Feykir - 17.03.2016, Blaðsíða 2
2 11/2016
Síðastliðinn þriðjudag fékk ég boð í hóp á Facebook sem
stofnaður hefur verið í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því ég
og fleiri meðlimir þessa hóps bjuggum og störfuðum saman
á hóteli í Bournemouth á Englandi og er verið að skipuleggja
hitting í tilefni þessara tímamóta. „20 ár - getur það verið að
það sé liðinn svona langur tími?!“ spurði ég sjálfa mig.
Tilhugsunin fyllti mig strax af eftirvæntingu og spenningi að
hitta aftur félagana, sem koma frá mörgum Evrópulöndum,
einnig að rölta um götur
Bournemouth á ný og rifja upp
gamla tíma. Ótal minningar sóttu
á mig og smátt og smátt rann upp
fyrir mér að það sé kannski ekki
svo fjarri lagi að tveir áratugir séu
liðnir frá dvöl minni við
suðurströnd Englands. Árinu
sem mótaði mig á svo marga
vegu enda var ég að má segja rétt
skriðin úr grunnskóla þegar ég
flutti út í sjálf-stæðisbaráttu
minni, um 17 ára aldurinn.
Margt hefur breyst á þessum
áratugum en þetta var fyrir tíma
almennrar farsímanotkunar og internetsins að nokkru ráði. Ég
man þegar ég sat við fax-vélina og beið eftir bréfi frá vinkonu
minni og svo auðvitað dásamlegu sendibréfunum sem komu
með póstinum. Þá man ég hvað það var mikil bylting þegar
tölva með Microsoft stýrikerfi var tekin í gagnið á hótelinu en
ekki DOS! Ég man þegar ég horfði stolt á Pál Óskar hneyksla
heiminn í Eurovision keppninni sem sýnd var í breska
sjónvarpinu og ófáum ferðum á skemmtistaði þar sem lög eins
og á „Come on Eyleen“ voru spiluð í gríð og erg í bland við Blur
og Oasis. Þá minnist ég þess þegar ég, í sakleysi mínu, rölti eftir
götunni sem hótelið mitt stóð við og var stöðvuð af
lögreglumanni á einstaklega stórum hesti og spurði hvert
erindið mitt væri. Þá var ráðstefna í bænum og John Major
þáverandi forsætisráðherra gisti á nærliggjandi hóteli, lög-
reglumenn voru á hverju götuhorni og breitt hafði verið yfir
allar ruslafötur miðbæjarins. Á þeim tíma heyrðust annað
slagið fregnir af hryðjuverkaárásum IRA og því allur vari hafður
á, en sem betur fer var friðsamt í fallega bænum mínum.
Í dag er hótelið okkar, Winter Gardens hotel, ekki lengur til
en það var rifið fyrir nokkrum árum. Þar urðu til djúp
vináttutengsl og verður gaman að endurnýja kynnin nú þegar
við erum flest komin vel á fertugsaldurinn. Við áttum það flest
sameiginlegt að vera þar á eigin vegum til að bæta ensku-
kunnáttuna og að safna í reynslubankann. Þó það hafi á köflum
tekið á að standa á eigin fótum þá kom ég heim reynslunni
ríkari með fullan minningabanka, þrátt fyrir að ég hafi líka
komið heim með skyrbjúg af næringarskorti, þá var það alveg
þess virði. Áður en maður veit af eru áratugir liðnir hjá en
þannig týnist tíminn, eins og segir í laginu.
Berglind Þorsteinsdóttir, síung í hjarta
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Þegar John Major var
forsætisráðherra
Þakjárn og þakrennur
endurnýjaðar
Framkvæmdir við Félagsheimilið Bifröst
Framkvæmdir standa yfir í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki.
Samkvæmt upplýsingum frá Sveitarfélaginu Skagafirði er verið er
að endurnýja þakjárn og þakrennur, skipta út hluta borðaklæðn-
ingar ásamt því að bæta einangrun á þakinu. Verktakinn er K-Tak
ehf. /BÞ
Gleðilega
páska
Breytingar á útgáfudegi
frá 1. apríl nk.
Þetta 11. tölublað Feykis er
síðasta tölublað fyrir
páska. Ekkert blað kemur
út í páskavikunni. Feykir
kemur því næst út
fimmtudaginn 31. mars.
Verður það jafnframt í
síðasta skipti sem Feykir
kemur út á fimmtudögum.
