Feykir - 17.03.2016, Blaðsíða 3
11/2016 3
Árið er – tónleikasýning í
Sæluviku á Sauðárkróki
Spjallað við Sigurlaugu Vordísi og Áskel Heiðar
um nýjan viðburð í Sæluviku
Að sögn Sigurlaugar og Áskels
Heiðars verður sýningin í anda
hinna margverðlaunuðu „Árið
er“ heimildaþátta í útvarpi og
sjónvarpi þar sem áhorfendur fá
að kynnast sögunum á bakvið
lögin. „Þetta verður 20 laga
tónleikasýning og verður
kannski pínu eins og að vera
staddur inni í sjónvarpsþætti
með lifandi tónlist á sviðinu.
Við erum mest að vinna með
uppáhaldslögin okkar síðan við
vorum ung, sum verð flutt
óbreytt en önnur fá nýjan
búning. Fyrst og fremst viljum
við að fólk komi, syngi og dansi
með lögunum sem þjóðin hefur
lært að elska og gert að sínum,“
segir Áskell Heiðar.
Sigurlaug tekur undir og
segir hugmyndina bjóða upp á
ótal skemmtilegar útfærslur.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt
concept. Ég held að þetta verði
flott show, það koma allir saman
og eru í nostalgíunni og dansa
svo af sér rassinn þegar showið
er búið.“
Meðal þeirra sem stíga á svið
eru Magni Ásgeirs, Sigríður
Thorlacius en hún er röddin
sem les kynningarnar í „Árið
er…“ og því ómissandi hluti af
heildinni. Svo segja þau ekki
hægt að gera neitt nostalgíu-
tengt nema að hafa Siggu
Beinteins með. Þar að auki mun
skagfirskt tónlistarfólk koma
þar fram, verið er að negla það
niður þessa dagana en þau segja
af nógu að taka.
Þegar þau eru spurð hvernig
hugmyndin að viðburðinum
kviknaði segir Áskell Heiðar
hana sprottna frá Magnúsi Þór
Jónssyni skólastjóra í Seljaskóla,
og jafnframt gömlum skóla-
bróður Áskels Heiðars. „Hann á
þessa hugmynd að setja „Árið
er…“ á svið og talar við þá
Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaug
Jónsson, mennina á bak við
Edduverðlaunaþættina sem
slegið hafa í gegn í útvarpi og
sjónvarpi. Þeir taka vel í þetta
og fara af stað með þessa
hugmynd,“ segir hann um
hvernig boltinn fór af stað fyrir
u.þ.b. tveimur árum. Magnús og
Ásgeir munu annast handrits-
gerð og að setja saman video-
klippur fyrir skemmtunina,
Adam Smári Hermannsson sér
um tæknimálin og sviðið og
Magni Ásgeirsson er tónlistar-
stjóri og verður með full-
mannaða hljómsveit með sér.
„Þá kom þessi hugmynd að
vera með þetta í Sæluvikunni.
Við ræddum við Adam Smára
um að prófa svona Sæluviku-
sýningu með honum, hann er
með þessa umgjörð sem hann
var með í fyrra, sem var rosalega
flott. Svo þegar þessir miðaldra
karlmenn voru komnir saman
með þessa hugmynd í gang og
vildu fara að gera þetta þá
ákváðum við að kalla til Sillu,“
segir hann og brosir.
Sigurlaug segist hafa tekið
vel í það að taka að sér fram-
kvæmdastjórn sýningarinnar
enda segist hún sjálf eiga
fjölmargar góðar minningar frá
föstudagstónleikum í Sæluviku
en þar söng hún fyrst í Dægur-
lagakeppninni aðeins 14 ára
gömul. Með þessum viðburði
segist hún vonast til þess að þau
geti eflt Sæluvikuna enn frekar
og blásið auknu lífi í hana. Hún
vonast til þess að fólk kjósi að
taka Sæluvikuna fram yfir
annað og skipuleggi sig í
kringum hana, þá jafnvel að
draga með sér gesti og fjöl-
menna. „Það er frábært fyrir
fólk sem býr ekki á Króknum
eða í Skagafirði að geta komið á
föstudagskvöldið í nostalgíu-
partý. Svo er hægt að fara og sjá
Karlakórinn Heimi á laugar-
dagskvöldinu og svo á leik-
sýningu á sunnudaginn. Þetta
er Sæluvikuhelgin - menningar-
helgi Skagfirðinga,“ segir Sigur-
laug. Þau hvetja hópa til að
mæta og hafa gaman saman og
segjast þau opin fyrir því að gefa
hópafslætti t.d. fyrir sauma-
klúbba, vinnustaði, árganga og
fleiri. Þó miðasala sé ekki
formlega hafin þá er hægt að
hafa samband við Sigurlaugu
vegna þessa og sömuleiðis ef
einhverjir vilja panta borð.
