Feykir


Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 4

Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 4
4 46/2016 Good Times Hvernig nemandi varstu? Óttalega hrædd lítil mús, en sótti í mig veðrið með tímanum. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Hárgreiðslan hennar systur minnar sem ég var í laumi hund-óánægð með. Hún setti rúllur í hárið á mér og túberaði það og mér fannst það kellingarlegt, vildi slöngulokka. En vildi ekki særa stóru systur. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Geimfari, flugmaður eða kafari. Ég las mest strákabækur, Bob Moran, Tom Swift og svoleiðis. Fyrir utan Enid Blyton sem ég elskaði en er núna á bannlista pólitískrar rétthugsunar. Hvað var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Gulur bangsi sem ég man ekki hvað hét, en ég var alltaf að klippa hárið á honum og trúði því staðfastlega að það yxi aftur. Besti ilmurinn? Nýslegið tún Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Ég var reyndar 19 ára þegar ég tók prófið. Og það var árið 1975 og ég hef trúlega hlustað á hljómsveitir á borð við Nazaret, Deep Purple, Led Zeppelin. Ég var aldrei forfallinn Abba-aðdáandi. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Ertu vitlaus! Ég tæki einu sinni ekki lag í kareókí þótt ég væri á sjötta glasi. Nema þá í dúett með einhverjum. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Góðum glæpaseríum. Besta bíómyndin? Kannski réttast að spyrja hvaða mynd ég sá oftast (fór oft á sömu myndina í gamla daga) og það myndi vera Cabaret með Lizu Minelli. Hvaða íþróttamanni hefurðu mest- ar mætur á? Árna Stef. ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir. ÁRGANGUR: 1956. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift frú. BÚSETA: Sauðárkrókur. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er fædd og uppalin í Garði í Mývatnssveit. Faðir minn hét Þorgrímur Starri Björgvins- son bóndi þar í sjötta lið. Móðir mín var Jakobína Sigurðar- dóttir skáldkona frá Hælavík á Hornströndum. STARF / NÁM: Sagnfræðingur og kennari, en starfa nú sem sér- fræðingur á Byggðastofnun. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Vinna og aftur vinna! Og skriftir í hjá- verkum. Sigríður Kristín MYND: ÚR EINKASAFNI má losna við frægðina. Hver er uppáhalds bókin þín og/ eða rithöfundur? Svo ótal margar. Kannski Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov. Hún er svo margræð og frásögnin skemmtileg, en um leið sorgleg. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Ég er frasalógían uppmáluð svo það er erfitt að gera upp á milli. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Bríet Bjarnhéðinsdóttir, brautryðj- andi í kvenréttindum (nú hugsa ég bara um Ísland). Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Líklega eitthvert á níunda áratuginn, þá var svo gaman. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Henni féll aldrei verk úr hendi. Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... Erfitt val, ég á svo margt óskoðað. Hef varla komið út fyrir Evrópu. Ef þú ættir að dvelja alein á eyði- eyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Mér finnst blasa við að hafa með sér eitthvert samskiptatæki sem virkar, bát og verkfæri (þori ekki að segja eiginmanninn, því hann er jú ekki hlutur). Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Setjast niður í næði í nokkra daga og hugsa um tilgang lífsins, það er eiginlega mest aðkallandi þessa stundina. Skrifa nokkrar bækur (þetta er miklu fleira en þrennt) og ferðast um heiminn. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Skipulegg. Hvert er snilldarverkið þitt í eld- húsinu? Franska súkkulaðikakan. Hættulegasta helgarnammið? Rjómaterta með marengs! Hvernig er eggið best? Harðsoðið eða hrært (scrambled). Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Undanlátssemin. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki. Uppáhalds málsháttur eða tilvitn- un? Svo verður hver að fljúga sem hann er fiðraður. Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég strauk að heiman tveggja og hálfs. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Hrúturinn Hreinn. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Ég hef ekki heilsu í frægð. En ég væri alveg til í smá lúxus sem frægðinni fylgir ef ég G Times Contalgen funeral með n ýja plötu Skagfirska hljómsveitin Contalgen Funeral er ekki dauð úr öllum æðum en nýr diskur er komin út hjá sveitinni. Þetta er önnur breiðskífa hljómsveitarinnar en einnig hefur ein smáskífa fengið að fljóta á öldum ljósvakans. Þríeyki sveitarinnar sem býr á Króknum, Sigurlaug Vordís, Fúsi Ben og Gísli Þór, segir plötuna blöndu af kántrí og rokki og algjörlega heimasmíðaða. Öll lögin eru eftir hljóm- sveitarmeðlimi sem einnig sáu um upptökur, hljóðblöndun, masteringu og fjölföldun diskanna og Andri banjóleikari semur textana. Hönnun umslagsins var i höndum Davíðs Más og Óla Arnars. Að sögn Sigurlaugar Vordísar tók meðgangan um tvö ár en flutningur laganna er allur lifandi eða „live“. Þá spila allir saman og allt tekið upp í einu og segja þeir Fúsi og Gísli að stemningin verði meiri og skemmtilegri en þegar einn er að gutla í stúdíóinu. Þau segja að þetta geti verið meiri vinna þar sem oft þurfi margar upptökur en að sama skapi verði meiri listræn sköpun hjá hópnum og jafnvel að lögin séu samin á staðnum þótt grunnurinn hafi verið kominn áður. Platan heitir Good times eftir einu laginu en Silla segir að það getir líka verið af því að þetta var svo gaman. Textarnir eru allir á ensku en aðspurð um hvort ekki sé von á alíslenskri plötu segja þau svo vera. „Við eigum sex lög sem búið er að taka upp og stefnum á að gefa út plötu á næsta ári,“ segir Silla og hinir kinka kolli og taka undir að það megi ekki klikka. Hljómsveitina skipa sem fyrr: Andri Már Sigurðsson: Gítarbanjó og söngur Gísli Þór Ólafsson: Kontrabassi og bakraddir Kristján Vignir Steingrímsson: Gítar Sigfús Arnar Benediktsson: Trommur Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir: Söngur og ásláttur. Plötuna verður hægt að nálgast hjá þeim sjálfum á Fésbókarsíðu sveitarinnar, í Skagfirðingabúð og á Spotify. VIÐTAL Páll Friðriksson

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.