Feykir - 19.10.2016, Qupperneq 3
39/2016 3
Auglýsing um skipan
í kjördeildir í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við Alþingiskosningar sem fram fara laugardaginn 29. október nk.
er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Höfðaborg Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps
– kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
kjörfundur hefst kl. 13:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur
hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá
því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær
sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa
greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum
eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um
það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því
að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslu-
manni Norðurlands vestra á Sauðárkróki kl.
10:00-15:00 virka daga fram að kjördegi og
kl. 16:00-18:00 á kjördag þann 29. október
2016
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknáms-
húsi FNV.
Yfirkjörstjórn
Auglýsing vegna kjörskrár
Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Alþingiskosninganna
29. október 2016 liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki,
Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 9,00 til 16,00 f.o.m.
miðvikudeginum 19. október 2016 til kjördags.
Upplýsingar um hvar þú ert á kjörskrá og hvaða kjördeild þú tilheyrir
er einnig að finna á upplýsingaveitu Innanríkisráðuneytisins:
https://www.kosning.is/althingiskosningar-2016/kjorskra/
Sveitarstjóri
Í sambúð með Árskóla
Tónlistarskóli Skagafjarðar í nýtt húsnæði
Tónlistarskóli Skagafjarðar á
Sauðárkróki hefur nú verið
fluttur í húsnæði Árskóla. Þar
með er allt skólahald í sveitar-
félaginu fyrir nemendur á
grunnskólaaldri komið undir
eitt þak. Þessu var formlega
fagnað á starfsmannafundi í
Árskóla í gær, þar sem Óskar
Björnsson, skólastjóri Árskóla,
bauð Svein Sigurbjörnsson,
skólastjóra tónlistarskólans,
og hans starfsmenn velkomna
í hópinn.
Flutningar hafa staðið yfir
frá því skólahald hófst í haust og
hefur Tónlistarskólinn meðal
annars yfir að ráða þremur
kennslustofum, auk rýmis fyrir
flygil og skrifstofu á jarðhæð,
ásamt rými í kjallara skólans. Í
Tónlistarskólanum eru í vetur
60 nemendur á Sauðárkróki.
Í máli þeirra Óskars og
Sveins kom fram að sambúðin
byrjaði vel og menn væru
ánægðir með þessar breytingar.
Ásta Pálmadóttir ávarpaði
einnig starfsmenn skólanna
beggja og kom inn á hversu
mikið hagræði það væri fyrir
nemendur og foreldra að hafa
skólastarf og tómstundir á
einum stað, líkt og nú er orðið.
Þess má geta að Íþróttahúsið á
Sauðárkróki er sambyggt skól-
anum og því hæg heimatökin
fyrir nemendur að fara á milli
skóla og tómstundastarfs. /KSE
Ásta sveitarstjóri, Herdís hjá fjölskyldusviði og Sveinn tónlistarskólastjóri. MYND: KSE
Ásgarður stækkaður um 230 fermetra
Veiðihúsið við Laxá á Ásum
Á mánudaginn hóf Loftorka að reisa veggi við-
byggingar við Ásgarð, veiðihús Laxár á Ásum.
Stefnt er að því að viðbyggingin verði orðin fokheld
í byrjun desember.
Unnið verður að uppsetningu innveggja og
innréttinga á fyrri hluta næsta árs. Gert er ráð
fyrir að viðbyggingin verði tilbúin vel fyrir næsta
laxveiðitímabil sem hefst upp úr miðjum júní.
Um miðjan júlí síðastliðinn tóku Ragnheiður
Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
og Páll A. Jónsson, formaður Veiðifélags Laxár á
Ásum, fyrstu skóflustunguna að stækkun
veiðihússins að viðstöddu fjölmenni. Veiðihúsið
verður stækkað um 230 fermetra og á
viðbyggingin að nýtast undir gistiaðstöðu fyrir
veiðimenn og starfsfólk og undir vöðlugeymslu.
Húnahornið greinir frá þessu. /KSE