Feykir - 31.03.2016, Blaðsíða 2
2 12/2016
Undanfarna daga og vikur hefur ég upplifað mig eilítið
afskipta fyrir þær sakir að enginn hefur komið að máli við
mig varðandi forsetaframboð, hvað þá heldur stofnað
fésbókarsíðu mér til hvatningar. Ég hef því losnað algjörlega
við þá kvöð á liggja undir feldi og hugsa málið, sem er svo
sem gott þar sem ég er frekar heitfeng manneskja.
Hins vegar var ég farin að upplifa
þessar aðstæður mínar sem
ákveðið einelti, í besti falli
útilokun, þar sem þorri
þjóðarinnar virðist annað hvort
vera á leið í framboð eða í það
minnsta að íhuga framboð.
Raunar veit maður afskaplega
lítið um þetta fólk, sem eflaust
hefur allt nokkuð til síns ágætis.
Sem er kannski eðlileg óvissa
meðan maður hefur raunar enga
yfirsýn yfir það hverjir eru í framboði og hverjir ekki. Það
styttist í kosningar og tímabært að fara að lesa sig til, svo maður
geti nú gert upp hug sinn þegar þar að kemur. Ég sé raunar fram
á að fyllast valkvíða, ég sem á erfitt með að panta mér mat af
matseðli, og sé fram á að valmöguleikarnir í forsetakosning-
unum verði síst færri en á meðal veitingahúsi.
Óneitanlega veltir maður fyrir sér hvað allt þetta fólk sé að
vilja upp á dekk. Þarf ekkert nema óbilandi sjálfstraust til að
fara í framboð? Eða jafnvel bara smá húmor? Að vísu dálítið
dýrt spaug, og við hin borgum brúsann. Erum við ekki svolítið
að gjaldfella embættið með þessum leik? Og er það bara allt í
lagi að einhver geti verið rétt kjörinn forseti lýðveldisins með
10-15% atkvæða? Þarf kannski að endurskoða lög um em-
bættið?
Spyr sú sem ekki veit og kannski er þetta bara öfundsýki yfir
því að vera ein fárra sem ekki eru til kallaðir. Að vísu gegndi ég
forsetaembætti fyrir rúmlega 20 árum, bara ekki sem forseti
lýðveldisins heldur sem forseti NFNV. Var það líklega
lærdómsríkara en nokkurt nám sem ég hef stundað fyrr og
síðar, þó þegnarnir væru um 500 en ekki 330.000. Ég var að vísu
ein í kjöri, ef ég man framboðsslaginn rétt!
Líklega hefur þetta embætti, sem ég lét af ári síðar, því minna
vægi á ferilskránni en hefði ég farið í það framboð sem nú er í
tísku. Kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að svo margir
sækjast eftir umræddum stól, það lítur vel út á ferilskránni að
hafa farið í framboð. Hver stólinn hreppir fyrir rest verður
spennandi að sjá og í öllu falli ættum við sem ekki tökum þátt í
þessum slag að geta fengið út úr þessu spennandi
kosningasjónvarp.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir,
blaðamaður
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Hinn eftirsótti forsetastóll Samið við
K-Tak ehf. um
framkvæmdir
Nýr vatnstankur á
Gránumóum
Fimmtudaginn 17. mars sl.
voru opnuð tilboð í nýjan
vatnstank og viðbyggingu
við lokahús á Gránumóum
á Sauðárkróki. Samkvæmt
fundargerð Veitunefndar
Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar bárust tvö tilboð í
verkið.
Tilboðin voru svohljóð-
andi:
Friðrik Jónsson ehf.
kr. 53.027.199.-
K-Tak ehf.
kr. 47.409.345.-
Kostnaðaráætlun,
Stoð ehf. 50.928.950.-
„Veitunefnd samþykkir að
gengið verði til samninga við
lægstbjóðanda, K-Tak ehf.,“
segir loks í fundargerð. /BÞ
Nýju ræsi komið fyrir
Vegur 75 í Hegranesi
Vegur númer 75 í Hegranesi í
Skagafirði var lokaður þann
17. mars þegar ræsi ryðgaði í
sundur og koma þurfti fyrir nýju
í stað hins gamla. Viðgerð
starfsmanna Vegagerðarinnar
stóð frá kl. 10 um morguninn
til kl. 19 um kvöldið.
„Við lentum í því í
leysingunum um daginn að það
ryðgaði í sundur ræsið þarna
sem var orðið yfir 20 ára gamalt.
Við urðum að rífa allt í sundur,
skipta um og setja nýtt,“ sagði
Víglundur Rúnar Pétursson
yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni.
