Feykir - 09.07.2015, Qupperneq 11
26/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
getur látið sig dreyma um heima og geima...
Spakmæli vikunnar
Ef þú heldur að öllum sé sama hvort að þú sért til, þá skaltu prófa
að sleppa því að borga af bílnum nokkrum sinnum. - Earl Wilson
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... sigarettukveikjarinn var fundinn upp á undan eldspýtunni?
... hjarta rækjunnar er í höfðinu?
... ef þú hnerrar of hraustlega geturðu rifbeinsbrotnað?
... meira en 50% jarðarbúa hafa aldrei hringt eða tekið við símtali?
... á meðalævi mun hver maður, á meðan hann sefur, borða 70
mismunandi pöddur og tíu köngulær?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha ... hehe ...
Bóndinn við bóndann: „Hvað átt þú margar kindur?“
Hinn bóndinn svarar: „Ég veit það ekki, í hvert sinn sem ég tel þær
þá sofna ég!“
Krossgáta
„Nei.“
Gunnar Ásgrímsson
Sauðárkróki
Feykir spyr...
Ert þú búin/n
að fara á
fótboltaleik í
sumar?
Spurt í Skagfirðingabúð
UMSJÓN thora@nyprent.is
„Nei, er ekki búinn að því.“
Hlynur Hallbjörnsson,
Sauðárkróki
fer eftir stærð teninganna (hjá
okkur eru bitarnir rúmlega sykur-
moli á stærð).
Þegar karöflur eru tilbúnar er
piparosturinn skorinn í bita og
settur út í pottinn (þá er búið að
hella vatninu af) og látinn vera í
smástund eða á meðan er verið að
græja salat/grænmeti. Síðan eru
kartöflurnar stappaðar eða hrærð-
ar með smá matarrjóma til að
bleyta smá í þeim.
Borið fram með hvítlaukssósu.
- - - - -
„Við skorum á þau hjón Áslaugu
Ottósdóttur og Sigurð Sverri
Ólaf Hallgrímsson frá Skaga-
strönd að vera næstu matgæð-
ingar.“
Verði ykkur að góðu!
„Uppskriftir
sem við elskum“
FORRÉTTUR
Ristað brauð með
reyktum laxi og
hunangssinnepssósu
Brauð
reyktur lax
Sósa:
3 tsk majónes
1 tsk hunang
1 tsk sinnep
Aðferð: Allt hrært vel saman sem
á að fara í sósuna, ristið brauðið
og setjið lax ofan á og sósuna þar á
eftir.
AÐALRÉTTUR
Grillaðar eða steiktar
kjúklingabringur
2-10 kjúklingabringur
(fer eftir hve margir eru í mat)
BBQ grillsósa frá Gaj P
Aðferð: Bringurnar settar í grill-
sósuna og látnar vera þar um 15-
30 mín. Þá er þær grillaðar eða
steiktar á pönnu.
Kartöflumús:
¾ gullauga
¼ sætar kartöflur
½ - 1 piparostur
smá matreiðslurjómi
eða mjólk
Ferskt salat:
Iceberg (skorið í ræmur)
paprika rauð
rauðlaukur
vínber
fetaostur
Aðferð:
Kartöflurnar eru skornar í teninga
og suðan látin koma upp, sjóðið á
meðan er verið að steikja eða grilla
bringurnar. Oft er nóg að láta
suðuna koma upp og leyfa
kartöflunum að vera í vatninu á
meðan er verið að elda bringurnar
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Hér kemur uppskriftin okkar
Eiríks sem við elskum, svo
einföld og fljótleg,“ segir
Jóhanna Sigurjónsdóttir en hún og Eiríkur Lýðsson frá
Skagaströnd eru matgæðingar vikunnar.
„Hjá mörgum er siður að hafa pizzu á föstudögum en hjá okkur
er kjúklingabringur í Gaj P. Við grillum yfirleitt bringurnar á grilli
úti en ef það snjóar mikið þá bara steikjum við þær á pönnu. “
Hanna og Eiríkur matreiða
Eiríkur og Hanna. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Ég ætlaði í gær,
en komst ekki.“
Sædís Bylgja Jónsdóttir,
Hegranesi
„Nei, engan.“
Dagmar Björg Rúnarsdóttir,
Sauðárkróki
Dagskrá Húnavöku komin á netið
Blönduós
Húnavaka 2015 verður dagana 16. – 19. júlí nk. og er
dagskráin komin á fésbókarsíðu hátíðarinnar. Nokkrir
hefðbundnir dagskrárliðir verða s.s. grill í gamla bænum,
Stóri fyrirtækjadagurinn, Mikróhúnninn, Blönduhlaup USAH
og brekkusöngur.
Nánar um dagskránna á fésbókarsíðu Húnavöku 2015. /BÞ