Feykir - 30.09.2010, Page 10
10 Feykir 36 /2010
Mikill fjöldi tók þátt í Laufskálaréttarhelgi
Á föstudag var haldin
sölusýning á svæði Léttfeta
þar sem mörg glæsihross voru
til sýnis og sölu og eflaust
hafa tekist samningar um
hrossakaup. Um kvöldið var
haldin stórsýning og skagfirsk
gleði þar sem fólk skemmti
sér vel undir skemmtilegum
atriðum en það var álit gesta að
atriðin hafi verið góð, stutt og
hnitmiðuð.
Á laugardeginum mætti fjöldi
manns í Kolbeinsdalinn til að
fylgja stóðinu til Laufskálaréttar
og var það mat manna að ekki
hafi verið svo margt manna
áður við stóðreksturinn. Í
réttunum voru um 600 hross
dregin í dilka og gekk það allt
slysalaust fyrir sig.
Um kvöldið var haldinn
stórdansleikur í reiðhöllinni
Svaðastöðum þar sem yfir tvö
þúsund manns komu saman
til að skemmta sér undir
tónum Vonarmanna ásamt
gestasöngvurum.
Blaðamaður Feykis var
staddur í Laufskálarétt og
Kristín Ármannsdóttir tók
myndir í reiðhöll á föstu-
dagskvöld.
Mikill fjöldi fólks tók þátt og fylgdist með þeim fjölmörgu atriðum sem voru í boði á Lauf-
skálaréttarhelgi. Að sögn lögreglu fór allt mjög vel fram alla helgina, veðrið gott og menn
slakir.
Orðatiltækið maður er manns gaman átti sannarlega við í réttunum.
Steingrímur á Laufhóli og Jónas Sigurjónsson ræða málin.
Hörður Sigurjónsson hlustar af athygli á Sigurð bónda í Víðinesi.
Hér eru þeir Baldvin Ari og Maggi Magg.
leiknir við mikinn fögnuð áhorfenda
Hér er sýnt af leikurum hvernig Mette Mannseth og Þórarinn
Eymundsson bera sig að í hestamennskunni
Mette sýnir hvernig spænska sporið er tekið
Mikill fjöldi fólks kom saman á föstudagskvöldið í reiðhöllinni
Svaðastaðir
Tekið á því í Laufskálaréttunum.
Harðfiskurinn þykir líka hentugur í réttunum.
Glaumur og gleði
í Skagafirði