Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 5
46/2016 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Tindastólsmenn í toppstandi
Dominosdeildin í körfubolta :: Tindastóll - Skallagrímur 97-75
Skalla-Grímur gamli hefði
sjálfsagt hrist hausinn yfir
frammistöðu sveitunga sinna
hefði hann verið í Síkinu sl.
fimmtudagskvöld. Þeir voru
næstbestir á öllum sviðum
körfuboltans en Tindastóls-
menn keyrðu yfir gestina frá
fyrstu mínútu og þeir sáu
aldrei til sólar. Leikurinn var
hin besta skemmtun fyrir
kröftuga og káta stuðnings-
menn Stólanna sem sigruðu
örugglega, 97-75.
Sóknarleikur Tindastóls var
eldsnarpur í byrjun leiks en
varnarmenn Borgnesinga voru
vant við látnir og létu Caird og
félaga leika lausum hala. Eftir
nokkrar byltur frá Flake beit
Hester á jaxlinn og lét Borgnes-
inga ekki eiga neitt hjá sér.
Kappinn lofar sannarlega góðu.
Um miðjan fyrsta leikhluta var
staðan 18-12 en stuttu síðar
kom Björgvin inn fyrir Caird
og þá varð nú gaman í Síkinu.
Ætli kappinn hafi ekki troðið
fimm sinnum í leiknum og hver
troðslan var annarri betri. Að
loknum fyrsta leikhluta var
staðan 33-16 og ljóst að lið
Skallagríms þurfti að stíga
duglega upp ef þeir ætluðu sér
eitthvað í leiknum.
Þeir náðu að herða á vörn-
inni og Stólarnir hvíldu lykil-
leikmenn í byrjun annars leik-
Opnaði um
síðustu helgi
Skíðasvæði Tindastóls
Vertíðin er hafin hjá Skíðasvæði Tindastóls en
opnað var sl. laugardag. Skíðaáhugafólk
fagnaði vel enda veður gott, nægur snjór og
aðstæður með ágætum.
Á fésbókarsíðu skíðasvæðisins segir að
næst verði opið föstudaginn 9. desember og
áréttað að þótt snjólaust sé niðri í bæ þá er snjó
að finna í fjöllum svo það er um að gera að
skella sér á skíði og hafa gaman. /PF
Formaður skíðadeiidar Tindastóls, Sigurður Bjarni Rafns-
son, við opnun svæðisins um síðustu helgi.
MYND: FÉSBÓK SKÍÐASVÆÐISINS
Betra upplýsingaflæði
Ný heimasíða Tindastóls
Ungmennafélagið Tindastóll hefur tekið í notkun
nýja heimasíðu en með henni er vonast til að
upplýsingaflæði til foreldra og iðkenda muni batna
frekar. Komnar eru inn helstu upplýsingar um
starfsemi deildarinnar og allra flokka og verður
heimasíðan uppfærð reglulega.
Á heimasíðunni, Tindastoll.is, eru góðar upp-
lýsingar fyrir alla og ekki síst foreldra sem þurfa að
fylgjast með æfingatíma hvers flokks og upp-
lýsingar um þjálfara flokka.
Þá er foreldrum bent á hlekkinn neðst í síðum
flokkanna en þar er hlekkur á Facebook síður
þeirra. Mikilvægt er að allir foreldrar séu skráðir á
þær síður þar sem allar helstu upplýsingar um mót
og fundi koma þar inn.
Feykir óskar félaginu til hamingju með síðuna
og hvetur forráðamenn deilda til að vera duglega
við að setja inn fréttir af starfseminni. /PF
Rósa á Þernumýri
ÁRNI BERGÞÓRSSON bjó á
Kolþernumýri í Vesturhópi í
hálfa öld eða frá 1881 til 1931.
Árni var vel í efnum og góður
bóndi. Hann var jafnan með
fjárflestu bændum sveitar-
innar og einn af mestu
sauðabændum Vestur-Húna-
vatnssýslu. Hann hélt nokk-
urri sauðaeign til síðustu
stundar eða til ársins 1931. En
þá voru sauðir hvergi orðnir
til í vestursýslunni, nema á
Mýri.
Árni var ágætur fjármaður
og svo mikill snyrti- og þrifa-
maður í umgengni um hús og
hey, að til fyrirmyndar var.
Árni stundaði vetrarbeit mjög
mikið, enda er fremur jarðsælt
á Mýri og nokkur kjarni í
landi. Fé Árna var mjög
harðgert og beitarþolið og
sauðir hans miklir garpar að
bjarga sér, en oft var staðið yfir
þeim í vondum veðrum. En
þrátt fyrir þessa miklu beit og
harðræði gengu þeir jafnan
vel fram að vori, skiluðu
vænum reyfum og góðum
fallþunga að hausti.
