Feykir - 12.11.2015, Blaðsíða 5
43/2015 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Jou Costa til liðs við Tindastól
Nýr Spánverji tekur við körfuboltataumunum
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls hefur gengið frá
ráðningu á nýjum þjálfara
meistaraflokks en sem
kunnugt er var Finninn Pieti
Poikola leystur undan
samningi í október. Nýr
þjálfari liðsins er hinn 43 ára
gamli Spánverji, José María
Costa Gómez, en hann var
m.a. yfirþjálfari hjá Tenerife
Baloncesto með Israel
Martín, síðar þjálfara Tinda-
stóls, sem aðstoðarþjálfara.
Að sögn Stefáns Jónssonar,
formanns körfuknattleiksdeild-
ar Tindastóls, þekkir Jou Costa
talsvert til Tindastólsliðsins og
eru hugmyndir hans og Israel
Martin um margt líkar þegar
kemur að sportinu. Stefán tjáði
Feyki einnig að stjórn Kkd.
Tindastóls hefði verið búin að
þreifa talsvert fyrir sér á íslenska
þjálfaramarkaðnum en á end-
anum var tekin ákvörðun um að
leita út fyrir landsteinana.
Stólarnir særðir í
Ljónagryfjunni
Dominos-deildin í körfubolta
Tindastóll spilaði í síðustu
viku tvo leiki í Ljónagryfju
Njarðvíkinga. Fyrst féllu þeir
úr leik í bikarnum en máttu
svo lúta í parket í deildar-
leiknum sl. fimmtudag. Rétt
eins og fyrri leiknum var það
varnarleikur liðanna sem var
í fyrirrúmi, leikurinn æsi-
spennandi og að loknum
venjulegum leiktíma var
jafnt, 64-64. Njarðvíkingar
reykspóluðu yfir Stólana í
framlengingunni og sendu
strákana stigalausa heim á
Krók. Lokatölur 82-73.
Fyrsti leikhluti var jafn og að
honum loknum var staðan 17-
16 fyrir heimamenn í Njarðvík.
Njarðvíkingar náðu ágætu
forskoti strax í byrjun annars
leikhluta, gerðu fyrstu sjö
stigin og komust í 24-16. Þessi
leikhluti var slæmur hjá
Stólunum sem gerðu aðeins
átta stig í honum og Njarð-
víkingar höfðu yfir í hálfleik,
33-24.
Leikurinn var æsispenn-
andi í fjórða leikhluta, Stólarnir
yfirleitt þetta þremur til fimm
stigum yfir framan af en
heimavöllur heimamanna er
ekki kallaður Ljónagryfjan
fyrir ekki neitt og þeir komu til
baka. Logi Gunnars kom þeim
yfir, 64-62 en Helgi Viggós
jafnaði 64-64. Njarðvíkingar
náðu tveimur skotum á körfu
Tindastóls áður en tíminn
rann út en klikkuðu á báðum.
Framlengingin fór illa af
stað fyrir Stólana og þeir lentu
í því að elta heimamenn en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Stigahæstir voru Lewis með 23
stig og 14 fráköst og Helgi
Viggós með 16 og níu frk. /ÓAB
Jou Costa, sem er spreng-
lærður þjálfari, hóf þjálfara-
ferilinn árið 1997 og hefur að
mestu starfað í EBA og LEB
SILBER deildunum á Spáni með
CB Canarias (1997-2000 og
2004-2005), CB Tacoronte
(2006-2009) og Tenerife Balon-
cesto (2000-2001 og 2010-2012).
Hann var aðstoðarþjálfari hjá
Eiffel Towers í Hollandi en hefur
frá árinu 2012 verið stjórnandi
Soles æfingabúðanna í Mexíkó
og verið aðstoðarþjálfari hjá
atvinnumannaliðinu Soles de
Mexicali en liðið varð LNBP
meistari tímbilið 2014-2015.
Þá hefur hann starfað við
körfuboltann á öðrum sviðum.
Costa var á lausu þegar Tinda-
stólsmenn leituðu til hans, hafði
ráðgert ársfrí en varð ekki kápan
úr því klæðinu. Hann er væntan-
legur til landsins í vikunni. /ÓAB
Jou Costa. MYND: AF NETINU
Uppaldir Tindastólsmenn taka við liðinu
Stefán Arnar og Haukur Skúla þjálfa meistaraflokk Tindastóls í knattspyrnu
Skagfirðingarnir Stefán
Arnar Ómarsson og Haukur
Skúlason eru teknir við
þjálfun meistaraflokks karla
í knattspyrnu hjá Tindastóli.
Báðir eru þeir uppaldir
Tindastólsmenn en Haukur
hefur spilað með liðinu frá
1999 – 2007 og Stefán frá
2002 – 2010, auk þess sem
þeir hafa fengist við þjálfun
yngri flokka síðustu ár.
Feykir heyrði í þjálfurunum.
