Feykir


Feykir - 19.10.2016, Side 4

Feykir - 19.10.2016, Side 4
4 39/2016 DÖGUN SIGURJÓN ÞÓRÐARSON Mikilvægt að styðja við athafnagleði og hugmyndir fyrirtækja og einstaklinga Sigurjón Þórðarson skipar forystusæti Dögunar. Hann er 52 ára, þriggja barna faðir, býr á Sauðárkróki og er í sambúð með Svövu Ingimarsdóttur, líffræðingi og handverkskonu. Sigurjón er líffræðingur að mennt, með framhaldsnám í stjórnsýslu- fræðum og starfar sem framkvæmdastjóri Heilbrigðis- eftirlits Norðurlands vestra og stundakennari við FNV en einnig hefur hann verið stundakennari við HÍ. Áhugamálin eru íþróttir, einkum sund, knattspyrna og karfan og í kjölfar íþróttaafreka dóttur hans hefur áhugi Sigur- jóns á fimleikum tekið óvæntan kipp. Auk þess hefur hann áhuga á útivist og veiðum. Hvert er þitt helsta baráttumál fyrir Norðvesturkjördæmi í heild? Koma þarf á réttlátu samfélagi. Mikilvægt er að ákvarðanir séu teknar út frá heildarhagsmunum en ekki út frá óskum þröngra sérhagsmuna á leynifundum. Dögun vill afnema verðtrygg- inguna en losa þarf um hnútinn í maga margra kjósenda sem svikamyllan verðtryggingin veldur. Það er ósanngjarnt að öll verðbólguáhætta leggist alfarið á lántakendur en sanngjarnt er að skipta henni á milli fjár- málafyrirtækja og skuldara. Lækka þarf vexti en háir vextir þjaka fyrirtæki, bændur og heimilin í landinu. Dögun vill koma á samfélagsbanka sem veitir lán á sanngjörnum vöxtum og greiðir ekki banka- bónusa. Mikilvægt er að koma í veg fyrir spillinguna í banka- kerfinu en Borgunarmálið sýnir að samspilling stjórnmála og fjáramála lifir enn góðu lífi. Ég mun beita mér fyrir frjálsum krókaveiðum dag- róðrabáta en það hleypir lífi í sjávarbyggðirnar. Fiskur er staðbundinn, einkum á upp- vaxtarskeiði og því mikilvægt að dreifa veiðum og nýta fiskimið á flóum og í fjörðum. Hvað finnst þér brýnast að gera fyrir Norðurland vestra? Augljóslega þarf að gera stór- átak í vegamálum. Það á bæði við um viðhald og uppbyggingu vegakerfisins. Standa þarf vörð um heilbrigðisþjónustuna og ekki síður menntastofnanir. Gera þarf kröfu um aukna sanngjarnari fjármögnun til Háskólans á Hólum og FNV. Hvernig sérðu fyrir þér atvinnu- uppbyggingu á svæðinu? Það er mikilvægt að stjórn- málamenn styðji við athafna- gleði og hugmyndir fyrirtækja og einstaklinga. Tækifærin eru fjölbreytt og stór. Nú er nokkur sókn hjá matvælaframleið- endum og ferðaþjónustunni vítt og breitt um landshlutann. Styðja má við ferðaþjónustuna með því t.d. að beita sér fyrir uppbyggingu vinsælla ferða- mannastaða á borð við Glaum- bæ og Selasetrið. Rammaáætlun er lifandi plagg sem getur tekið breyt- ingum í tímans rás ef það myndast pólitískur þrýstingur til breytinga. Í kjölfarið geta virkjunarkostir verið fluttir á milli flokka eins og dæmin sanna. Auka þarf skilning á því að það getur verið skammgóður vermir að setja vatnsföll í verndarflokk ef ekki fylgir skipuleg uppbygging á svæðinu sem tryggir að heimamenn hafi verulegan hag af vernd eða breyttri landnotkun. Skynsam- legt er því að samfara ákvörðun stjórnvalda um vernd verði samhliða farið í uppbyggingu sem tryggir að hún verði til frambúðar. Hver er afstaða þín til flutnings opinberra starfa? Á síðustu tveimur kjörtíma- bilum hefur orðið mikil fækkun á ríkisstörfum á svæðinu. Í lok kjörtímabila kemur jafnan karamella fyrir kjósendur sem nú er í formi nýrrar stofnunar á Sauðárkróki. Karamellan sem gefin er í lok kjörtímabils er jafnan miklu minni en það sem tekið var í burtu. Til að tryggja ríkisstörf má ekki einungis líta til flutninga á stofnunum heldur einnig til kjarasamninga. Nýir kjara- samningar ríkisins við fram- haldsskólakennara fækkaði stöðugildum fámennra skóla. Það mætti hvetja opinberar stofnanir til að staðsetja starfs- menn utan höfuðborgarinnar sem gæti falist