Árni átti jafnan gott
forystufé og taldi ómögulegt
án þess að vera, þar sem fé
væri ætluð mikil vetrarbeit,
enda gustaði oft harkalega
framan í forystuféð á Mýri á
þessum árum. Landið liggur
skammt inn af botni Húnaflóa
og því fyrir opnu hafi.
Hér verður aðeins minnzt
tveggja forystukinda, sem
Árni eignaðist og þóttu bera
einna mest af.
Rósa
Um 1880 keypti Árni svart-
flekkótta lambgimbur af
Benjamín bónda á Ægissíðu
á Vatnsnesi, og var hún
nefnd Rósa. Hún var kollótt,
langvaxin, þunnvaxin og
gelgjuleg. Fljótt bar á forystu-
hneigð hjá henni, og með aldri
og árum varð hún framúrskar-
andi forystuær. Hún var jafn
örugg með stjórn og undanrás
hjarðarinnar, hvort sem henni
var beitt í ófærð, hálku eða
vatnsföll, og aldrei brást dugur
hennar og ratvísi í hríðum og
fárviðrum. Hún var á hverju
sumri höfð í kvíum. Hún
stjórnaði svo vel kvíaánum, að
lítið þurfti fyrir þeim að hafa.
Rósa náði háum aldri og
varð margra barna móðir.
Hún giftist aldrei forystuhrút.
Undan henni kom engin
forystukind að undanskildum
einum svartbíldóttum sauð,
sem erfði forystukosti móður
sinnar í ríkum mæli og varð
annálaður forystu sauður og
vitskepna og víða um Vestur-
Húnavatnssýslu kunnur og
þekktur undir nafninu Rósu-
Bíldur.
Ómögulegt að vera
án góðs forystufjár
Í síðasta blaði birtum við söguna af forystusauðunum í
Tinnárseli, úr bókinni Forystufé eftir Ásgeir frá Gottorp sem
Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur nýlega endurútgefið.
Í bókinni eru sögu af þessum merku skepnum, alls staðar að
af landinu og að þessu sinni birtum við sögu úr Húnaþingi
vestra. Þar kemur við sögu Forystuærin Rósa á Þernumýri í
Vesturhópi. Í bókinni er kafli um mæðginin Rósu og hrútinn
Bíld og er hér gripið niður í fyrri hluta kaflans.
Forystufé eftir Ásgeir frá Gottorp
Feykiflottur
Liggurðu á frétt? Áttu skemmtilega
mynd sem gaman væri að birta í Feyki?
Hafðu samband > feykir@feykir.isGlæsileg ný heimasíða Umf. Tindastóls. SKJÁMYND
hluta. Bæði lið spiluðu reyndar
fína vörn á þessum kafla og
leikmenn gerðu sig seka um
mistök í sókninni. Staðan í
hálfleik var 52-36.
Gestirnir hófu síðari hálfleik
ágætlega en fljótlega náðu Stól-
arnir öllum völdum á ný og
eftir frábæra takta frá Pétri um
miðjan leikhlutann var leikur-
inn í raun búinn. Staðan 69-46
og kátt í Síkinu. Svo tróð Helgi
Rafn og þá tróð Björgvin bara
tvisvar. Staðan 79-51 og fjórði
leikhlutinn bara formsatriði. Í
honum gerðist fátt markvert
utan þess að Björgvin tók ein-
hverja þá klikkuðustu alleyoop-
troðslu sem sést hefur í Síkinu
eftir frábæra stoðsendingu frá
Helga Margeirs.
Israel Martin virðist sannar-
lega vera að gera góða hluti með
lið Tindastóls. Hann vill spila
hraðan bolta og er duglegur að
nota allan hópinn. Á fimmtudag
voru það bara Pétur og Helgi
Rafn sem spiluðu meira en 30
mínútur og frábært að sjá að
menn virðast njóta þess að spila
hver fyrir annan. Hester gerði 25
stig í leiknum og Pétur 23. /ÓAB
Stólarnir kvöddu
Maltbikarinn
Tindastóll og Þór áttust við í
Maltbikarnum í Höllinni á
Akureyri sl. sunnudag. Eftir
spennandi og jafna viðureign
voru það heimamenn sem
spiluðu betur síðustu fimm
mínútur leiksins og fögnuðu
sætum sigri, 93-81. Stólarnir
náðu ekki að fylgja eftir ágætum
leik í fyrri hálfleik en þeir voru
yfir, 44-50, í hálfleik. /ÓAB
Hester og Hannes passa upp á Whitfield. Helgi Rafn fylgist með. MYND: ÓAB