Feykir - 09.07.2015, Síða 6
6 26/2015
Jóhanna og Karla umkringdar börnum.
Rætt við Garðar Jónsson á Melstað í Óslandshlíð
um raforkuverð í dreifbýli
FL Hestar opnaði á Hvammstanga
fyrir skemmstu en um er að
ræða hestaleigu sem er framtak
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
„Smituðumst
af hestapest á
unga aldri“
þeirra Elvars Loga Friðrikssonar og Fanneyjar Daggar
Indriðadóttur. Blaðamaður Feykis ræddi við parið sem
hefur lifað og hrærst í hestamennsku frá því þau muna
eftir sér og hafa nú fært út kvíarnar.
„Bæði byrjuðum við ung í
hestamennsku eða frá því að
við munum eftir okkur. Fanney
ólst upp á Móses gamla sem
var barnahestur í Grafarkoti
til margra ára og tók sín fyrstu
skref í keppni á honum. Sem
var afar þægilegt þar sem
hann var búinn að vera reið-
og keppnishestur eldri systra
hennar og kunni prógrammið
oft betur en knapinn. Á
Varmalæk var hestaleiga þannig
að þar voru margir hestar sem
börnin á bænum gátu leikið
sér á,“ segir Logi sem er frá
Varmalæk í Skagafirði, sonur
Lovísu Sveins, á Varmalæk og
Friðriks Rúnars Friðrikssonar
frá Laugarhvammi. Fanney
Dögg er frá Grafarkoti í Húna-
þingi vestra, dóttir Herdísar
Einarsdóttur og Indriða Karls-
sonar í Grafarkoti. „Bæði
fórum við að vinna við tamn-
ingar heima fyrir þegar við
vorum farin að notast í það
og seinna hjá fleiri góðum
tamningarmönnum. Þannig
að bæði smituðumst við af
hestapest á ungaaldri og það
virðist ekki vera nokkur leið
að finna lækningu við þessum
fjanda,“ segja þau og hlægja.
Fanney er stúdent frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og útskrifuð sem
reiðkennari frá Háskólanum
á Hólum og Logi hefur lokið
sveinsprófi í húsasmíði og er í
eilífðarnámi í söng, eins og hann
lýsir því sjálfur. Saman fluttu þau
á Hvammstanga árið 2013 og
eiga tveggja og hálfs árs dóttur,
Herdísi Erlu, og svo er einn lítill
á leiðinni. Þau hafa komið sér
upp aðstöðu undir starfsemi
sína í hesthúsahverfi bæjarins.
„Við keyptum lítið hesthús hér
í hverfinu og byggðum við það
á síðasta ári og erum komin
með pláss fyrir 23 hross. Við
höfum einnig aðgang að nýju
hesthúsi í hverfinu hjá Hrannari
Haraldssyni og foreldrum hans
þar sem hestaleigan er staðsett
hjá okkur,“ útskýra Fanney og
Logi. Þau hafa starfað saman
við tamningar í átta ár, ásamt
því sem Fanney hefur verið með
reiðkennslu fyrir æskulýðsstarfið
hjá Hestamannafélaginu Þyt
í nokkur ár og tekið að sér
hefðbundna reiðkennslu. Logi
hefur unnið við smíðar hjá
tengdapabba og tekið að sér
járningar, veislustjórn, söng- og
skemmtiatriði á þorrablótum,
sungið í jarðaförum og fleira
þessháttar. „Við erum alltaf
að reyna að finna okkur fleiri
tekjulindir inn í reksturinn
okkar og það var vinur okkar
hann Gúndi sem kom með
hugmyndina að hafa hestaleigu
á Hvammstanga og hvatti okkur
til þess að byrja með þetta,“ segir
Logi.
Hestaleigan
fer vel af stað
Þau segjast vera komin með átta
þæga og góða hesta sem eru
vanir börnum og byrjendum til
þess að bjóða fólki á bak á og fer
leigan vel af stað. „Við bjóðum
upp á 30 mínútna reiðkennslu
í reiðgerðinu, 1 klst. reiðtúr
og 2 klst. reiðtúr á reiðvegum
hverfisins þar sem er gott útsýni.
Einnig er reiðhöll hjá okkur sem
gefur okkur möguleika á að
færa hestaleiguna inn ef veður
er vont,“ útskýrir Fanney og
bætir við að það sé von þeirra
að hestaleigan vaxi og dafni
og ferðirnar verði fjölbreyttari.
Logi og Herdís Erla í reiðtúr. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Næsta vetur ætlum við að
hafa hesta inni fyrir börn
sem hafa ekki haft aðgang að
hestum hingað til þannig að
allir krakkar sem hafa áhuga
á hestinum geti tekið þátt í
Fanney Dögg Indriðadóttir og Elvar Logi
Friðriksson opna hestaleigu á Hvammstanga
barnastarfi hestamannafélagsins
næsta vetur. Einnig getum
við notað þessa hesta í aðra
reiðkennslu fyrir alla sem dettur
í hug að læra á hestinn. Það eru
margar hugmyndir hjá okkur
í sambandi við reiðkennslu og
ferðaþjónustu sem á eftir að
útfæra betur en kennsluferðir
og bara að kynna okkar frábæra
íslenska hest fyrir sem flestum
er það sem koma skal hjá okkur.
Við erum á því að tamningarfólk,
hrossaræktendur og ferðaþjón-
ustuaðilar eigi að vinna miklu
meira saman en verið hefur og
nota hestinn sem aðdráttarafl
fyrir útlendinga yfir vetrar-
tímann líka. Það er fullt af
tækifærum ef fólk vinnur saman
en kennsla og kynning á okkar
frábæra íslenska hesti fyrir sem
flesta er það sem koma skal hjá
okkur.“
Að lokum spyr blaðamaður
út í keppnismennsku þeirra
Fanneyjar og Loga sem þau
hafa stundað með góðum
árangri? „Keppni er alltaf að
verða stærri partur af okkar
hestamennsku og hefur það
gengið vel. En auðvitað er það
ekki það sem heldur okkur í
þessu heldur hesturinn sjálfur
og ólíkir karakterar sem maður
hefur kynnst í gegnum tíðina
sem verða svo góðir vinir okkar.
Og ekkert jafnast á við að vera í
hestaferð á góðum hesti í fallegri
náttúru.“ Fanney hefur gert það gott í keppnum. MYND: ÚR EINKASAFNI
Hressir strákar á námskeiði nú í sumar. MYND: ÚR EINKASAFNI