Feykir - 06.04.2016, Síða 8
8 13/2016
Edda Borg Stefánsdóttir frá
Sauðárkróki er nú búsett á Akureyri.
Hún er uppalin á Króknum, fædd
1991. „Ég er dóttir Stebba Gauks,
starfar sem töframaður í Loðskinn,
kenndur við Gauksstaði á Skaga,
og Ollu Dísar, dóttir Gígju og Árna
heitinna á Hólmagrund.“
Röddin er aðal hljóðfæri Eddu en
einnig spilar hún á píanó og gítar.
„Mig langar að læra á kontrabassa og
blásturshljóðfæri líka, það er alltaf hægt
að bæta við sig!“ segir hún eldhress.
Helsta afrekið í tónlistinni segir hún
einfaldlega hafa verið drífa sig loksins
til að semja og fara í söngnám. Ég tek
grunnpróf í Tónlistarskóla Akureyrar
núna í apríl. Annars var auðvitað mjög
skemmtilegt að fá að vera Tarantúla með
Arnari og Helga,“ segir Edda og vísar þar í
lagið Tarantúlur með Úlfur Úlfur.
Hvaða lag varstu að hlusta á? Sissy
That Walk með RuPaul, dásamleg
dragdrottning sem er með þáttaröð í
anda ANTM. Ég var að horfa á nýjasta
þáttinn rétt í þessu.
Uppáhalds tónlistartímabil? Æh, ég
fýla í alvörunni eitthvað af öllu, kann svo
innilega að meta hvernig þetta breytist
allt saman og vil halda í fjölbreytnina,
en sjöundi áratugurinn var allavega mjög
mikilvægur í tónlist.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Þessa dagana
eru það rappettur sem sperra eyrun uppá
innblástur, Jenelle Monáe, ANTI nýja
Edda Borg Stefánsdóttir / rödd, píanó, gítar
„Það er alltaf allt í boði í tónlist,
það er það besta við hana“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Toppurinn
VINSÆLUSTU LÖGIN
Á PLAYLISTANUM
Yoga
JANELLE MONÁE
Don’t Wait
MAPEI
Gangsta
KAT DAHLIA
Summertime
ELLA FITZGERALD
I Want You
THE BEATLES
From Time
DRAKE
(er að vinna í síðustu þremur
lögunum í skólanum)
platan með Rihanna og Coldplay þar
sem ég og Halla systir erum að fara á þá
í sumar! Svo virðist ég alltaf vera með eitt
lag sem ég gjörsamlega spila aftur, aftur
og aftur. Núna er það Gangsta með Kat
Dahlia. Annars er ég nýbúin með langt
skeið af Pentatonix, sem er ótrúlega
skemmtilega blandaður hópur sem notar
engin hljóðfæri, bara raddir.
Hvers konar tónlist var hlustað á
á þínu heimili? Ég fékk nú ekkert
tónlistaruppeldi (ef það er orð?) en í
dag er það hvað sem ég set á, sem er
oftast jazz eða rapp, við erum bara tvö
á heimilinu og Ómar kærastinn minn er
álíka músíkalskur og gafall.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? Ég þori ekki að fara með það en
allar líkur á Bob Marley eða Red Hot Chili
Peppers.
Hvaða græjur varstu þá með? Við
tvíburarnir fengum litlar græjur í jólagjöf
eitthvert árið, með bláum hátölurum.
Alveg mega svalar.
Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir
þér í jólagjöf? Amma Gígja heitin gaf
okkur alltaf geisladisk í jólagjöf sem við
völdum sjálfar. Ég man ekki hver var fyrst,
en man vel eftir Try This með P!nk.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? Þessa dagana skipti ég um stöð
ef Seven Years Old með Lukas Graham
byrjar. Ég er nokkuð viss um að það séu
bara hallærislegir hipstera stælar í mér af
því að öllum finnst það gott. Svo spilar
inní hvað það fær rosalega mikla spilun
og þannig fær maður smá ógeð.
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Vávává,
besta vinkona mín, Heiða Jonna, er
Eurovision sjúk og búin að mata mig vel!
Ég held að ekkert toppi Euphoria og Is
it True. Annars er Ein bißchen Frieden,
sigurlag þjóðverja 1982, eitthvað sem
gleður alltaf með sínu dásemdar hallæri!
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að koma
öllum í stuð? Þar stendur poppið sig
alltaf vel, ef fólk kann textan er það 90%
líklegra til að dansa.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst heyra?
Vá, svo misjafnt, hvetjandi, krúttlegu og
nægjusömu Úlfur Úlfur, Ellu Fitzgerald,
Led Zeppelin, Amy Winehouse...
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? Svarið við
þessari spurningu var Coldplay með Höllu
systur, hún þá að sjá Coldplay og ég að
sjá hana bilast, haha. En það verður að
raunveruleika í sumar svo nú verð ég að
finna eitthvað nýtt, Rihanna með Klöru
systur eða Kanye vin okkar Gígju systur!
Hvað músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst kominn með bílprófið?
Þegar ég rúntaði með strákunum voru
það nánast alltaf Foo Fighters eða Sálin
og Gospel.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt
um að vera? Ég get ómögulega valið
einn, gæti blandað 15 listamönnum
saman, þangað til ég heyri eitthvað nýtt
og vil þá bæta því við. Það er alltaf ALLT í
boði í tónlist, það er það besta við hana.
