Feykir


Feykir - 30.09.2010, Síða 6

Feykir - 30.09.2010, Síða 6
6 Feykir 36/2010 Helgi Ingimarsson í Feykisviðtali Ég er ekki greindur hálfviti Helgi Ingimarsson á Sauðárkróki hætti námi um áramót veturinn sem hann var í níunda bekk nú tíundi bekkur, en hann hafði í gegn um alla sína skólagöngu barist við lesblindu án þess að fá hana nokkurn tímann viðurkennda. Hann upplifði sig alltaf sem bæði latan og illa gefinn í skólanum. Skólastjórinn spurði hvort hann ætlaði alla tíð að vera blettur á þjóðfélaginu. Það var ekki fyrr en fyrir þremur árum að Helgi fékk uppreisn æru, er eiginkona hans skráði hann í lesblindugreiningu hjá Farskóla Norðurlands vestra. Helgi deilir hér sögu sinni með lesendum Feykis. Helgi tekur á móti blaða- manni á fallegu heimili sínu við Eskihlíð á Sauðárkróki. Við hittumst seinni part á sunnudegi og er Helgi nýkominn frá því að sækja hross yfir í Hjaltadal. Ég finn að Helgi er örlítið kvíðinn fyrir viðtalinu og segi hughreystandi að ég hafi enn sem komið er ekki misst viðmælanda. Við hlæjum bæði en eftir því sem líður á viðtalið geri ég mér grein fyrir ástæðum kvíða Helga, sem hugsar með hryllingi til skólagöngu sinnar. -Hún var bara martröð, það eru engin önnur orð yfir hana. Allt lesefni lá illa fyrir mér og í framhaldinu átti ég í erfiðleikum með allt nám. Ég hafði góða kennara inn á milli en síðan kom alltaf nýr kennari á hverju hausti og það var eins og upplýsingar um mig gengju aldrei á milli kennara og ég var alltaf kominn aftur á byrjunarreit. Ég var látinn lesa upp fyrir framan allan bekkinn sem var náttúrulega algjör martröð fyrir mig. Haust eftir haust var ég settur í þessar aðstæður sem í framhaldinu buðu upp á það einelti sem ég varð fyrir, rifjar Helgi upp. Sjálfur segist hann ekki hafa átt neina vini úr sínum árgangi og að hann hafi ekki áhuga á að fara á bekkjarmót. Svo djúpt ristir lífsreynsla hans úr skóla, öllum þessum árum síðar. Það mætti kannski telja að viðmælandi minn væri kominn hátt á sjötugsaldur en svo er ekki. Helgi er ekki nema 38 ára gamall. Var aldrei boðið upp á neina greiningu? -Nei, ekki hér. Mágkona mömmu sem þá var kennari við Melaskóla kom henni í samband við sérkennara þegar ég var níu ára gamall. Við mamma fórum suður til Reykjavíkur í nokkra daga en sú ferð var algjörlega að frumkvæði mömmu. Ég var látinn taka próf þar sem ég skoraði lágt á sumum sviðum en á öðrum skoraði ég á við 14 ára ungling. Greiningin sem ég fékk hét ekki lesblinda á þeim tíma en mamma fékk engu að síður plagg þess eðlis að ég ætti í örðugleikum með lestur. Mamma fór með plaggið til skólastjórans en þar virðist það einungis hafa endað ofan í skúffu því haustið eftir byrjaði allt á sama veg. Ég var látinn lesa upp í tíma og kom algjörlega niðurbrotinn heim. Mamma hafði þá samband við kennarann minn sem hafði aldrei séð plaggið. Þannig gekk þetta ár eftir ár að ég var pikkaður upp og gerður að fífli fyrir framan alla, aldrei var ég beðin afsökunar heldur látið líða eins og ég væri bæði latur og heimskur. Síðan var farið að taka mig út úr tímum og þá hófst söngur hjá samnemendunum sem fannst ósanngjarnt að ég færi úr tíma en ekki þeir. Ég einangraði mig því félagslega og leið mjög illa. Þegar ég hugsa til baka til skólagöngu minnar fæ ég einfaldlega hroll, segir Helgi. Ætlar þú að vera blettur á þjóðfélaginu? Fermingarárið sitt fór Helgi að vinna hjá útgerðinni og vann hann þar tvö sumur. Haustið sem hann fór í níunda bekk vann hann með skólanum og um áramót ákvað hann að fara ekki aftur í skólann. -Öfugt við skólann leið mér vel í vinnunni. Þar var ég alls ekki útundan félagslega jafnvel þó vinnufélagarnir væru allir eldri en ég. Ég fór að skrópa í skólann enda langaði mig ekki að vera þar, ég var farinn að sækja í að láta reka mig út úr tímum. Í eitt skipti sem ég hafði verið rekinn út tilkynnti ég skólastjóranum að ég væri hættur. Þá horfði Björn Sigurbjörnsson skólastjóri á mig og sagði; -Ætlar þú að vera blettur á þjóðfélaginu? Þetta voru stór orð við ungling og lengi vel þorði ég ekki að segja mömmu hvað hann sagði við mig, enda hefði hún aflífað karlinn. Ég hætti í skólanum en orð skólastjórans sátu í mér og gera enn. Við vorum tveir sem hættum í skólanum þennan vetur og auðvitað var þetta á milli tannanna á fólki enda mátti þetta strangt til tekið ekki. Ég lét mér fátt um finnast enda átti ég stuðning míns fólks og fór að vinna hjá útgerðinni. Þrátt fyrir að hafa lent í miklu mótlæti leitaði Helgi aldrei huggunar í áfengi eða öðrum vímugjöfum og áfengi hefur hann aldrei smakkað. -Það má segja að skepnurnar sem pabbi var alltaf með hafi bjargað mér og eins átti ég fullorðna menn sem góða og trausta vini. í þeirra hópi var ég einn af félögunum. Þetta Védís og Helgi ásamt börnunum þremur þeim Hinriki Pétri, 12 ára, Hákoni Inga 8 ára og Hrafnhildi Ýr 6 ára.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.