Feykir - 09.07.2015, Qupperneq 5
26/2015 5
Sóley Björk Guðmunds-
dóttir er frumkvöðull
smáforritsins og heima-
VIÐTAL
Þóra Kristín Þórarinsdóttir
Tengir
bæjarheiti
eða örnefni í
Skagafirði við
þjóðsögur
Lifandi landslag – hulduheimar er nýtt smáforrit
síðunnar Lifandi landslag – hulduheimar sem slegið hefur
rækilega í gegn. Hún var með kynningu á Lummudögum
þar sem hún setti upp borð, bauð upp á jarðaber og dreifði
miðum á bæði íslensku og ensku til þeirra sem áttu leið hjá
og fræddi þar fólk um þessa spennandi afþreyingu.
Sóley Björk Guðmundsdóttir er
fædd og uppalin á Sauðárkróki,
er ættuð af Skaganum og
Húsavík en býr í Reykjavík
um þessar mundir. Hún er
frumkvöðull heimasíðunnar og
smáforritsins Lifandi landslag –
hulduheimar en almennt vinnur
hún við Iceland Monitor, enska
hluta mbl.is, þar sem hún sér um
viðburðasíðuna.
Foreldrar Sóleyjar eru Sig-
ríður Sigurjónsdóttir og Guð-
mundur Örn Ingólfsson, eða Sísí
og Gúndi eins og þau eru betur
þekkt. Þau bjuggu á Sauðárkróki
á meðan Sóley ólst upp en
fluttu svo til Danmerkur.
„Pabbi er sonur Olla
á Áka og Fjólu
ljósu ef
einhver
er að velta fyrir sér ættfræðinni.
Ég bý svo vel að því að eiga enn
heimili á Króknum, í Dalatúninu
hjá Jóhanni frænda og Hrönn.
Hinu heimilinu á suðurlandinu
deili ég með kærastanum
mínum Loga Fannari Sveins-
syni frá Víðimel.“ Sóley fór í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og eftir stúdent skellti
hún sér í BA nám í Þjóðfræði.
Þaðan fór hún í MA nám í
Hagnýtri Menningarmiðlun,
en Lifandi landslag er byggt á
meistararitgerðinni hennar.
„Þegar ég kláraði BA námið
ákvað ég að taka mér örlítið
námshlé. Ég ætlaði
að mennta
mig
frekar,
en
vantaði innblástur og var óviss
hvaða stefnu ég ætti að taka. Ég
sótti um vinnu hjá ferðaskrifstofu
og fór í viðtal. Þar fékk ég
spurninguna: „Hvernig getur
þjóðfræði nýst í ferðaþjónustu?“
Ég bablaði sjálfsagt eitthvað en
ég velti þessu fyrir mér á leiðinni
út. Hugmyndin tók svo á sig
skýra mynd í bílnum á leiðinni
heim. Ég ákvað að sleppa hléinu
og drífa masterinn af, og þá lá
einhvernvegin beinast við að
svara þessari spurningu og láta
reyna á að búa til smáforrit,“
segir Sóley aðspurð hvernig
hugmyndin að smáforriti hefði
kviknað.
Mikil vinna á bakvið
eitt svona forrit
„Ástæðan fyrir því að þjóðsögur
urðu fyrir valinu er ekki
bara sú að mér finnst þær
skemmtilegar, mig langaði að
deila þeim með fleirum. Ég
þekki marga sem eru ólíklegir til
að leita sér afþreyingar í bókum.
Hvað þá í 150 ára gömlum
þjóðsagnasöfnum. Það er ekki að
þeim þyki sögurnar leiðinlegar,
því þjóðsögur rata víða í
afþreyingarefni í nútímanum.
Þar má nefna söguna um
Mjallhvíti. Hún er upprunalega
þjóðsaga sem Grimms bræður
söfnuðu en hefur m.a. ratað
í Disney teiknimynd og svo
tvær stórar Hollywood myndir
bara á síðustu þremur árum.
Vandamálið er miðillinn. Það
sem Lifandi landslag gerir er að
koma þessum menningararfi í
miðil sem er líklegastur til að ná
til ungs fólks.“
Upphaflega hugmynd Sól-
eyjar var að nota einungis
þjóðsögurnar, en eftir heim-
sókn á skrifstofu Sveitarfél-
agsins ákvað hún að auka
efni forritsins og fá með sér
í lið menningarverkefnið Á
Sturlungaslóð. „Fyrst ég var
að búa til forritið á annað borð
fannst mér um að gera að bæta
við það efni til að gera það
ýtarlegra og betra. Á
Sturlungaslóð er líka
skemmtilegt og
vel unnið efni
sem bætir
miklu við
forritið. Síðar ákvað ég svo
að hafa þjónustu og hagnýtar
upplýsingar með en það eykur
enn frekar notkunargildi Lifandi
landslags. Það var heldur ekki vit
í öðru en að hafa forritið á ensku
líka, til að vekja athygli erlendra
ferðamanna á skagfirskum
menningararfi.“
En á bakvið eitt svona
forrit er gríðarlega mikil
vinna. Sérstaklega hvað varðar
þjóðsögurnar. „Hugmyndin er
eitt, en framkvæmdin annað.
