Feykir - 30.09.2010, Síða 3
36/2010 Feykir 3
6 nemendur frá Varmahlíðar-
skóla komust áfram í
Nýsköpunarkeppni grunn-
skólanemenda en á dögun-
um fóru nemendurnir suður í
vinnusmiðjur og unnu áfram
með sínar hugmyndir
Skemmst er frá því að segja að
tvær hugmyndir af fjórum
fengu verðlaun en það voru
hugmyndirnar Brummi sem
er hjálpartæki fyrir einstaklinga
með skerta hreyfigetu í sundi.
Brummi er rafknúinn þannig
að einstaklingur getur farið
hvert sem hann vill í
sundlauginni, þær Ingibjörg
Lóa, Katarína og Sædís Rós
hönnuðu hann. Hin
hugmyndin er Rúllusamstæða
sem límir enda sem þær
Berglind og Sonja gerðu. Til
hamingju stelpur með
árangurinn.
Brummi og rúllusam-
stæða hlutu verðlaun
Myndin er tekin af heimasíðu Varmahlíðarskóla
Varmahlíðarskóli
2010-2022
Sveitarfélagið Skagaströnd, aðalskipulag
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum
26. ágúst 2010 tillögu að aðalskipulagi Sveitarfélagsins
Skagastrandar 2010-2022.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla voru til sýnis á skrif-
stofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 25. maí til 22. júní
2010 með fresti til að skila inn athugasemdum til 7. júlí 2010. Ennfremur
var tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á
heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is.
Tvær athugasemdir bárust vegna tillögu að tilfærslu Skagastrandarvegar.
Athugasemdirnar gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún
verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um
lokaafgreiðslu tillögunnar. Greinargerð með athugasemdum og umsögnum
um þær er á heimasíðu sveitarfélagsins.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um tillöguna og niðurstöður sveitar-
stjórnar geta snúið sér til sveitarstjóra Skagastrandar.
SveitarstjóriHúnaþing vestra
Björgunarsveitin Húnar var
kölluð út snemma á
miðvikudagsmorgun til að
aðstoða ábúendur á
Tannstaðabakka í Hrútafirði
en þar höfðu fjögur naut
fallið ofan í haughúsið.
Vel gekk að ná gripunum upp
úr haughúsinu og var því lokið
rétt upp úr níu.
Naut féllu í haughús