Feykir - 30.09.2010, Síða 2
Lóuþrælar fara á stjá
Feykir
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@feykir.is & 861 9842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Áskriftarverð:
284 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
2 Feykir 36/2010
Leiðari
Tek hatt minn ofan
Ég játa það fúslega að fyrir umfjöllun Feykis um lesblindu
í síðustu viku og áframhaldandi umfjöllun blaðsins í
þessari viku hafði ég takmarkaðan skilning á hugtakinu
lesblinda. Jú ég vissi að lesblinda var til, ég veit og þekki
foreldra barna sem þjást af lesblindu auk þess sem ég
þekki til fullorðinna einstaklinga sem greindir hafa verið
með lesblindu. Það sem ég hins vegar hafði ekki gert mér
grein fyrir var hversu stutt er í raun síðan farið var að
vinna markvisst með lesblinda og veita þeim þá aðstoð
sem þeir þurftu. Sorglegt þykir mér til þess að vita að
einstaklingur sem ekki er nema tveimur árum eldri en ég
sjálf hafi hrökklast frá námi sökum skilningsleysis á hans
aðstæðum. Að ár eftir ár hafi hann verið „niðurlægður“
fyrir framan jafnaldrana sökum skorts á þekkingu
kennara hans. Skilaboðin gengu ekki milli kennara og
lítill drengur grét á kvöldin yfir óréttlæti heimsins. Taldi
sig bæði heimskan og latan af því að hann náði ekki
jafngóðum tökum á lestri og jafnaldrar hans.
Ég tek hatt minn ofan fyrir Helga Ingimarssyni fyrir
að hafa á fullorðinsárum horfst í augu við „fötlun“ sína
leitað sér aðstoðar og viðurkennt vandann. Ég tek hatt
minn ofan fyrir Þóru Björk Jónsdóttur sem leiðbeinir jafnt
ungum sem öldnum sem takast vilja á við þann vanda
sem lesblinda er. Ég tek hatt minn ofan fyrir starfsfólki
Farskólans fyrir að gera þessu vandamáli hátt undir höfði
og styðja og styrkja þá sem á sínum tíma hrökkluðust frá
námi sökum lesblindunnar.
Saga Helga segir okkur að það er aldrei of seint að taka
á sínum málum. Saga hans ætti líka að kenna okkur að
sýna aðstæðum náungans skilning og ekki síst að kenna
börnum okkar umburðalyndi gagnvart þeim sem skera
sig úr fjöldanum.
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri
Sveitarstjórn Skaga-
strandar hefur falið
sveitarstjóra að taka
saman lista yfir þær eignir
einstaklinga, fyrirtækja
og sveitarfélagsins þar
sem útlit og umgengnismál
séu aðfinnsluverð. Jafn-
framt var sveitarstjóra á
fundinum falið að koma
með tillögur að leiðum til
úrbóta.
Var ákvörðun þessi tekin í
kjölfar þess að á undan-
förnum árum hafa orðið
miklar framfarir í umhverfis-
og umgengnismálum á
Skagaströnd en þó er það
mat sveitarstjórnar að alltaf
megi gera betur.
Á síðasta bæjarstjórnar-
fundi Blönduósbæjar gagn-
rýndi minnihlutinn harðl-
ega núverandi meirihluta,
fyrrverandi bæjarstjórn og
embættismenn bæjar-
félagsins, fyrir óráðsíu og
óvönduð vinnubrögð við
nýbyggða sundlaug.
Ný sundlaug var tekin í
notkun á Blönduósi um mitt
þetta ár. Endanlegur
kostnaður liggur ekki fyrir,
en hann verður væntanlega á
fimmta hundrað milljónir
króna. Á síðasta fundi
bæjarstjórnar urðu harðar
deilur um 130 milljóna króna
framúrkeyrslu á kostnaði við
byggingu sundlaugarinnar,
sem minnihlutinn segir ekki
hafa verið heimild fyrir. Þetta
séu algjörlega ólíðandi
vinnubrögð og kalli á sérstaka
rannsókn.
Oddný M. Gunnarsdóttir,
oddviti S-listans sem er í
minnihluta bæjarstjórnar,
segir að búið sé að skuldsetja
sveitarfélagið óeðlilega mikið
og ljóst sé að þetta muni
íþyngja sveitarfélaginu
verulega.
