Feykir


Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 9

Feykir - 19.10.2016, Blaðsíða 9
39/2016 9 VIÐREISN GYLFI ÓLAFSSON Sjálfbærni og fjölbreytt mannlíf Oddviti hins nýja stjórnmálaafls Viðreisnar er Gylfi Ólafsson heilsuhagfræðingur giftur Tinnu Ólafsdóttur frá Flateyri og eiga þau eins árs gamla dóttur. Gylfi er 33 ára, frá Ísafirði en býr í Reykjavík menntaður grunnskóla- kennari og hagfræðingur og er langt kominn með doktorsnám í heilsuhagfræði. Hann hefur starfað sem fréttamaður, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofu og fleira. Hvert er þitt helsta baráttumál fyrir Norðvesturkjördæmi í heild? Helsta leiðarstefið er að leitað sé leiða til að halda í og laða að ungt fólk. Þar á ég ekki eingöngu við landsbyggðina gagnvart höfuðborgarsvæðinu, heldur einnig Ísland gagnvart um- heiminum. Þær lausnir þurfa að byggja á framtíðarsýn um nýsköpun, þekkingarsköpun, sjálfbærni og fjölbreytt mann- líf. Ýmsir innviðir Norðvestur- kjördæmis eru langt á eftir, meðal annars í heilbrigðis- málum, samgöngumálum og fjarskiptum. Fjármögnun þess- arar uppbyggingar þarf þó að vera sjálfbær. Ef auðlindagjöld sem lögð hafa verið síðustu ár á útgerðina hefðu skilað sér til byggðanna væri staðan töluvert frábrugðin því sem nú er. Viðreisn hefur lagt til myntráðsleið til að skapa lang- varandi gengisstöðugleika og lækka vexti umtalsvert, sem gagnast útflutningsatvinnuveg- unum, heimilunum og ríkinu. Ríkið ætti með niðurgreiðslu lána og lækkun vaxta að draga gífurlega úr vaxtakostnaði sem nú er um 70 milljarðar á ári, og losa þannig fé til þjóðþrifaverka. Hvað finnst þér brýnast að gera fyrir Norðurland vestra? Mikil gagnrýni hefur verið á löggæslu á svæðinu. Þar hafa sameiningar tveggja embætta verið að sumu leyti til góðs en það hefur að einhverju leyti komið niður á smærri byggð- unum. Þetta er þeim mun brýnna eftir því sem ferðamönnum fjölgar. Ýmsar samgöngubætur hafa setið á hakanum, og Háskólinn á Hólum er fórnarlamb þeirrar undirfjármögnunar sem há- skólastigið allt glímir við. Að síðustu hafa heilbrigðisstofnanir á svæðinu, eins og annarsstaðar, þurft að glíma við þríþættan vanda; fjárskort, segulmagn höfuðborgarsvæðisins á starfs- fólk og stefnuleysi yfirvalda, eins og landlækni hefur orðið tíðrætt um. Hvernig sérðu fyrir þér atvinnu- uppbyggingu á svæðinu? Lengi hefur verið beðið eftir stórum vinnustað til að bjarga atvinnuástandi svæðisins. Hann mun sennilega láta bíða eftir sér, einkum ef þess er beðið að ríkið hafi þar frumkvæði. Hér gildir að fjölbreytt menntun á öllum skólastigum og nýsköp- unarkraftur heimafólks er vísasta leiðin til að skapa gróskumikið atvinnulíf. Þá þurfa yfirvöld að einfalda til muna allt regluverk og styrkjakerfi í landbúnaði svo að bændur geti átt betri og beinni samskipti við neytendur. Þannig fá sérkenni svæðisins og matarmenning að njóta sín betur. Hver er afstaða þín til flutnings opinberra starfa út á land? Flutningur opinberra starfa út á land er mjög jákvæður en vanda þarf til verka. Flutningur stofnana hefur nefnilega stund- um gengið brösuglega, meðal annars vegna þess að nauð- synlega innviði hefur vantað, og þá getur flutningurinn orðið málstaðnum fótakefli. Dæmi um það er þegar Innheimtu- stofnun sveitarfélaga hraktist frá Flateyri til Ísafjarðar af því að nettengingin á Flateyri var ekki nógu góð. Hvernig