Loks segjast þau gæla við þá
hugmynd að bjóða krökkum á
general-prufu fyrr um daginn
þegar allt er klárt fyrir showið,
líkt og tíðkaðist þegar
Dægurlagakeppni var á sínum
tíma. „Það er svo mikil
stemning fyrir krakkana að fá
að koma í rosa flottan sal og
kynnast þessum gömlu lögum -
lögunum sem mamma og pabbi
vönguðu við á árum áður,“
segja þau glöð í bragði.
Skjalasafn á Sauðárkróki
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða starfsmenn til skjalavörslu
í starfsstöð skjalasafns sendiskrifstofa á Sauðárkróki.
Helstu verkefni
• Útprentun skjala í málaskrá sendiskrifstofa utanríkisþjónustunnar og frágangur til varðveislu
• Pökkun skjala og skráning í geymsluskrá til afhendingar á Þjóðskjalasafn
• Leit, skönnun og sending skjala úr eldri skjalasöfnum sendiskrifstofa fyrir starfsmenn utanríkisþjónustunnar
• Frágangur, skönnun og skráning ljósmynda
• Skráning erinda í málaskrár sendiskrifstofa.
Kröfur til umsækjenda:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af almennum skrifstofustörfum, reynsla af skráningu skjala er kostur
• Mjög gott vald á íslensku
• Mjög góð kunnátta í ensku og kunnátta í Norðurlandamáli, kunnátta í frönsku og þýsku er kostur
• Góð tölvukunnátta, kostur að hafa reynslu af notkun GoPro
• Þjónustulund, samskiptalipurð, frumkvæði, færni til að vinna sjálfstætt og góð framkoma
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna stjórnarráðsins
og fjármála- og efnahagsráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2016.
Umsóknir skulu berast á netfangið umsokn@mfa.is, merkt „Skjalasafn 2016“.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til sækja um starfið.
Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Helga Hauksdóttir (helga.hauksdottir@utn.stjr.is)
og Anna Ósk Kolbeinsdóttir (anna.osk.kolbeinsdottir@utn.stjr.is).
Sýningin „Árið er… lögin sem lifa“ verður haldin í
Íþróttahúsinu á Sauðárkróki í Sæluviku, föstudaginn 29. apríl.
Þar verður íslensk dægurlagasaga flutt í tali og tónum af
landsþekktum söngvurum í bland við upprennandi stjörnur.
Fram koma meðal annarra Magni Ásgeirsson, Sigríður
Thorlacius, Sigríður Beinteinsdóttir og fjöldi skagfirskra
söngvara. Blaðamaður Feykis settist niður með Sigurlaugu
Vordísi Eysteinsdóttur framkvæmdastjóra sýningarinnar og
Áskeli Heiðari Ásgeirssyni hjá Viðburðarríkt ehf. og fékk að
heyra meira um Sæluvikuviðburðinn.
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Aðalgötu 14, s: 455 5544 Verið velkomin!
NÝTT-NÝTT
Hamingjukortin
eftir Sigríði Rut
Nýja OMAGGIO línan frá Kahler
er kominn - einnig vinsælu poppskálarnar
Fallegu púðarnir frá Lagði eru frábær fermingagjöf
-einnig sparibaukarnir frá Pomme-pidou
-kortaveski og fleira.
Fullt af nýjum páskablómum
Opið á pálmasunnudag kl. 13-15