Feykir


Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 1

Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 1
„ BLS. 6–7 BLS. 10 Margrét Eir heldur tónleika í Sauðárkrókskirkju „Kominn tími til að drífa sig af stað“ BLS. 8 Edda María Lárusdóttir frá Skagaströnd í opnuviðtali „Berlín var draumaborg okkar beggja“ Aðventugleði Sjálfsbjargar Peningagjöf vegna lyftu í Safnaðar- heimili Sauðár- krókskirkju 46 TBL 7. desember 2016 36. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN! 35 ára Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar sl. fimmtudag var lögð fram tillaga um að gerð yrði breyting á framkvæmdaáætlun eignasjóðs 2016 þannig að 140 milljónir króna yrðu fluttar af framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki yfir á nýtt verkefni, gervigrasvöll á íþróttasvæð- inu á Sauðárkróki. „Hönnun við breytingar á sund- laug standa enn yfir og ekki verður mögulegt að hefja framkvæmdir við hana fyrr en á árinu 2017,“ segir í fundargerð. Byggðarráð samþykkti tillöguna. Á sama fundi var farið yfir drög að hönnun að gervigrasvelli á Sauðár- króki og samþykkti byggðarráð að haldið yrði áfram miðað við fyrir- liggjandi drög. /KSE 140 milljónir í gervigrasvöll Breytingar á framkvæmdaáætlun Svf. Skagafjarðar Einmuna blíða hefur verið á landinu það sem af er vetri og segir á vef Veðurstofu Íslands að haustið hafi verið það langhlýjasta á Akureyri frá upphafi samfelldra mælinga og reyndist meðalhiti 5,2 stig. Næsthlýjast var árið 1920, 4,6 stig, en á vedur.is segir að mælingar hafi verið nokkuð óáreiðan- legar þá, og svo náði meðalhitinn 4,6 stigum árið 1945. Þá kemur fram hjá Veðurstofunni að mjög úrkomusamt hafi verið í haust. Samanlögð úrkoma október og nóvembermánaða hefur aldrei mælst meiri en nú, 334,3 mm, en var þó nánast sú sama 1956 (332,6 mm) og 1958 (325,8 mm). Úrkoma þessara mánaða mældist 383 mm á Vífilsstöðum 1912. Október var í þurrara lagi á Akureyri þannig að þrátt fyrir úrkomusaman nóvember þar er ekki um nein met að ræða. Samkvæmt veðurspá mun hitastigið dansa á núllinu fram eftir vikunni en Sólin skartaði sínu fegursta sl. þriðjudag við sólarupprás sem skráð er klukkan 11:15 við 65.75 gráður norðlægar breiddar þar sem myndin er tekin. Horft er fram Skagafjörð þangað sem Mælifellshnjúkurinn rís tignarlega í fyrrum Lýtingsstaðahreppi. Áshildarholtsbæirnir eru í forgrunni. MYND: PF Góð tíð á Norðurlandi vestra Kólnar eftir helgi gera má ráð fyrir rigningu eða slyddu á Norðurlandi vestra. Á morgun er spáð norð-austan 8-15 m/sek norðan- og norðvestantil með rigningu eða slyddu en annars yfirleitt suðlægri eða breytilegri átt, 5-10 m/s. Á föstudag er gert ráð fyrir slydduél með norðaustur- og norðurströndinni ann- ars úrkomulítið og hiti breytist lítið. Útlit er fyrir nokkuð hvassa norð- austanátt á laugardag með dálitlum slydduéljum nyrst og á sunnudag verður ákveðin sunnanátt með rigningu í flestum landshlutum en suðvestanátt og skúrir eða él vestantil um kvöldið. Kólnar í veðri. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.