í auknum fjár- veitingum til stofnana sem gefa starfsmönnum kost á að flytja í okkar frábæra landshluta. x 2016ALÞINGISKOSNINGAR 29. OKTÓBER SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR HARALDUR BENEDIKTSSON Framhaldsskólar og háskólastarfsemi skiptir okkur máli Bóndinn og þingmaðurinn Haraldur Benediktsson á Vestri- Reyni er oddviti Sjálfstæðis- manna. Hann er fimmtugur búfræðingur, kvæntur Lilju Guð- rúnu Eyþórsdóttur og eiga þau þrjú börn. Meðfram bústörfum starfaði Haraldur sem formaður Bændasamtaka Íslands frá árinu 2004–2013 eða þar til hann settist á þing. Þar hefur hann m.a. setið í atvinnuvega- og fjárlaganefnd. Ýmsum trúnaðar- störfum hefur Haraldur sinnt m.a. setið í stjórn Búnaðar- sambands Borgarfjarðar og síðar Búnaðarsamtaka Vesturlands og gegnt þar formensku árin 2002– 2005. Þá sat hann í verðlagsnefnd búvara og í framkvæmdanefnd búvörusamninga 2004–2013 í háskólaráði Landbúnaðarhá- skóla Íslands 2005–2013, í miðstjórn NBC, Samtaka bænda á Norðurlöndum, 2004–2013, formaður 2008–2010. Hvert er þitt helsta baráttumál fyrir Norðvesturkjördæmi í heild? Málefni heilbrigðistofnanna að þær eflist á nýjan leik. Aukið fjármagn til rekstrar og endur- nýjunar, aðgerðir til að laða að lækna og annað heilbrigðis- starfsfólk. Efling starfseminnar skiptir máli fyrir alla, bæði er kostnaðarsamt og tímafrekt að sækja slíka þjónustu um langan veg. Því er forgangsmál að styðja betur við og lækka út- gjöld landsbyggðarfólks vegna ferðalaga og dvalar við að sækja sér lækninga. Raforkufram- leiðsla og flutningskerfi þess er um allt kjördæmið flöskuháls og er að hamla uppbyggingu. Hvort sem við ræðum orkuskort vegna nýrra tækifæra eða orkuframleiðslu eða bætt afhendingaröryggi og þriggja fasa rafmagn. Samgöngumál, breikkun á Vesturlandsvegi, nýjar stofnleiðir auk þess að fækka malarvegum. Fátt styrkir byggð meira en slíkar framkvæmdir. Nefni að sjálfssögðu að tryggja að stórátak okkar í fjarskiptum geti haldið áfram. Þar höfum við þegar lyft grettistaki. Gangi það eftir verða fjarskipti á Íslandi einstök og möguleikar sem það skapar eru óendanlegir. Hvað finnst þér brýnast að gera fyrir Norðurland vestra? Rekstur og starfsemi heil- brigðisstofnana. Sérstaklega þarf að efla þjónustu við verð- andi mæður á ný. Framhalds- skólar og háskólastarfsemi skiptir okkur máli. Við ræðum núna valkost að koma vegamálum í sveitum í betra ástand með nýjum valkosti, ódýrari og hraðvirkari endur- bætur. Hvernig sérðu fyrir þér atvinnuuppbyggingu á svæðinu? Nýsköpun í hefðbundnum greinum hefur of lítinn framgang á landsbyggðinni. Það ætti að leyfa frádrátt á veiðileyfagjöldum í sjávarútvegi, fjárfesti slík fyrirtæki í nýsköpun. Meiri festa í um- hverfi grunnatvinnuvega okkar og þá ferðaþjónustan sem sannarlega er að breyta atvinnulífi okkar. Þá á að leita leiða við að byggja kjölfestu í fjölbreyttara atvinnulíf, iðju- kost sem væri öflugur stór vinnustaður á svæðinu sem skapaði aftur fjölbreytta þjónustu. Hver er afstaða þín til flutnings opinberra starfa út á land? Með breyttum samgöngum og fjarskiptum er tímabært að móta nýja stefnu í starfsemi hins opinbera. Það á að vera hluti af rekstri allra ríkis- stofnana, að verði ráðið á landsbyggðinni. Til viðbótar við flutning á starfsemi hins opinbera sem mögulegt er að flytja til. Þá verður að tryggja sjálfstæði þeirra stofnana sem þegar eru á landsbyggðinni – það er besta aðferðin við að fjölga opinberum störfum úti á landi. Sameiningar og flutn- ingur á höfuðstöðvum til Reykjavíkur er varasamur og hefur oftar en ekki í för með sér fækkun starfa. En þá þarf líka að gera landsbyggðina áhuga- verða fyrir ungt fólk að setjast þar að, eftir nám. Það er stóra verkefnið. x 2016ALÞINGISKOSNINGAR 29. OKTÓBER

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.