Hver er að þínu mati besta plata sem
gefin hefur verið út? VÓ! Ég ólst ekki
upp við neitt af þessu gamla góða svo
ég er enn að kynna mér það sjálf. Bubba
plöturnar Kona, Sögur 1980-1990 og
1990-2000 voru alltaf í jeppanum hans
pabba á ferðalögum, svo ég segi þær.
við hana á til að geta haldið
heyskapnum áfram. „Ég hef
aldrei verið hestamaður,“ ítrekar
hann, „en mér þykir gaman að
hafa upplifað þetta.“
Segja má að áhugamál Óla í
Víðidalstungu séu samofin
dalnum og umhverfinu, enda
tengjast þau náttúrunni og
útiveru. Hann hefur rennt fyrir
fisk í Víðidalsánni þegar færi
hefur gefist, enda á Víðidalstunga
land að ánni. Til eru frásagnir
Óskars, föður hans, af veiðiskap
sem stundaður var fyrir daga
veiðifélags. Þá var dregið á í
ánni, sem kallað var. „Víði-
dalstunga hefur löngum verið
mesta veiðijörðin í héraðinu á
eftir Þingeyrum. Aðalveiði Víði-
dalstungumanna var í Kerunum
sem kölluð eru, þar sem Fitjaáin
fellur í Víðidalsána. Þá var ekki
laxastigi þar og laxinn stoppaði
því þar. Þarna var svolítið
sérstakur veiðiskapur, en pabbi
var sá síðasti sem stundaði hann.
Laxinn safnaðist saman upp á
milli fossanna, þar sem er pyttur
og klöpp út í. Þá fóru tveir menn
þar upp og létu netið detta ofan í
hylinn og svo var laxinn dreginn
upp í klöppina og á land,“
útskýrir Óli og bætir því við að
faðir hans hafi mest fengið 90
laxa þar á einum degi, líklega
árið 1927.
Óli kveðst lítt áhugsamur um
að veiða lax til að sleppa honum,
eins og nú er orðið algengt og
nokkuð langt sé orðið síðan
hann veiddi lax síðast. Mest
segist hann hafa veitt heima við
en einnig farið þó nokkur ár í
Grímsá í Borgarfirði með
Þorbirni Gíslasyni, mági sínum,
sem lengi var leiðsögumaður
þar. „Grímsá er hin uppáhalds-
áin, alveg eins íbúar í Lundar-
reykjadal og allt tengdafólkið
mitt, sem hefur tekið mér
afskaplega vel alla tíð, eru hitt
uppáhaldsfólkið,“ segir hann.
Rjúpnaveiðin gat verið
ágætist búbót
Veiðiáhuginn er ekki bundinn
við stangveiðina því Óli stundaði
rjúpnaveiðar og á það enn til að
ganga til rjúpna í nágrenni
bæjarins, svona til að sækja í
matinn. „Á þessum árum sem
ég stundaði þetta mest, eftir
1960, var talsvert mikið af rjúpu
og þá var maður að hafa frá 30 til
50 rjúpur yfir daginn og komst
ég mest upp í 70. Þegar það fór
að fara niður fyrir 20 fannst
manni það heldur rýrt, en nú
þykir ágætt að fá tvær til þrjár.“
Þannig gat rjúpnaveiðin að
sögn Óla verið ágætis búbót,
auk þess að vera hin besta
skemmtun.
Grenjavinnslu stundaði Óli í
mörg ár. Þó hann sé hættur að
liggja á greni segist hann alltaf
farinn að kíkja yfir í fjallið þegar
snjóa tekur að leysa, til að vita
hvort grenin sem hann þekkir
séu komin upp úr. Hann segist
svo hafa tekið upp á því á gamals
aldri að skjóta tófur heimavið,
ásamt Hallfríði dóttur sinni.
Veiða þau þær jafnvel úr
fjárhúsunum, enda er tófan farin
að ganga heim að bæjum og
henni hefur fjölgað síðan hann
var sem mest við grenjavinnslu.
Óli segist una því vel að geta
verið áfram í búskapnum með
dætrunum og gantast með að í
dag sé hann vinnumaður á
búinu og hafi lýst því yfir þegar
hann varð „löggilt gamalmenni“
að hér eftir gerði hann bara það
sem honum þætti skemmtilegt.
Dæturnar tvær séu orðnar
ábyrgar fyrir helstu ákvörðunum
varðandi búskapinn og eigi í dag
meirihlutaeign í búinu, sem
hefur verið rekið sem einka-
hlutafélag síðustu tíu árin. „Þær
leita gjarnan ráða, sem er hið
besta mál, enda hef ég alltaf sagt
það þegar ég hef verið að hætta í
hinu og þessu, að ef einhver vill
tala við mig þá er það í góðu
lagi,“ segir hann.
Þó að bústörfin og veiði-
skapurinn hafi minnkað, segist
Óli oft fá sér göngutúr sér til
andlegrar og líkamlegrar heilsu-
bótar og þá liggi leiðin gjarnan
niður að ánni. Blaðamann rennir
þó grun í að þátttakan í bú-
störfunum sé meiri en Óli vill
vera láta, enda er hann farinn út
til gegninga skömmu eftir að
spjallinu og kaffidrykkjunni er
lokið. „Ég hef lifað mér til
ánægju og ætla að gera það
áfram, meðan heilsan leyfir,“
segir hann að lokum.
Óli við fjárhúsin. Núorðið segist hann bara vera vinnumaður á bænum og gera
helst það sem sér þyki skemmtilegt.
MYND: ÚR EINKASAFNI