Feykir - 17.03.2016, Qupperneq 11
11/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina gæti svo horft
til himins með höfuðið hátt...
Spakmæli vikunnar
Söngurinn lifir af allar ræður í minningunni.
- H. Giles
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Krossgáta
við. Þetta er fyllingin á milli
botnanna. Tertan er svo skreytt
með því sem eftir er af rjómanum,
ávöxtunum og súkkulaði kurlinu.
Við ætlum að senda keflið alla leið
inní Vesturárdal til vina okkar á
Kollafossi í Miðfirði, frumkvöðl-
anna Jóhannesar Gunnars Þor-
steinssonar og Arnfríðar Hönnu
Hreinsdóttur.
Verði ykkur að góðu
og gleðilega páska!
Hin klassíska
páskaterta
EFTIRRÉTTUR
Páskaterta
2 dl mjólk eða kaffi rjómi
1 ½ dl sykur
4 msk kakó
Hitið að suðu og hrærið í á meðan
það kólnar
100 gr smjör
1 dl sykur
1 msk vanillusykur
2 stk egg
3 ½ dl hveiti
2 tsk lyftiduft
Aðferð: Smjör, sykur og
vanillusykur hrært saman og
eggjunum bætt útí einu í einu.
Kakóblöndunni og þurrefnum
hellt útí til skiptis. Sett í djúpt
hringlaga form eða 2-3 grynnri
form (ca. 22 sm) bakað í 15 mín.
við 150°C og svo er hitinn
lækkaður smátt og smátt næstu 30
mín. þangað til þú ert kominn
niður í 100°C. Þessi bökunartími
miðast við eitt djúpt form. Ef vel
tekst til þá á maður að geta skorið
kökuna í þrjá botna.
Skreyting:
3-4 dl rjómi
1 pakki Royal vanillubúðingur
2 dl mjólk
½ ferskjur/apríkósur
ljóst súkkulaði kurl
Aðferð: Stífþeytið rjómann með
ögn af sykri. Hrærið búðing saman
við mjólkina og blandið saman
við helminginn af rjómanum.
Ferskjur/apríkósur skornar smátt
(ekki skera allar skiljið eitthvað
eftir í skraut) og blandað saman
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Matgæðingar síðustu viku,
Heiða Haralds og Böðvar
Friðriksson, reiddu fram
uppskriftir af dýrindis veislumáltíð í tilefni páskanna. Þá
birtum við uppskriftir af bleikjuterrínu með blaðlauks sósu í
forrétt og engiferfyllta önd með appelsínusósu í aðalrétt. Nú
birtum við uppskrift af eftirréttinum, hinni klassísku
páskatertu.
Heiða og Böðvar eru nýflutt á Hvammstanga, Böðvar starfar á
kúabúinu á Syðsta-Ósi, þaðan sem hann er, en Heiða vinnur við
umönnun á sjúkrahúsinu.
Heiða og Böðvar matreiða Feykir spyr...
Hvað ætlar
þú að fá þér
stórt páskaegg
í ár?
Spurt á Facebook
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Ég keypti Hraunegg nr. 5 1/2.
Er reyndar að verða búin með
það svo við hjónin erum búin að
panta Kólus bolta sem ég
veit ekki nr. hvað er.“
Katrín Sigmundsdóttir, Skeiðsfossi
„Ég fæ mér bara eitt pínu lítið
á stærð við hænuegg.“
Sylvía Magnúsdóttir,
Hlíðarenda
„Kærastinn bannar
páskaegg í ár!“
Lovísa Heiðrún, Sauðárkróki
„Stærsta páskaeggið
auðvitað! (Nr. 10)“
Stella Finbogadóttir, Sauðárkróki
Hahaha...
Hefurðu heyrt um Svíann sem læsti bíllyklana inni í bílnum?
Það tók sænsku lögguna yfir klukkutíma að ná
fjölskyldunni út úr bílnum...
Vissurðu að...
... stærsta snjókorn sem mælt hefur verið var um 38 sm í þvermál?
... árið 2008 uppgötvuðu vísindamenn nýja tegund af
bakteríum sem lifa í hárspreyi?
... það er óperuhús á landamærum Bandaríkjanna og Kanada þar sem
sviðið er í öðru landinu en helmingur áhorfenda í hinu?
Lesið af innlifun
Upplestrarkeppnin í Varmahlíðarskóla
Undankeppni Stóru
upplestrarkeppninnar fór
fram í Varmahlíðarskóla sl.
fimmtudag. Sextán efnilegir
upplesarar sem allir eru í 7.
bekk skólans tóku þátt og
bar lestur þeirra vott um
innlifun og vandvirkni, en þau
höfðu æft sig í nokkrar vikur
undir stjórn umsjónarkennara
bekkjarins, Sigrúnar
Benediktsdóttur.
Kynnar voru Jódís Helga
Káradóttir og Lilja Margrét
Óskarsdóttir, sem tóku þátt í
keppninni í fyrra. Nemendur
úr 5., 6. og 8. bekk fluttu
tónlistaratriði, þau Lydía
Einarsdóttir, Guðmundur
Smári Guðmundsson, Óskar
Aron Stefánsson og Gunnar
Einarsson.
Eftir erfitt val dómnefndar,
sem skipuð var þeim Gísla
Gunnarssyni, Ingibjörgu Haf-
stað og Kristínu Einarsdóttur,
skipuðu eftirfarandi fimm
efstu sætin. Fjögur þeirra
keppa lokahátíðinni sem
haldin verður á Sauðárkróki í
apríl, en sú fimmta skipar sæti
varamanns, æfir með hópnum
allan tímann og þarf að vera
tilbúin að hlaupa í skarðið ef
einhver forfallast: Jón Hjálmar
Ingimarsson, Erna Sigurlilja
Ólafsdóttir, Herdís Eir Sveins-
dóttir, Hafsteinn Máni Björns-
son og Sunna Sif Friðriks-
dóttir. /KSE
Frá Upplestrarkeppninni. MYND: KSE