Feykir - 12.11.2015, Blaðsíða 7
43/2015 7
Rysjótt veðurfar
Veðurklúbburinn á Dalbæ spáir fyrir nóvember
Þriðjudaginn 3. nóv. 2015
komu félagar í Veður-
klúbbnum á Dalbæ saman til
fundar. Fundurinn hófst kl.
14:00. Fundarmenn voru 16
talsins, sem er óvenju góð
mæting enda síðasta veður-
spá gengið með endemum
vel eftir og því engin ástæða
til annars en að vera stoltur
af þátttöku sinni í Veður-
klúbbnum á Dalbæ. Fund-
inum lauk kl. 14:25.
Nýtt tungl kviknar 11.
nóvember kl. 17:47 í suðvestri
og er það miðvikudagstungl.
Gert er ráð fyrir að veðurfar í
nóvember verði rysjótt. Heldur
verði mánuðurinn vindasam-
ari en var í október, ekki mikil
snjókoma, þó svo að smá
ofankomu gæti annað slagið.
Hitastig verður mjög vel við-
unandi miðað við árstíma.
Tilfinning fyrir mildum
vetri er enn til staðar, en nánari
upplýsingar um hvern mánuð
fyrir sig verða gefnar síðar.
Með góðri kveðju úr
haustblíðunni,
Veðurklúbburinn á Dalbæ
Fjölsótt ráðstefna um
upplýsingatækni í skólastarfi
Ingvi Hrannar og Margrét Björk stóðu fyrir vinnu- og menntabúðum á Sauðárkróki
Vinnu- og menntabúðir um
upplýsingatækni í skólastarfi
fóru fram á Sauðárkróki
dagana 6. og 7. nóvember.
Þetta var í fyrsta sinn sem slík
ráðstefna var haldin hérlendis
og tókst afar vel til að mati
skipuleggjendanna Ingva
Hrannars Ómarssonar,
sérfræðings í skólaþróun og
kennsluráðgjafi í upplýsinga-
og tæknimálum í Svf.
Skagafirði, og Margrétar
Bjarkar Arnardóttur, náms- og
starfsráðgjafa við Árskóla á
Sauðárkróki.
Ingvi Hrannar segir hugmyndina
hafa kviknað á síðasta ári en
mikil þörf hefur verið á um-
ræðuvettvangi um upplýsinga-
tækni í skólastarfi. „Það er svo
mikil gróska í upplýsingatækn-
inni og í skólastarfi, svo er
upplýsingatækni eitt og upplýs-
ingatækni í skólastarfi í raun allt
annað. Það eru til fullt af tækjum
og tólum en hvernig notum við
þau í skólastarfi og hvernig nýtist
það – það er stóra spurningin.
Til hvers erum við að nota þetta
og af hverju notum við þetta en
ekki hitt?“ útskýrir Ingvi
Hrannar. Hann segir að þessi
umræða hafi að mestu farið
fram í netheimum fram til þessa,
til dæmis í umræðuhópum á
Twitter, s.s. Menntaspjalli, og
líka í ýmsum Facebook-hópum
en það vantaði einhvern stað
fyrir fólk til þess að koma saman
og ræða þessi atriði. „Þá datt
okkur í hug að halda þessa
ráðstefnu og tengja þetta fólk
sem hittist alltaf á skjánum, fólk
sem þekkir bara Twitter mynd-
irnar hjá hvort öðru,“ segir Ingvi
Hrannar. Á ráðstefnuna komu
oddarnir í skólaþróun á upplýs-
ingatækni en Ingvi Hrannar
segir færri hafa komist að en
vildu, vegna skorts á gistirými á
Sauðárkróki, 63 komu á ráð-
stefnuna og 40 voru á biðlista.
„Frábært að fá tíma
til að kynnast öðrum sem
eru með sömu áhugamál“
Á meðal dagskrárliða var
skoðunarferð um Árskóla og
farið í Fab lab í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra. Þá var farið
í vinnustofur þar sem rætt var
um smáforritin; iBooks Author,
Nearpod og GAFE - Google
Apps For Education og haldnar
voru menntabúðir þar sem
þátttakendum var gefinn kostur
á að velja sér umfjöllunarefni.
„Við settum upp blöð með
upplýsingum um hvaða stofur
væru lausar. Hver sem var gat þá
skrifað á miða hvað það var sem
þau vildu segja eða ræða um; til
dæmis var rætt um námstækni
21. aldarinnar, Office 365 og á
einum stað Mystery skype, sem
nýtist í tungumálakennslu og í
samfélags- og landafræði. Þá
tengir kennari bekkinn sinn við
annan bekk annars staðar í
heiminum. Nemendurnir spyrja
ýmissa spurninga til að finna út
hvar hinir eru staddir, t.d. er kalt
hjá ykkur eða búa fleiri en
milljón í landinu?“ útlistar Ingvi
Hrannar um fjölbreytt við-
fangsefni menntabúðanna. Að
lokum var samantekt og mál-
þinginu slitið.
„Ráðstefnan tókst rosalega
vel. Allt gekk upp sem lagt var
upp með, bæði varðandi faglega
hlutann og þann praktíska.
