmeistari í júdó. MYND: ÚR EINKASAFNI