Ágúst Þór Bragason, forseti
bæjarstjórnar og fulltrúi
L-listans, vísar gagnrýni
minnihlutans á bug. Hann
segir, að greiðslubyrgði
sveitarfélagsins hafi ekki
aukist sem neinu nemi við
þetta lán. Þá hafi verið
ákveðið að draga úr
framkvæmdum í
sveitarfélaginu næstu tvö
árin.
Blönduós
Deilt um kostnað
Sveitarstjórn Skagafjarðar
Menningarráð Norðurlands vestra
Skagafjörður – Austur Hún
SSNV
Styður óháða úttekt
á forsendum tillagna
Hafrannsóknarstofnunnar
Mikil ásókn í menningarstyrki
Sameining HSB og HS ekki ákveðin
Jón Óskar í starfshóp um svæðis-
sendingar RÚV
Atkvæðagreiðsla um Landsdóm
Ólína skar sig úr
Þegar kjörið var um hvort
ákæra ætti ráðherra fyrir
Landsdómi á Alþingi í gær
voru alþingismenn í
Norðvesturkjördæmi nokkuð
samkvæmir sjálfum sér, allir
nema Ólína Þorvarðadóttir
sem telur að ákæra eigi Alla
þrjá ráðherrana en ekki
Ingibjörgu Sólrúnu.
Þingmenn VG þau Ásmundur
Einar Daðason, Lilja Rafney
Magnúsdóttir og Jón Bjarnason
töldu rétt að ákæra en á móti
voru þeir Ásbjörn Óttarsson,
Einar K Guðfinnsson ,
Guðbjartur Hannesson,
Guðmundur Steingrímsson og
Gunnar Bragi Sveinsson sem
allir sögðu nei.
Sveitarstjórn Skagafjarðar
samþykkti á fundi sínum í
gær ályktun þess efnis að
styðja þau áform
sjávarútvegsráðherra um að
láta fara fram óháða úttekt á
forsendum tillagna
Hafrannsóknarstofnunar og
ákvarðanna um magn
veiðiheimilda í þorski og
öðrum nytjategundum. Í
ályktun sveitarstjórnar sem
samþykkt var samhljóða í gær
segir enn fremur; -Sveitarstjórn
hvetur ráðherra til að fylgja
þessum áformum eftir og
hrinda þeim í framkvæmd hið
fyrsta og leggur áherslu á að
veiðiheimildir verði auknar á
þeim tegundum og svæðum
þar sem ljóst þykir að hægt sé
að auka afla með sjálfbærum
hætti, til hagsbóta fyrir
sjávarbyggðirnar í landinu“
-Þann 15. september sl.
rann út umsóknarfrestur um
verkefnastyrki
Menningarráðs Norðurlands
vestra. Alls barst 81
umsókn þar sem óskað er
eftir tæpum 56 milljónum
króna í styrki. Í heildina gera
umsækjendur ráð fyrir um
170 milljónum króna í
framkvæmdir við þau
verkefni sem sótt er um
styrk til. Til úthlutunar eru
um 17 milljónir króna.
Umsóknirnar eru mjög
fjölbreyttar og spanna flest svið
menningarlífsins.
Þann 11. október nk. mun
menningarráðið funda um
umsóknirnar og mega
umsækjendur vænta svara
fljótlega eftir það.
Heilbrigðisráðherra,
Guðbjartur Hannesson
ásamt fríðu föruneyti,
heimsótti
heilbrigðisstofnanirnar á
Blönduósi og Sauðárkróki sl.
fimmtudag. Tilefni
heimsóknarinnar var að fara
yfir komandi fjárlög með
framkvæmdastjórnum auk
þess að ræða hugsanlega
sameiningu HSB og HS.
Ekki hafa verið teknar neinar
ákvarðanir um sameiningar en
ráðherra vildi þó kynna sér
viðhorf heimamanna til slíkar
sameiningar.
Stjórn SSNV hefur kjörið Jón
Óskar Pétursson,
framkvæmdastjóra SSNV,
fulltrúa sambandsins í
starfshóp um
svæðisútsendingar RÚV af
Norður og Austurlandi.
Starfshópurinn mun skila
tillögum sínum til stjórnar
RÚV. Það var framkvæmda-
stjóri Eyþings sem óskaði eftir
því að SSNV legði til fulltrúa í
starfshópinn.
Skagaströnd
Umhverfis-
átak
Heilbrigðisráðherra í heimsókn. Mynd: hskrokur.is