Feykir - 06.04.2016, Page 5
13/2016 5
Vorið er komið og grundirnar gróa
Tindastólsmenn komnir í fjögurra liða úrslit eftir frækna frammistöðu gegn Keflvíkingum
Það var boðið upp á
taumlausa skemmtun og
farsælan endi í Síkinu sl.
mánudagskvöld þegar
Keflvíkingar komu sperrtir til
leiks eftir að Stólarnir höfðu,
að sögn körfuboltaspekinga
landsins, kveikt neistann í
Keflvíkingum í þriðja leik
liðanna sem Suðurnesja-
mennirnir unnu örugglega. Sú
tíra var ekki lengi að slokkna
því leik var nánast lokið eftir
fyrsta leikhluta. Lokatölur í
Síkinu 98-68 fyrir Tinda-
stól sem hefur því tryggt sæti
sitt í fjögurra liða úrslitunum
með 3-1 sigri í rimmu liðanna.
Stemningin í Síkinu var hreint
geggjuð því hálftíma fyrir leik
var stúkan þéttsetin, aðeins
Keflvíkingar sem létu bíða eftir
sér. Þeir voru í fínu stuði þegar
þeir mættu og mikið gaman að
heyra stuðningsmannasveitir
liðanna kallast á á löngum
köflum allt kvöldið.
Eftir rúmar þrjár mínútur var
staðan orðin 13-3 og vörn
Tindastóls algjörlega mögnuð.
Helgi Viggós var í ham og allar
hreyfingar tímasettar upp á
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
„Stóra markmiðið sem loksins náðist“
Skagfirðingur Íslandsmeistari í Fitness
Skagfirðingurinn Elmar
Eysteinsson gerði sér lítið fyrir
og hreppti Íslandsmeistaratitli
í Fitness á fimmtudaginn var.
Feykir spjallaði við Elmar um
mótið, undirbúninginn og feril
hans í Fitness.
Hverra manna ertu? -Ég er sonur
Eysteins Steingrímssonar frá Laufhóli
og Aldísar Axelsdóttur frá Litlu-
Brekku. Þau búa núna á Laufhóli en
vinna bæði á Hólum, ásamt því að
vera með búskap.
Hvenær byrjaðir þú að taka þátt í
fitness? -Ég tók þátt á mínu fyrsta
móti árið 2012 en þá keppti ég í
unglingafitness. Mótið gekk ekkert
sérstaklega vel hjá mér en þá
kviknaði upp eldur innra með mér og
ég vissi nákvæmlega hvað mig
langaði til að gera. Það tókst síðan
núna næstum fjórum árum síðar.
Hefurðu keppt á mörgum mótum?
-Ég er búinn að keppa á fjórum
mótum samtals. Aldrei hefur mér
fundist ég ná að skila mínu besta fyrr
en núna en öll mótin sem ég keppti á
hafa hvatt mig áfram til þess að
leggja enn harðar að mér svo ég geti
náð markmiðum mínum.
Kom sigurinn á óvart? -Fyrir hvert
Elmar Eysteinsson. MYND: ICELAND FITNESS
einasta mót sem ég hef keppt á hef
ég alltaf stefnt á sigur og spáð mikið
í keppinautum mínum. Fyrir þetta
mót ákvað ég að leggja alla mínu
orku í að hugsa bara um mig og að
ég komi eins góður og ég mögulega
gæti verið. Ég væri að ljúga ef ég
segði að ég hefði ekki stefnt á sigur
fyrir þetta mót. Ég virkilega trúði því
að ég gæti unnið og það var mitt
markmið. Maður veit samt aldrei og
sérstaklega þegar maður keppir í
gríðarlega sterkum ellefu manna
flokki.
Tekurðu þátt í öðrum íþróttum?
-Nei, það geri ég ekki. Fitnessið tekur
allan minn tíma og rúmlega það. Ég
æfði körfubolta og knattspyrnu þegar
ég var yngri með Tindastól en það er
orðið langt síðan ég hætti. En maður
tekur nú stundum smá sprikl í
boltanum eins og Molduxamótið um
jólin og Jónsmessu-fótboltamótið á
Hofsósi og hef virkilega gaman af því.
Ertu búinn að setja þér ný markmið
í framhaldi af sigrinum? -Nei, þetta
var stóra markmiðið sem loksins
náðist. Næsta vika verður tekin í að
skoða og meta framhaldið og
möguleikana. Ég hef aðeins verið að
skoða mót utan landssteinana en
veit ekkert hvort það verði núna
fljótlega eða seinna. Sama hvað þá
er markmiðið að halda áfram að
bæta sig og gera enn betur en núna
um helgina, ég er bara rétt að byrja í
Ísólfur Líndal hefur tekið þátt
í KS-Deildinni frá upphafi, að
undanskyldu árinu í fyrra. Hann
er í liðinu Ísbess/ Hleðsla og
segir skipta sig mestu máli að
hann og hesturinn sem hann
keppir á í hvert skipti fari heim
sáttir hvor við annan.
Hver er maðurinn? Ég er 38 ára
bóndi í Húnaþingi vestra.
Hvaðan ertu? Ég er fæddur og
uppalinn á Lækjamóti og þar bý
ég nú með fjölskyldu minni, þeim
Vigdísi, Ísak Þóri og Guðmari.
