Feykir - 12.11.2015, Side 11
43/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti farið að
skrifa á jólakortin.
Spakmæli vikunnar
Ljóð er sannleikur í sparifötum. - Joseph Raux
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... þegar Lord Byron fór í Cambridge háskóla þá var honum bannað
að hafa með sér hund þar sem reglur skólans leyfðu það ekki. Þá
mætti hann með skógarbjörn enda ekkert í reglum skólans sem
bannaði það.
... leikarinn Gary Busey neitaði að leika í senu sem átti að gerast í
himnaríki fyrr en þeir sem gerðu leikmyndina gerðu hana rétt.
Þannig var mál með vexti að Busey hafði verið við það að deyja
árið 1988 og var þess fullviss að hafa heimsótt himnaríki. Hann vildi
því að sjálfsögðu að sýn hans yrði fylgt eftir og samkvæmt honum
þá var sófasettið alls ekki eins og það átti að vera og það varð að
fjarlægja all spegla – enda engir speglar í himnaríki.
Hahahahaha ... hehe ...
Hvað sagði ljóskan þegar hún sá Cheerios hringina?
- Nei, sko, kleinuhringsfræ.
Krossgáta
„Ekki í ár,
því miður“
Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
Feykir spyr...
Á að skella sér á
jólahlaðborð?
Spurt á Facebook
UMSJÓN siggag@nyprent.is
EFTIRRÉTTUR
Ostakaka með Nóa
kroppi og hindberjasósu
250 g Nóa kropp
6 dl þeyttur rjómi
300 g rjómaostur
180 gr flórsykur
1 og ½ tsk vanilludropar
400 gr frosin hindber
2-3 msk hrásykur
Aðferð: Þessi er í uppáhaldi hjá
okkur. Setjið Nóa kropp í eldfast
mót eða annað fat og kremjið
kúlurnar gróflega með flötum
botni á glerglasi. Hrærið rjómaost,
flórsykur og vanilludropa saman í
skál og blandið þeyttum rjóma vel
og vandlega saman við. Smyrjið
ostablöndunni jafnt yfir Nóa
kroppið og kælið.
Afþýðið hindberin í örbylgjuofni
til þess að flýta fyrir og sjóðið í
potti ásamt hrásykri. Látið krauma
við vægan hita í 5-10 mínútur.
Sigtið sósuna á meðan hún er heit
og kælið. Hellið hindberjasósunni
yfir ostakökuna og smyrjið henni
jafnt á með skeið.
Kakan er best þegar hún hefur
fengið að dvelja í frysti í 3-4
klukkustundir eða yfir nótt í
ísskáp.
Verði ykkur að góðu!
Við ætlum að skora á vini okkar
Árna og Giggu (Þorgerður Þóra
Hlynsdóttir og Árni Halldór
Eðvarðsson) að töfra fram eitt-
hvað rosa gott.
Lambaskankar
og ostakaka með
Nóa kroppi og
hindberjasósu
AÐALRÉTTUR
Lambaskankar með
rótargrænmeti
2 lambaskankar
salt
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
3 gulrætur, saxaðar
2 sellerístilkar, saxaðir
4 kartöflur, skornar í fernt
1 hvítlauksrif, pressað
300 ml vatn + 1 lambateningur
1 tsk timíankrydd
½ tsk rósmarínkrydd
1 tsk oreganókrydd
1 lárviðarlauf
Aðferð: Kryddið lambaskankana
með salti, setjið ólívuolíu á pönnu
og brúnið kjötið á öllum hliðum.
Takið af pönnunni og geymið.
Steikið lauk, gulrót og sellerí á
pönnu í um fjórar mínútur og
hrærið reglulega í. Bætið kartöflum
saman við og eldið í aðrar tvær
mínútur. Bætið því næst hvítlauk,
lambaskönkum og kryddið saman
við og látið malla í 2 mínútur.
Bætið kjötkraftinum saman við
og látið malla. Setjið í ofnfast mót
með loki og látið í 150°C heitan
ofn í um 1- 1½ klst, eða þar til
kjötið er fulleldað en mjúkt (notið
kjöt-hitamæli til að ofelda það
ekki. Skerið kjötið niður og blandið
saman við grænmetið. Berið fram
með kartöflumús og góðu salati.
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við þökkum Georg og
Sigurlaugu kærlega fyrir
áskorunina. Þar sem við erum
ekkert mikið fyrir að flækja hlutina þegar kemur að
eldamennsku þá eru þessir réttir í uppáhaldi hjá okkur. Við
mælum klárlega með því að þið prófið þessa rétti,“ segja
matgæðingarnir Ástrós Villa Vilhelmsdóttir og Guðni Már
Lýðsson á Skagaströnd.
Þau ætla að bjóða upp á Lambaskanka með rótargrænmeti og
ostaköku með Nóa kroppi og hindberjasósu í eftirrétt.
Ástrós Villa og Guðni Már matreiða
„Nei, ekki þetta árið.“
Sigríður Valgarðsdóttir
„Já, ég fer á jólahlaðborð
í Varmahlíð,
hlakka mikið til.“
Helgi Freyr Margeirsson
„Er í fæðingarorlofi þannig
að ætli ég sleppi ekki þessu
ári og taki næsta
með trompi.“
Gyða Mjöll Níelsdóttir
Ástrós Villa og Guðni Már. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Nei, fer ekki í ár.“
Viktor Guðmundsson