Vegna breytinga á póst-
dreifingu Íslandspósts mun
blaðið frá og með apríl
næstkomandi koma út á
miðvikudögum. /KSE
Iðnaðarmenn að störfum á þaki Bifrastar. MYND: BÞ
Til samstarfs við Fjölnet
Nýr Landspítali ohf.
Nýr Landspítali ohf. og Fjölnet
hafa gert með sér samning
vegna reksturs tölvukerfa.
Samkvæmt samningnum tekur
Fjölnet að sér hýsingu og
rekstur á miðlægum kerfum
ásamt því að sjá um útstöðvar
fyrirtækisins. Starfsmenn Nýs
Landspítala fá einnig aðgang
að þjónustuveri Fjölnets.
Nýr Landspítali ohf. (NLSH)
er opinbert hlutafélag sem hefur
það að markmiði að standa að
nauðsynlegum undirbúningi og
láta bjóða út byggingu nýs
Landspítala við Hringbraut í
Reykjavík og semja um að ríkið
taki bygginguna á langtímaleigu
að útboði loknu.
Fjölnet er vaxandi tækni-
fyrirtæki sem sérhæfir sig í
hýsingu og rekstri tölvukerfa
Unnið er með gæða og
öryggisvottunina ISO 27001.
Fjölnet fagnar hinum nýja við-
skiptavini. /Fréttatilkynning
Frá vinstri á mynd: Sigurður Pálsson, rekstrarstjóri Fjölnet Reykjavík og Gunnar
Svavarsson NLSH handsala samninginn.
Fjólubláa
liðið leiðir
keppnina
Þriðja mótið í Hún-
vetnsku liðakeppninni
Þriðja keppniskvöld
vetrarins í Húnvetnsku
liðakeppninni var á
föstudagkvöldið. Keppt var
í fimmgangi í 1. og 2.
flokki, tölti T7 í barna-,
unglinga- og 3. flokki og
einnig í slaktaumatölti í
opnum flokki. „Frábært
kvöld og allir kátir,“ segir
í frétt á vefsíðu Þyts.
Fanney Dögg og Brúney
unnu sér inn rétt til að keppa í
slaktaumatölti í Meistarar
Meistaranna. Haffý og
Kolgerður unnu sér inn rétt til
þess að keppa í fimmgangi á
Meistarar Meistaranna.
Græna liðið sigraði kvöldið og
náði þannig að rétta úr
kútnum eftir að hafa vermt
neðsta sætið síðustu skipti og
skaut sér upp í annað sæti.
Staðan í liðakeppninni eftir
kvöldið er þannig að fjólubláa
liðið er efst með 195,27 stig, þá
græna liðið með 191,69 stig og
appelsínugula liðið með
190,84 stig. Nánari úrslit frá
kvöldinu er að finna á Feykir.
is undir Hestar. /KSE
Feykir.is
Þú finnur
þínar fréttir á
vefnum þínum
Á fundi sveitarstjórnar
Húnavatnshrepps í síðustu viku
var tekin fyrir umsókn um
stöðuleyfi Landsvirkjunar fyrir
tvær stöðvar til veðurfarslegra
athugana til að meta
möguleika á vindorkufram-
leiðslu á Norðurandi vestra.
Munu slíkar mælingar standa
yfir í um eitt ár. Um er að ræða
60 metra há möstur og gert er
ráð fyrir að önnur stöðin verði í
landi Steinár 2-3 og hin á
Auðkúluheiði.
Umsóknin var lögð fram til
kynningar á fundi sveitar-
stjórnar Húnavatnshrepps sl.
miðvikudag. Í henni kemur
fram að markmiðið með stöðv-
unum sé að mæla vindhraða og
aðra veðurfarslega þætti. Ekki
verði verulegt jarðrask af
framkvæmdunum og þær verði
að fullu afturkræfar.
Skipulags- og byggingar-
nefnd Húnavatnshrepps hefur
samþykkt stöðuleyfi fyrir báðar
mælistöðvarnar til eins árs.
Leyfi fyrir uppsetningu veður-
stöðvanna liggur fyrir frá
landeigendum. /KSE
Meta möguleika á
vindorkuframleiðslu
Landsvirkjun sækir um stöðuleyfi vegna veðurfarsmælinga
Ritstjóri Feykis á
sautjánda aldursári.