eiga einkaaðilar að stofna fyrirtæki eða flytja starfsemi sína út á land þegar ríkinu tekst það ekki sjálfu? Flutningur starfa er þannig ágæt mælistika á styrk innviða; ef flutningur gengur ekki upp, er ekki úr vegi að kanna hvort það sé vegna þess að nauðsynlega innviði vanti. x 2016ALÞINGISKOSNINGAR 29. OKTÓBER FRAMSÓKNARFLOKKUR GUNNAR BRAGI SVEINSSON Hér þarf að treysta atvinnulífið Gunnar Bragi Sveinsson er odd- viti Framsóknarmanna, var utan- ríkisráðherra og síðar sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra í fráfarandi ríkisstjórn. Gunnar er 48 ára, býr á Sauðárkróki, frá- skilinn og á fimm stráka. Hann er með stúdentspróf og nám í atvinnulífsfélagsfræði og hefur starfað sem sveitarstjórnar- fulltrúi, aðstoðarmaður ráðherra, í verslun og veitingum, byggingar- vinnu, Steinullarverksmiðjunni, sem sendibílstjóri, þjónn o.fl. Hvert er þitt helsta baráttumál fyrir Norðvesturkjördæmi í heild? Að treysta búsetu í kjördæm- inu. Ég hef lagt mig fram um það frá því ég var kjörinn á þing. Svokölluð Norðvestur- nefnd, sem ég hvatti til að yrði skipuð, skilaði af sér mikil- vægum tillögum sem margar hafa þegar skilað störfum eða fest störf í sessi. Sem ráðherra byggðamála þá fól ég Byggða- stofnun að koma með útfærðar tillögur af því hvernig mætti nýta „skattkerfið“ til byggða- jöfnunar. Lækkað trygginga- gjald fyrirtækja eftir fjarlægð frá Reykjavík, lækkun eða niðurfelling námslánagreiðslna og endurgreiðsla á kostnaði við akstur til og frá vinnu eru meðal tillagna sem við munum sjá í nýrri byggðaáætlun. Hvað finnst þér brýnast að gera fyrir Norðurland vestra? Hér þarf að treysta atvinnulífið, gera átak í samgöngumálum, bæði í vegagerð og flugi, auka fé til heilbrigðisstofnana og löggæslu svo eitthvað sé nefnt. Hvernig sérðu fyrir þér atvinnu- uppbyggingu á svæðinu? Áfram þarf að byggja upp og treysta það sem við höfum. Þá þyrftum við að geta aukið og bætt áfram þjónustu við ferðamenn og nýtt þá hug- myndaauðgi sem ég veit að býr í fólkinu. Sjávarúvegurinn er okkur mikilvægur sem og x 2016ALÞINGISKOSNINGAR 29. OKTÓBER landbúnaðurinn en þar eigum við tækifæri á vöruþróun og nýsköpun. Orku landshlutans á að nýta sem mest heimavið en umframorka fari inn á raf- orkukerfið því er ég fylgjandi kröfum um að orka Blöndu og fallvatnanna í Skagafirði verði nýtt hér heima. Hver er afstaða þín til flutnings opinberra starfa út á land? Í mörgum tilfellum er sjálfsagt að flytja störf út á land en best er ef fjölgun opinberra starfa á sér stað úti á landi. Sem ráðherra hef ég tekið ákvörðun um að fjölga störfum á landsbyggðinni um a.m.k. tíu án þess að önnur hverfi á móti. Ég tel að ráðuneyti og undirstofnanir ættu að setja sér það markmið að ný störf eigi að verða til úti á landi nema málefnanlegar ástæður komi í veg fyrir það. Í raun ætti að auglýsa meira af störfum án staðsetningar. Alþingiskosningar 2016 Kosningar til Alþingis verða haldnar 29. október nk. og bjóða alls átta framboð fram krafta sína í Norður- landskjördæmi vestra. Til að gæta alls hlutleysis fengu oddvitar framboðanna sömu spurningarnar og mátti hver þáttur ekki fara yfir ákveðin fjölda orða. Einnig var dregið um hvar þættirnir lentu svo ekki yrðu pólitísk átök um staðsetningu. Feykir hvetur fólk til að fjölmenna á kjörstað og nýta atkvæðarétt sinn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.