Þátttakendur höfðu á orði að
þetta væri vel skipulagt, góður
matur og að frábært væri að fá
tækifæri og tíma til að kynnast
öðrum sem sömu áhugamál,“
segir Margrét. Það sem stendur
uppúr í hennar huga er
tengslanetið sem myndaðist og
möguleikinn á að fara í dýptina
með eitt ákveðið viðfangsefni.
„Við undirbúning svona ráð-
stefnu er að mörgu að hyggja og
mikilvægt að þakka þeim sem
tóku þátt í þessu með okkur.
Bakaríið, Hard Wok og Drangey
Restaurant sáu til þess að við
fengum nóg að borða og Hótel
Tindastóll og Gistiheimilið
Mikligarður hugsuðu vel um
gestina okkar. Síðast en ekki síst
má þakka stjórnendum og
starfsfólki Árskóla fyrir frábærar
móttökur og velvilja í garð
verkefnisins,“ segir Margrét og
bætir við að ráðstefnugestir hafi
haft sérstaklega orð á hvað það
væri frábært að fá tækifæri til
þess að fá að skoða skólann, hitta
nemendur og starfsfólk og fá að
sjá og heyra hvað er verið að gera
í Árskóla. „Eins og staðan er í
dag erum við farin að huga að
UTís 2016. Það er von okkar að
þetta verði árlegur viðburður í
Skagafirði og sniðið með svip-
uðum hætti og var um helgina,“
segir Margrét að lokum.
Ingvi Hrannar og Margrét á ráðstefnunni. MYND: ÁLFHILDUR LEIFSDÓTTIR
Góð mæting á ráðstefnuna. MYND: INGVI HRANNAR
UMFJÖLLUN
Berglind ÞorsteinsdóttirJákvæð rekstrarniðurstaða
undanfarin þrjú ár
Nes Listamiðstöð á Skagaströnd
Stjórn Nes Listamiðstöðvar
hefur einnig ákveðið að
ráðast í stefnumótun fyrir
listamiðstöðina. Njörður
Sigurjónsson sérfræðingur
frá Háskólanum í Bifröst
hefur verið ráðinn til þess að
stjórna þeirri vinnu,
samkvæmt fréttatilkynningu
frá stjórninni. Markmið
stefnumótunarinnar er í
raun að greina núverandi
hlutverk félagsins og marka
því stefnu til komandi ára.
„Nes Listamiðstöð hefur verið
starfrækt frá árinu 2008 og
hefur gengið í gegnum
ýmislegt í rekstri sínum frá
stofnun. Það er vissulega
eðlilegt að ný starfsemi geti átt
erfitt uppdráttar fyrstu árin og
ákveðið gleðiefni að á síðustu
tveimur árum hefur verið
meiri stöðugleiki í rekstri lista-
miðstöðvarinnar og ánægju-
legt að segja frá því að undan-
farin þrjú ár hefur hún skilað
jákvæðri rekstrarniðurstöðu.
Horfur eru einnig nokkuð
góðar því allt komandi ár er að
mestu fullbókað,“ segir
Halldór Ólafsson formaður
stjórnar, í tilkynningu frá
listamiðstöðinni. „Í sumar var
tekin nokkuð stór stefnumark-
andi ákvörðun þegar stjórn
félagsins samþykkti að kaupa
efri hæð Fellsbrautar 2. Kaupin
voru gerð til að hýsa þá lista-
menn sem eru gestir Nes
Listamiðstöðvar á hverjum
tíma,“ segir Halldór. Ennfrem-
ur segir að kaupin hafi verið
fjármögnuð með eigin fé og
lántöku í Landbankanum og
að stjórnin telji að þessi
ráðstöfun muni létta rekstur
félagsins, m.a. í ljósi þess að
sagt hefur verið upp leigu á
þremur íbúðum sem áður
voru notaðar í þessum tilgangi.
Halldór, og aðrir stjórnarmeð-
limir Nes listamiðstöðvar, vilja
koma á framfæri þökkum til
þeirra sem hafa beint og óbeint
stutt við þetta óvenjulega verk-
efni og þannig hjálpað til að
gera það að frumkvöðlaverk-
efni sem litið er til víða um land.
„Hvar liggja tækifærin og
hverjar eru ógnanirnar?“
Sem fyrr segir hefur verið
ákveðið að ráðast í stefnu-
mótun fyrir listamiðstöðina til
að greina núverandi hlutverk
félagsins og marka því stefnu
til komandi ára. Nes Lista-
miðstöð boðar til opins fundar
í dag, 12. nóvember, á
veitingastaðnum Borginni.
Fundurinn hefst kl 18:00 og er
áætlað að hann standi til 21:00
með hléi þar sem boðið verður
upp á súpu, brauð og kaffi.
„Markmið fundarins er að gefa
fólki úr nærsamfélagi
listamiðstöðvar-innar tækifæri
á að taka þátt í að marka
félaginu stefnu til næstu 5-10
ára. Hvað er vel gert, hvað má
betur fara? Hvar liggja
tækifærin og hverjar eru
ógnanirnar?“ segir í tilkynn-
ingu. Fundinum stjórnar
Njörður Sigurjónsson, dósent
frá Háskólanum í Bifröst.
„Bæjarbúar og nærsveitamenn
eru hvattir til að mæta og taka
þátt í skemmtilegu verkefni,“
segir í tilkynningu frá stjórn
Nes Listamiðstöðvar. /BÞ