Feykir


Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 6

Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 6
6 Feykir 09/2011 Sigríður Káradóttir er orginali á Króknum, dóttir Kára Steindórs og Gerðar Geirsdóttur. Sigríður, eða Sigga eins og hún er kölluð, er gift Gunnsteini Björnssyni í Sjávarleðri og saman eiga þau fjögur börn á aldrinum 15-25 ára. Sigga hefur undanfarin ár unnið hjá Sjávarleðri en sl. vor opnuðu þau Gestastofu sútarans en Gestastofunni hefur verið vel tekið og framundan eru frekari framkvæmdir. Feykir slóst í för með nemendum á textíl- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og fékk skoðunarferð um verksmiðjuna og á eftir einkaspjall við Siggu Kára. Það mátti sjá örlítinn viðbjóð í svip hönnunarnemanna ungu þegar lagt var inn í verksmiðjuna enda lyktin, tja kannski ekki sú besta, en það tók Siggu innan við fimm mínútur að breyta þeim svip yfir í spennu og hrifningu enda margt sem gleður hönnunaraugað þegar verksmiðjur sútarans eru skoðaðar, en innan þeirra má finna bæði Loðskinn og Sjávarleður. Sigga fræðir nemendurna um hráefnið á ferð þeirra um húsið og segir að setja upp verslun sem selja myndi vörur úr verksmiðjunni auk handverks sem unnið er úr afurðum hennar. sem er lambs- leður, fiskleður, hreindýraleður, kálfaleður, mokki, strútsleður og fleira. „Við renndum í raun svolítið blint í sjóinn með það hvernig þetta færi í landann en fengum strax mikinn gesta- fjölda og í raun kom það okkur á óvart hversu margir lögðu lykkju á leið sína gagngert til þess að koma og skoða þetta hjá okkur“ Sigga segir að Skagfirðingar hafi tekið hugmyndinni vel og að þau finni fyrir miklum meðbyr bæði í Skagafirði og eins frá ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi vestra. „Við erum yfir sumartímann að bjóða upp á ferðir á vissum tímum með leiðsögn og kostar þá 1000 krónur á manninn nema hóp- arnir séu þeim mun stærri þá bjóðum við lægra verð. Eins erum við að þreifa svolítið fyrir okkur með það hvað það er sem ferðamaðurinn vill og fleira en við höfum verið að fá kveðjur héðan og þaðan úr heiminum frá fólki sem hefur komið og skoðað hjá okkur.“ Í þeirri ferð sem blaðamaður fór með í kom í ljós að Sigga er fædd í hlutverk leiðbeinandans en sjálf segir hún að það hjálpi sér að hafa hér á árum áður gengið í flest störf í verk- smiðjunni og því þekki hún það sem þar fer fram betur en ella. „Gunnsteinn og María eru líka að fara með hópa og eins vorum við í fyrrasumar með hana Agnesi í þessu með okkur sem hafði þá frá áramótum unnið í verksmiðjunni.“ Sigga segir að um 90% af því sem framleitt sé í Loðskinni og Sjávarleðri fari í sölu á erlendum mörkuðum en Íslandsmarkaðurinn hafi þó eflst verulega með tilkomu Gestastofu. „Hér erum við líka að bjóða upp á kassa þar sem hægt er að kaupa skinn sem hafa komið gölluð úr framleiðslunni en er engu að síður hægt að nota í handverk. Hér áður var mun erfiðara að losna við þessi skinn en það er í dag. Þegar lagt var upp í verkefnið Gestastofu sútarans fór Sigga af stað og sótti um styrki en styrkir frá Menningarráði SSNV og atvinnusjóði kvenna hjálpuðu verulega til við stofnkostnað auk þess sem þau Sigga og Gunnsteinn voru útsjónarsöm þegar kom að innréttingum og fleiru. „Ég var