Þegar ég byrjaði var nær engin
þeirra til í öðru formi en í bók.
Ég þurfti að finna þær í gömlum
bókum, skanna þær inn, renna
þeim í gegnum forrit sem greindi
stafina, og lagfæra textann.
Svo ég tali nú ekki um vinnuna
við að hanna, sækja um styrki,
uppsetningu og ég veit ekki
hvað og hvað. En þetta er samt
sem áður búið að vera ótrúlega
skemmtilegt og lærdómsríkt
ferli.“ Sóleyju fannst ekkert vit í
öðru en að byrja í heimabyggð,
en einnig vildi hún skapa eitthvað
sem nýtist Skagafirði vegna
þess hversu mikið hann hefur
upp á að bjóða fyrir ferðamenn.
Það er mikið og gott starf í
ferðaþjónustu í Skagafirði, en
lengi má gott bæta. „Með Lifandi
landslagi er ég að leggja mitt á
vogaskálarnar til að vekja athygli
á svæðinu, sem og til að skemmta
heimamönnum. Lifandi landslag
er alls ekki bara fyrir ferðamenn,
það er skemmtileg afþreying
og frábær leið til að kynnast
Skagafirði enn betur. Efnið á
íslensku er svo yfirgripsmikið að
það er hægt að fara margar ferðir
um fjörðinn án þess að þurfa að
hlusta á og lesa sama efnið aftur.
Skemmtilegasti hlutinn er líklega
að nú get ég varla séð bæjarheiti
eða örnefni í Skagafirði án þess
að tengja það við þjóðsögu.“
„Þetta er framtíðin“
Forritið er frítt, enda er tilgang-
urinn að ná til sem flestra.
Sóley hannaði forritið á þá vegu
að notandinn er staðsettur á
korti af Skagafirði. Inn á kortið
eru merktir allir sögustaðir
þjóðsagna, Grettissögu og Sturl-
ungu í firðinum ásamt helstu
þjónustu- og afþreyingarstöðum.
Notandinn ýtir á merkið og fær
frekari upplýsingar, og sé þetta
saga getur hann lesið söguna
eða hlustað. „Allt efnið frá
Grettissögu og Sturlungu hefur
verið hljóðritað og tæplega
helmingur sagnanna, eða yfir 40
sögur. Þó sögurnar séu ekki allar
hljóðritaðar þá er þetta samt sem
áður mikið efni og afþreying.
Svo er stefnan að allar sögurnar
verði hljóðritaðar og komnar í
forritið fyrir næsta vor.“
Eins og áður kom fram var
Sóley með kynningu á verkefni
sínu á Lummudögum sem
voru haldnir á Sauðárkróki
25.–28. júní sl. „Ég var með
borð á Aðalgötunni með fullt
af bæklingum. Til að heilla
fólk til mín var ég með skál af
jarðaberjum sem ég bauð fólki og
á meðan það gæddi sér á berjum
sagði ég þeim frá forritinu og
heimasíðunni. Ég hef fengið
mjög jákvæð viðbrögð, og er
hæstánægð með það.“
Aðspurð hvort hún muni búa
til fleiri smáforrit í framtíðinni
segir Sóley það alls ekki vera
útilokað. „Þetta er framtíðin,
við verðum að horfast í augu
við það. Þetta er líklegasta leiðin
til að miðla efni til fólks sem er
um 35 ára og yngri. Þeim aldri
tilheyra kynslóðir sem leita ekki
langt eftir efni, heldur vilja fá það
beint upp í hendurnar - í símana
eða tölvurnar. Þetta á við flesta,
en alls ekki alla. Við getum ekki
búist við því að það breytist, eða
látið það fara í taugarnar á okkur.
Eina leiðin er að komast til móts
við þennan hóp með góðu efni
fyrir þann miðil sem virkar.
Þarna er ég alls ekki að tala niður
til neins, enda tilheyri ég þessari
kynslóð sjálf.“
Til að ná til sem flestra
má finna allt efnið inn á
heimasíðunni lifandilandslag.
is, en síðan virkar alveg eins og
forritið. Næsta skref er svo að gefa
út geisladisk með þjóðsögum,
en það gerist einhvern tíma
á næstu mánuðum. „Þetta er
mikið og skemmtilegt efni, og
því um að gera að það standi til
boða í ýmsum útgáfum svo að
sem flestir geti notið þess. Ég
hvet alla til að sækja forritið eða
kíkja inn á lifandilandslag.is,
og kynnast öllum þeim sögum
sem Skagafjörðurinn hefur að
geyma,“ segir Sóley að lokum.
MYND:
ÓLÍNA BJÖRK HJARTARDÓTTIR