Að sögn Rúnars brast stífla í
vatninu fyrir ofan Utanverðunes
sem olli töfum á verkinu. Mun
meira rennsli var á læknum en
vanalega og varð það til þess að
það fór að skola frá hólknum
sem var sundurryðgaður og illa
farinn.
Enn á eftir að leggja bundið
slitlag yfir veginn en til þess þarf
Starfsmenn Vegagerðarinnar að
störfum. MYND: EINAR GÍSLASON
Áróra var
Mjallhvít
Leiðrétting
Í umfjöllun um Mjallhvíti,
leikrit 10. bekkjar Árskóla,
síðasta Feyki kom fram að
það hafi verið Brynja Sif
Harðardóttir sem fór með
hlutverk Mjallhvítar, en hið
rétta er að Árórar Árna-
dóttir fór með hlutverk
Mjallhvítar.
Beðist er velvirðingar á
þessu. /BÞ
Feykir.is
Þú finnur
þínar fréttir á
vefnum þínum
Tekin hefur verið í notkun ný
deild við leikskólann Birkilund.
Á vef Svf. Skagafjarðar kemur
fram að deildin hafi hlotið
nafnið Reyniland og er staðsett
þar sem áður var pósthús í
Varmahlíð. Í dag eru átta börn
á Reynilandi ásamt starfsfólki.
Í október síðastliðnum
ákváðu Akrahreppur og Sveitar-
félagið Skagafjörður að bregðast
við brýnum vanda foreldra
ungra barna í Varmahlíð vegna
dagvistunarmála. Þá varð ljóst
að dagforeldri sem starfað hafði
á svæðinu myndi láta af
störfum. Hin nýja deild var
opnuð þann 17. mars og komu
fulltrúar úr stjórn foreldrafélags
Birkilundar og færðu leik-
skólanum gjafir. Þá var haldið
opið hús af þessu tilefni
þriðjudaginn 22. mars. Í frétt
sveitarfélagsins kemur fram að
verktakinn við framkvæmdirnar
hafi verið Trésmiðjan Borg og
liggur endanlegur kostnaður
ekki fyrir. Kostnaðurinn mun
skiptast á milli sveitarfélaganna
á svæðinu. Framkvæmdum við
lóð lýkur í vor með frágangi og
uppsetningu á leiktækjum sem
er verið að leita tilboða í. /BÞ
Ný leikskóladeild tekin til
notkunar í Varmahlíð
Leikskólinn Birkilundur
Útgáfudagar
Feykis á mið-
vikudögum
Breytingar á útgáfudegi
frá 1. apríl nk.
Þetta er í síðasta sinn sem
Feykir kemur út á
fimmtudegi.
Vegna breytinga á póst-
dreifingu Íslandspósts mun
blaðið frá og með 1. apríl
koma út á miðvikudögum.
/BÞ
að vera hiti og þýtt. Þangað til
verður malarstubbur yfir veginn
ásamt tilheyrandi merkingum.
Þegar hlýnar í veðri verða aðilar
fengnir frá Reykjavík til þess að
annast verkið. Eins þarf að setja
bundið slitlag á veginn við Stafá
í stað þess sem fauk af veginum
í vetur. „Það gerist ýmislegt
þegar það viðrar illa,“ sagði
Rúnar að lokum. /BÞ
Byggðarráð Sveitarfélagsins
mun óska eftir formlegu
samstarfi við ASÍ um
uppbyggingu á íbúðarhúsnæði
fyrir tekjulágar fjölskyldur og
einstaklinga. Þetta kemur fram
í fundargerð Byggðarráðs frá
17. mars sl.
„Í ljósi nýlegrar viljayfir-
lýsingar Alþýðusambands Ís-
lands og Reykjavíkurborgar um
uppbyggingu á íbúðarhúsnæði
fyrir tekjulágar fjölskyldur og
einstaklinga á næstu fjórum
árum, samþykkir byggðarráð að
óska eftir formlegu samstarfi
við ASÍ á sama grundvelli til að
bæta úr brýnum húsnæðisskorti
í Sveitarfélaginu Skagafirði,“
segir í fundargerð.
Loks segist Byggðarráð
fagna þessu framtaki ASÍ og er
sveitarstjóra falið að fylgja mál-
inu eftir af hálfu ráðsins. /KSE
Óska eftir samstarfi við ASÍ
Skagafjörður vill bæta úr brýnum húsnæðisskorti
Nýja leikskóladeildin er í gamla
pósthúsinu í Varmahlíð. MYND: BÞ