Hefurðu tekið þátt í KS-
Deildinni áður? Já, ég hef verið
með í deildinni frá upphafi að
undanskildu síðasta ári.
Hvernig hefur það gengið? Það
hefur bara gengið vel í gegnum
tíðina, hef unnið hinar ýmsu
greinar og oft verið í úrslitum. Ég
vann deildina 2013 of 2014 sem
var mjög gaman.
Hvernig líst þér á KS deildina í ár?
Deildin er bara mjög skemmtileg.
Það er alltaf gaman að fylgjast
með ungum og efnilegum knöpum
og hestum sem eru að stíga sín
fyrstu skref á stóra sviðinu. Ásamt
því að sjá hvernig eldri og reyndari
hestar og menn koma stemmdir til
leiks.
Varstu sáttur við sæti þitt á
síðasta keppniskvöldi? Á síðasta
móti var töltið, þar endaði ég í öðru
sæti. Það sem skiptir mig mestu
máli er að ég og hesturinn sem ég
keppi á í hvert skipti förum heim
sáttir hvor við annan.
Hvaða hrossum teflir þú fram
í vetur? Á þau mót sem eftir eru
stefni ég á að koma með Gulltopp
frá Þjóðólfshaga II í gæðingafimi
og T2. Í skeiðið langar mig síðan
til að renna Korða frá Kanastöðum
sem er að koma til baka eftir
langvinn meiðsli.
Hverjir eru aðalkostir þeirra?
Gulltoppur er frábær hestur, sjálf-
berandi og skemmtilegur með
einstakan hæfileika til að bera sig
vel á slökum taum á tölti. Korði er
mjög fljótur á skeiði og elskar það.
Ætlar þú eða hefur þú tekið þátt í
öðrum keppnum í vetur? Já, ég hef
verið að keppa í Meistaradeildinni
fyrir sunnan í vetur.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá
þér fyrir keppni? Nei, ekkert
sérstakt.
Ísólfur Líndal
Vann KS-Deildina
2013 og 2014
( KNAPAKYNNING ) kristin@feykir.is
Jerome Hill finnur enga leið framhjá Helga Viggós og Darrel Lewis og þannig var
það lengstum á mánudaginn. Anthony Gurley og Helgi Margeirs fylgjast með úr
seilingarfjarlægð. MYND: ÓAB
þessu og hlakka mikið til að setja
mér ný markmið.
Eitthvað að lokum? -Þessari íþrótt
hefur alltaf fylgt mikið umtal um að
þeir sem stundi sportið noti stera og
ólögleg efni til þess að ná góðum
árangri. Ég get sagt með 100%
hreinni samvisku að ég hef aldrei
notast við nein ólögleg efni til þess að
ná árangri. Svo það sé alveg á hreinu
þá er ég ekki að saka einn né neinn
um að notast við þessi efni. En þegar
ég byrjaði fékk ég oft að heyra frá
ýmsum aðilum að ég myndi aldrei ná
neinum árangri í þessari íþrótt ef ég
ætlaði ekki að nota stera eða lyf til að
hjálpa mér og það væri það sem
þyrfti. Ástæðan fyrir því að ég er að
tala um þetta er sú að ég vil sýna að
þetta sé hægt á náttúrlegan og
góðan hátt og einnig vil ég vera
fyrirmynd fyrir aðra sem hafa áhuga á
að keppa og vilja fara sömu leið. Með
gríðarlegri vinnu, skipulagi og miklum
aga er allt hægt.
Ég vil þakka öllum sem hafa stutt
við bakið á mér í gegnum þetta ferli,
það er ekki hægt að fara einn í
gegnum þetta og maður þarf að eiga
góða fjölskyldu og vini að svo þetta
gangi. Að lokum vil ég minnast á
kærustuna mína hana Anítu Rós
Aradóttur sem hefur hjálpað mér
alveg gríðarlega mikið og stutt við
bakið á mér alveg síðan við fórum að
hittast fyrir um þremur árum síðan.
Hefði ekki getað þetta án hennar.
Hún er sjálf bikarmeistari í módel-
fitness ásamt því að hafa unnið
heildarstigakeppnina í þeim flokki og
veit því hvað þarf til þess að ná
árangri í þessari íþrótt. /KSE
sekúndubrot. Í sókn Stólanna
gekk nánast allt upp sömuleiðis
og það var helst að Lewis væri að
klikka í skotunum. Staðan að
loknum fyrsta leikhluta var 30-
11 og talnaglöggir menn voru
fljótir að framreikna það og
töldu það næsta víst að leikurinn
endaði 120-44.
Ekki gekk það nú alveg eftir
en í hálfleik var staðan 50-28 og
áfram héldu Stólarnir á fullri
ferð í þriðja leikhluta þar sem
Dempsey fór á kostum. Mest
náðu Tindastólsmenn 42 stiga
forystu í fjórða leikhluta en
gestirnir löguðu stöðuna aðeins í
blálokin. /ÓAB
Stig Tindastóls: Dempsey 20, Gurley 15,
Viðar 13, Pétur 12, Helgi Viggós 11, Lewis
10, Helgi Margeirs 9, Hannes 5 og Ingvi 3.