Feykir - 30.09.2010, Qupperneq 5
36/2010 Feykir 5
Formaður
knattspyrnudeildar
Tindastóls, Ómar Bragi
Stefánsson hefur ekki
ósjaldan bölvað
knattspyrnuvellinum á
Grenivík, sagt hann
ósléttan og
beinlínis hættulegan
leikmönnum. Í grein sem
hann skrifaði á sl. ári
kallaði hann völlinn
„kartöflugarð“ að
sjálfsögðu við litla
hrifningu heimamanna.
Eitthvað virtist þetta þó
hreyfa við þeim og tekin var
ákvörðun um að laga völlinn
og gera hann að almenni-
legum velli sem er hið besta
mál. Nú eru framkvæmdir
hafnar við völlinn og verður
m.a. lagt nýtt gras á hann
allan.
Forráðamenn Magna á
Grenivík eru miklir
húmoristar og ákváðu því að
minna Ómar á þessi ummæli
hans. Þeir ristu góða gras-
þöku úr gamla vellinum og
settu fimm kartöflur ofan á.
Þetta settu þeir síðan á
vörubretti, plöstuðu og
sendu með flutningabíl heim
til Ómars á Sauðárkrók.
Meðfylgjandi var líka eftir-
farandi bréf:
„Heill og sæll Ómar.
Í tilefni af því að nú eru
hafnar framkvæmdir a
kartöflugarðinum, nei fyrir-
gefðu knattspyrnuvellinum á
Grenivík, þá var það
samdóma álit stjórnar
Íþróttafélagsins Magna
að færa þér að gjöf
örlítið minningarbrot
af okkar góða velli. Við
teljum að þú hafir
hjálpað og rekið okkur
af stað í þessar
framkvæmdir og ekki
nema sjálfsagt að
verðlauna þig fyrir
það!
Að lokum óskum við
ykkur til hamingju með
að vera komnir upp í 2. deild
og vonandi sjáumst við þar
fljótlega!
F.h. stjórnar Magna
Þorsteinn Þormóðsson,
Formaður Magna.
P.S. Þar sem þú hefur verið
í lóðaframkvæmdum ætti
þetta minningarbrot að nýtast
þér vel!“
Ómar tók við þessari
höfðinglegu gjöf glaður í
bragði og kunni vel að meta
þessa hugulsemi þeirra.
Drengjaflokkur Tindastóls
lék gegn lærisveinum Vals
Ingimundarsonar í FSu í
fyrsta leik Íslandsmótsins í
ár á föstudaginn var og beið
12 stiga ósigur 76-64.
Strákarnir voru stressaðir í
fyrsta leikhluta og má segja
að leikurinn hafi tapast þá
en eftir því sem leið á
leikinn náðu strákarnir sér
á strik en í síðasta leikhluta
náðu þeir að saxa niður
rúmlega tuttugu stiga
forskot. Má því segja að
þrátt fyrir tap í fyrsta leik
lofi leiktímabilið mjög góðu
hjá hinu unga og efnilega
Tindastólsliði.
Stigin skoruðu: Guðmundur
Jóhann Guðmundsson 19,
Einar Bjarni Einarsson 14,
Ingimar Jónsson 13, Ingvi Rafn
Ingvarsson 9, Pálmi Geir
Jónsson 7 og Þorbergur
Ólafsson og Friðrik Þór
Stefánsson 1 stig hvor.
Meistaraflokkur Tindastóls
lék tvo æfingaleiki um
helgina. Hinn fyrri á
laugardag gegn Stjörnunni
og tapaðist hann 64-92.
Stigin skoruðu; Kiki 19,
Dimitar 13, Helgi Rafn 10,
Friðrik 6, Gidon Rietti (sem
var á reynslu) og Hreinn 5,
Halldór 4 og Þorbergur 2.
Á sunnudag lék liðið gegn
Skallagrími og hafði þar sigur
72-66 í leik þar sem allir fengu
að spila. Stigaskorið; Kiki 17,
Halldór 12, Dimitar 10, Friðrik
9, Einar 8, Hreinn 6, Helgi
Rafn 4, Guðmundur 3,
Þorbergur 3.
Næsti æfingaleikur er
áformaður á föstudaginn kl.
19.30 gegn Skallagrími í
Síkinu.
Íþróttafréttir Feykis
Fótbolti
Kartöflugarðurinn á Grenivík
Tap hjá drengjaflokki í fyrsta leik
Tap og sigur í æfingarleikjum
Körfubolti
( Liðið mitt )
Einu sinni Notts
County, ávallt
Notts County
Nafn? Stefán Ingi Svansson
Heimili? Hlíðarhjalli í Kópavogi
Starf? Matreiðslumeistari
Veisluturnsins í Kópavogi
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Notts County, elsta félagslið í
heimi og stofnað 1862.
Þetta er eins og með vín og osta,
verður alltaf betra eftir því sem
það verður eldra.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði?Nei aldrei, var
reyndar aldrei sáttur þegar Gaui
Þórðar tók við liðinu.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Jermaine Pennant
var í uppáhaldi, reyndar ekki fyrir
knatthæfileika heldur hversu
toppstykkið er tómt.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Bara í huganum.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Fékk bangsa að gjöf
þegar ég var 5 ára sem var
klæddur Notts County búning,
svaf alltaf hjá mér þegar ég var
yngri og gerir enn.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið? ÞSvanur
Jóhann sonur minn fær brátt
búning félagsins að gjöf, en
bangsann fær hann ekki.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei, hef
aldrei gert og mun aldrei gera,
svo lengi sem ég lifi.
Uppáhalds málsháttur? Einu
sinni Notts County, ávallt Notts
County!
Einhver góð saga úr boltanum?
Bangsinn góði felldi tár, þegar
Sam Allardyce yfirgaf klúbbinn
1999 fyrir Bolton.
Hvert var þitt síðasta
hrekkjarbragð?
Þeir hrekkir eru best gleymdir og
grafnir. En ég átti rosalega erfitt
með að skilja það þá en ég skil
núna hvað Óli Barðdal átti við
með því þegar hann sagði við
mig: ,,Stebbi ég held að þetta sé
ekki fyrir þig‘‘.
Spurning frá Júlíusi Jóhannssyni.
Ertu ekki djöfull góður Bósi?
Svar...Chicago baby Chicago
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum?
Jón Hjört Stefánsson
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi? Er þetta ekki
allt spurning um að vera nógu
hugmyndaríkur og bjartsýnn?
Feykir.is
Ferskur á netinu!
Hafðu samband - Síminn er 455 7176 og
netfangið feykir@feykir.is
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafaPéturs Guðjónssonar
frá Hrauni í Sléttuhlíð
Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-5
Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks fyrir góða umönnun.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.