búin að sjá fyrir mér að þurfa að eyða viku í Reykjavík að skoða Er búin að finna hilluna mína Sigríður Káradóttir í Feykisviðtali þeim í leiðinni frá hinum ýmsu tískuhúsum og hönnuðum sem nota hráefni frá Sjávarleðri. Nemendurnir læra um kosti þess að leður og roð sé litað í gegn og eins fá þær að strjúka skinn, roð og feldi. Hrifningin verður meiri og meiri og heyra má að stelpurnar stefna á hópferð í efniskaup þegar fyrsta sumarhýran hefur skilað sér inn í sumar. Úrvalið er ótrúlegt og möguleikarnir óendanlegir, ekki skemmir lifandi og skemmtileg leiðsögn Siggu sem sjálf segir að í hvert sinn sem hópur komi í húsið verði að horfa yfir hópinn og meta hvaða tegund af leiðsögn henti. „Konurnar vilja meira fá að horfa, snerta og fá hugmyndir á meðan karlarnir vilja fá að vita allt um vélarnar og hvað þær geta, þá er Gunnsteinn betri leiðsögumaður en ég,“ útskýrir Sigga og hlær. Áður en Sigga fór að vinna hjá Sjávarleðri rak hún sportvöruverslun á Krókn- um auk þess sem hún vann um tíma hjá Loðskinni, í félagsmiðstöðinni á Sauðár- króki og við markaðsmál hjá Kjötafurðarstöð KS. Árið 2006 kom hún síðan alkom- in í Sjávarleður en þá hafði Gunnsteinn unnið hjá Loð- skinni frá árinu 1991. „Hann er með þetta allt á hreinu, segist hafa byrjað hjá Loðskinni þann 25. janúar árið 1991,“ segir Sigga og hlær. „Hann fór síðan yfir í Sjávarleður árið 2003 en þá var reksturinn erfiður en hann náði fljótlega góðum samningum við erlenda aðila og náði að koma rekstrinum á lappirnar á nýjan leik. Skömmu síðar kom Nike inn og í framhaldinu fleiri merki.“ En skyldi Sigga ekkert hafa verið smeyk við að hætta í sinni vinnu og fara að vinna alfarið með eiginmanninum? „Nei, veistu alls ekki. Okkur hefur alltaf gengið svo vel saman að við vissum að þetta yrði ekki vandamál.“ Hugmyndin að Gestastofunni alls ekki ný af nálinni Við Sigga sitjum og spjöllum í Gestastofunni og reglulega koma iðnaðarmenn og trufla, það þarf að bora hér og saga þar, allt á fullu. En hvernig skyldi hugmyndin að Gestastofunni hafa komið til? „Upphaflega kom hugmyndin frá Finni Árnasyni, stjórnarformanni, að koma hér á fót galleríi þar sem fólk gæti komið og keypti hjá okkur það sem við erum að framleiða. Okkur fannst þetta ekkert sniðugt til að byrja með og ætluðum ekki að fara að þjónusta svoleiðis inni í verksmiðju. Hugmyndin var því lögð til hliðar og þróaðist þó alltaf með okkur einhvern veginn. Þangað til við ákváðum að taka hana fram aftur og gera eitthvað gott úr henni. Ekki síst vegna þess að við fundum fyrir því að fólk var að koma til okkar á skrifstofuna til að kaupa sér efni, eða fá að skoða verksmiðjuna. Eins voru heimamenn með gesti að koma með þá hingað til að sýna þeim. Við vorum því kominn að þeim tímapunkti að annað hvort þyrftum við að taka alveg fyrir þessar heimsóknir eða taka bjóða upp á þessa þjónustu með markvissari hætti. Gamla hugmyndin var því dregin fram og í janúar 2010 stofnuðum við félagið Gestastofa sútarans og þann 4. júní opnuðum við stofuna. Tókum svolítið íslensku leiðina á þetta,“ segir Sigga og hlær. Áður en hægt var að opna þurfti þau að laga húsin heil- mikið að utan og gera aðkomuna betri auk þess sem ákveðið var

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.