Feykir


Feykir - 31.03.2016, Side 11

Feykir - 31.03.2016, Side 11
12/2016 11 KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina ætti að fá sér rúgbrauð með lifrarkæfu... Spakmæli vikunnar Það er ekki ástin heldur afbrýðisemin sem vill fyrir hvern mun vita allt. - Frithiof Brandt Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is Krossgáta UPPSKRIFT III Súkkulaðidrykkur með Kahlúa 150 g Síríus 70% súkkulaði, fínsaxað 8 msk Kahlúa-líkjör 8 dl mjólk, heit Aðferð: Setjið súkkulaðið og Kahlúa-líkjörinn í könnu eða skál og hrærið saman. Hellið sjóðheitri mjólkinni saman við og hrærið þar til súkkulaðið er bráðið og hefur blandast saman við mjólkina. Skiptið drykknum jafnt í 4 meðal- stór glös. Skreytið t.d. með þeytt- um rjóma og rifnu súkkulaði. UPPSKRIFT IV Brownies með karamellukeimi 280 g Síríus Konsum 70% súkkulaði 3 egg 2 tsk vanilludropar 280 g púðursykur 80 g hveiti 1½ tsk lyftiduft ¼ tsk salt 200 g smjör, bráðið 200 g pekanhnetur Aðferð: Hitið ofninn í 170°C. Saxið allt súkkulaðið og bræðið helminginn af því yfir vatnsbaði. Þeytið egg, vanilludropa og púðursykur saman þar til blandan verður létt og ljós. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt og blandið verlega saman við. Blandið bræddu súkkulaði og smjör saman við deigið og hrærið varlega saman við. Smyrjið 20 sm x 30 sm fer- kantað kökuform vel og klæðið það að innan með bökunarpappír. Hellið deiginu í formið og bakið í 20-22 mínútur. Leyfið kökunni að kólna dálítið í forminu áður en hún er skorin í bita. Berið bitana fram volga með vanilluís eða þeyttum rjóma og berjum. Verði ykkur að góðu! Súkkulaði, súkkulaði og meira súkkulaði UPPSKRIFT I Rjómaís ½ l rjómi 4 egg 4 msk ljós púðursykur vanillusykur 100 g rjómasúkkulaði 1 msk kaffilíkjör Aðferð: Þeytið rjómann. Þeytið saman púðursykur og egg. Setjið rjómann og vanillusykurinn saman við. Brytjið súkkulaðið og setjið það út í. Frystið í fallegu formi. Sósa: 100 g rjómasúkkulaði 2 dl rjómi Aðferð: Bræðið súkkulaðið og rjómann saman við vægan hita eða í vatnsbaði og berið fram heitt með ísnum. Fyllt Síríus súkkulaði er einnig ljúffengt í svona sósu. UPPSKRIFT II Súkkulaðiskonsur 100 g Síríus Konsum suðusúkkulaði, grófsaxað 350 g hveiti (gæti þurft meira) 1½ tsk lyftiduft ½ tsk kardimommur, malaðar (má sleppa) 1 msk sykur 1 tsk salt 2 msk olía eða bráðið smjörlíki ½ dl mjólk 1½ dl sýrður rjómi, 10% 1 egg Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Blandið söxuðu súkkulaði, hveiti, lyftidufti, kardimommum, sykri og salti saman í skál. Þeytið olíu eða smjörlíki, mjólk, sýrðan rjóma og egg saman í annarri skál og blandið þessu saman við þurrefn- in. Hnoðið deigið vel saman og bætið við meira hveiti ef þarf. Rúllið deigið í pylsu og skerið hana í 6 sm langa bita. Raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu og bakið kökurnar í 10–12 mínútur, eða þar til þær eru fallega gullinbrúnar. MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is Nú eru flestir sennilega útbelgdir af súkkulaðiáti eftir páskana en ef svo ólíklega vill til að einhverjir eigi til páskaegg afgangs og vantar hugmyndir til að gera eitthvað gott úr þeim þá leggur Feykir til eftirfarandi uppskriftir af vefsíðu Nóa Siríus, noi.is. Sælkerar takið eftir! Feykir spyr... Hvað gerðir þú um páskana? Spurt á Facebook UMSJÓN berglind@feykir.is „Ég messaði þrisvar á páskadag, fór í heimsókn til mömmu og pabba á annan og endaði á að sjá glæsilega uppfærslu á Jesus Christ Superstar á Hvammstanga.“ Sigríður Gunnarsdóttir, Sauðárkróki „Fór með megnið af fjöl- skyldunni til Vestmannaeyja í tvö stórafmæli í fjölskyldunni. Alltaf gaman að koma þangað.“ Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Sauðárkróki „Fór í fermingu til Eskifjarðar á skírdag eftir það var ég í rólegheitum heima en sýndi tvö bíó á annan í páskum.“ Sigurbjörn Björnsson, Sauðárkróki „Páskunum var eytt hjá tengdó á Dalvík, skíðaæfingar og mót hjá þeim tíu ára og rólegheit hjá okkur hinum.“ Guðmann Jónasson, Blönduósi Hahaha... Af hverju skilaði Hafnfirðingurinn bindinu aftur í búðina? -Það var of þröngt um hálsinn. Vissurðu að... ... á Suðurheimsskautinu er jökull sem heitir Blóðfoss en hann gefur reglulega frá sér rauðan vökva, líkt og jöklinum blæði? ... að Rómverjar stunduðu það að þrífa og hvíta tennur sínar með hlandi? Þetta ku virka en í guðanna bænum ekki gera þetta! ... Vladimir Nabokov fann næstum því upp broskallinn?

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.