Þegar félagarnir eru spurðir
hvernig nýja starfið leggist í þá
segjast þeir vera fullir
tilhlökkunar. „Mikill spenn-
ingur og tilhlökkun hjá okkur
báðum og sérstaklega í ljósi
þess að við erum báðir miklir
Tindastólsmenn og uppaldir
hér,“ segir Haukur. Hann segir
æfingarnar byrjaðar af fullum
krafti. „Strákarnir verða í
Crossfit þjálfun hjá Ernu
Kristjánsdóttur og Sunnu
Björk Atladóttur. Síðan í fót-
bolta inni í Íþróttahúsinu og á
sparkvellinum.“
Talið berst að aðstöðu til
knattspyrnuiðkunar en Knatt-
spyrnudeild Tindastóls hefur
um nokkurt skeið kvartað
undan aðstöðuleysi og barist
fyrir bragarbót í þeim efnum.
„Krakkar eru og hafa verið að
flytja af svæðinu fyrr en ella,
vegna þess að aðstaða hér til að
stunda þeirra áhugamál við
viðunandi að-stæður er ekki
fyrir hendi. Þar sem Skaga-
fjörður er fjölmennasta sveitar-
félag landsins sem ekki er með
vetraraðstöðu fyrir knatt-
spyrnufólk viljum við hvetja þá
áfram sem koma að málum að
hér komi viðunnandi vetrar-
aðstaða eins fljótt og auðið er.
Meðan önnur sveitarfélög á
landinu eru mörg hver að skipta
um gervigras á sínum innan-
húss eða utanhúss völlum í
annað eða þriðja sinn þá bíðum
við enn hér eftir aðgerðum í
þessum málum,“ segir Stefán.
Hvað mannskap varðar
segjast þeir vonast til þess að
flestir heimastrákarnir sem
spiluðu með liðinu í fyrra taki
slaginn með þeim í 3. deildinni
næsta sumar. Enn sé óráðið
hvort erlendir leikmenn verði
fengnir til liðsins. „Það er
óráðið enn sem komið er en
ekki útilokað. Fer eftir því hvað
margir heimamenn halda
áfram og eru tilbúnir að æfa vel
og taka næsta skref í að verða
byrjunar-liðsleikmenn,“ svarar
Haukur.
Hann segir markmiðið vera
að gera vel í deildinni, einnig að
gefa þeim heimastrákum sem
æfa vel og bæta sig í vetur og
sumar tækifæri til að spreyta
sig. „Við vonumst eftir því að sjá
sem flesta á leikjum Tindastóls í
sumar, bæði á karla- og kvenna-
leikjum,“ segja þjálfararnir
Stefán og Haukur að lokum.
/BÞ
Stefán Arnar Ómarsson og Haukur Skúlason. MYND: TINDASTÓLL
Ýmsir
raforkumöguleikar
fyrir hendi
Reiknað er með að orka fyrir
álver að Hafurstöðum komi
meðal annas frá háhitasvæðum
á Norðurlandi og minni vatns-
aflsvirkjunum og hafa raforku-
framleiðendur lýst yfir vilja til að
vinna með Klöppum við orku-
öflun fyrir verkefnið. Varpaði
Ingvar upp eftirfarandi mögu-
leikum á raforkukostum fyrir
álverið, þar sem reiknað er með
að virkjað verði til að koma í
staðin fyir þá orku sem nú
framleidd í Blönduvirkjun.
Blönduvirkjun II 31 MW
Þeistareykir – Krafla (3x45MW) 135 MW
Aðrir raforkusalar 80-100 MW
Orkuþörf álvers 206 MW
Klappir og NFC stefna á að ljúka
hagkvæmnisathugun (Bankable
Feasibility Study) um leið og
gengið verður frá raforkusamn-
ingi fyrir álverið. Matsáætlun
vegna umhverfismats er tilbúin
til kynningar og unnið er að
rannsóknum og gagnaöflun
vegna umhverfismats. Heildar-
fjárfesting fyrsta áfanga er
áætluð 70 milljarðar íslenskra
króna eða 562 milljónir dollara.
Eigið fé er áætlað 21 milljarður
en útflutningstekjur 39 milljarð-
ar á ári. China Development
Bank (CDB) fjármagnar 70% af
heildarfjárfestingu og Sinosure
Insurance veitir orkusala fram-
kvæmda- og greiðslutryggingu.
Loks kom fram í máli Ingvars
að sveitarfélögin á Norðurlandi
vestra eru tilbúin til að hefja
innviða- og atvinnuuppbyggingu
á svæðinu. Þá hefur iðnaðar-
ráðuneytið undirritað samning
við öll sveitarfélögin á svæðinu,
nema Akrahrepp, sem hefur
ekki verið boðin þátttaka, um
aðstoð við að koma á fót
orkufrekum iðnaði á Norður-
landri vestra. „Bygging álvers í
Skagabyggð mun hafa varanleg
jákvæð áhrif á þróun byggðar á
Norðurlandi vestra,“ sagði
Ingvar að lokum í erindi sínu á
ársþingi SSNV.
Áformað er að Chinese Development
Bank (CDB) fjármagni 70% fram-
kvæmdanna og Sinosure Insurance
10% (eigið fé og lánsfé) og Klappir
ásamt kínverskum fjárfestingasjóði 20%
í formi eigin fjár.