Feykir


Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 8

Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 8
8 Feykir 09/2011 Tveir skagfirskir matreiðslumenn með þorrablót í Ameríku Kátína með sviðahausa og hrútspunga Maður er manns gaman segir gamalt máltæki og á það sérstaklega við á þorranum þar sem miklir mannfagnaðir eru um allar koppagrundir enda þorrablótin sívinsæl. Íslendingar eru staðsettir um víða veröld og Íslend- ingafélög starfrækt á ýmsum stöðum og til að halda í matarmenningu og ekki síst að sýna sig og sjá aðra hafa þau mörg hver haldið þorrablót fyrir sína félagsmenn. Fyrir skömmu fóru tveir skagfirskir matreiðslumenn Eiður Baldursson og Jón Daníel Jónsson á Sauðárkróki til Ameríku með þorramat í farteskinu og elduðu á tveimur þorrablótum. Þetta voru Íslendingafélögin í Phoenix í Arizona og Washington DC sem stóðu að þorrablótunum og fengu þá félagana til að mæta. Eiður hafði reyndar áður farið út og séð um þorrablót í Arizona en frænka hans var nú komin í stjórn Íslendingafélagsins í Washington og fékk hann til að taka að sér þeirra blót líka. Eiður var til í það og hafði samband við Jón og fékk hann til liðs við sig. Blótin voru haldin sitthvora helgina í sitthvoru tímabeltinu. Ferðalagið var ansi langt því byrjað var á því að fljúga til Seattle með allan matinn, og gekk það mjög vel að sögn Jóns. Eftir átta tíma flug þangað biðu þeir í tvo klukkutíma áður en flugið var tekið til Phoenix sem tók fjóra tíma. Þrátt fyrir þetta langa ferðalag má segja að þeir hafi farið aftur í tímann því lagt var upp í ferðalagið tíu mínútur í fimm og voru lentir fimm mínútur í fimm að staðartíma í Seattle. –Það var mjög sérstakt að stíga úr flugvélinni í eyðimörkinni komandi frá Íslandi í frosti og snjó og lenda í 30 stiga hita og sól, segir Jón en þangað voru þeir komnir á miðvikudagskvöldi. Á fimmtudegi vikuna eftir var tæplega fjögurra tíma flug til Millwaukee þar sem lent var í 5 stiga hita og snjókomu. Þar var beðið í fjóra tíma áður en ferðalagið gat haldið áfram til Washington en flugið þangað tók um þrjá tíma. Daginn eftir blótið í Washington var engin miskunn og haldið var af stað keyrandi í rúmlega fimm tíma til New York þar sem flugið var tekið til Íslands. -Við tókum allan mat með okkur til Phoenix en mest allur matur var tekinn í gegnum sendiráðið í Washington fyrir blótið þar og gekk það ótrúlega vel, segir Jón. Ekki lentu þeir í vandræðum með matinn þó í farteskinu hafi verið súr og kæstur matur en að sögn Jóns var allur þorramatur í boði auk annars íslensks matar s.s. steikt lambalæri og reyktur og grafinn lax. –Það er gert aðeins meira úr veislunni með lambalærunum því súrmaturin er meira sem sýnishorn, segir Jón. Í Phoenix mættu 130 manns á blótið þar sem hinn Dalvíkættaði Gis Jóhannsson skemmti en hann varð kunnur hér er hann snéri texta lagsins Traustur vinur upp á enska tungu. -Gis ætlaði að taka Traustan vin á íslensku fyrir þorrablótsgesti en fann ekki textann á Netinu svo ég raulaði lagið fyrir skemmtikraftinn sem skrifaði hann niður. Svo sagði hann við mig að hann myndi kalla mig upp þegar hann tæki lagið, sagði Jón sem hélt að maðurinn væri að grínast. –Svo kallaði hann mig upp helvískur, svo ég fór bara og söng með honum. Fyrir vikið er ég búinn að troða upp í Ameríku, og það er meira en margur músíkantinn getur sagt, segir Jón og hlær dátt við tilhugsunina. Jón segir að flestir Íslend- ingarnir hafi smakkað þorra- mat áður en einhverjir gesta þeirra hafi ekki séð slíkan mat fyrr og voru sumir sparir á græðgina. –Fólki leist misvel á þessi ósköp, segir Jón og hlær, og þá sérstaklega sviðahausana og hrútspungana. -Það þykir óskaplega skemmtilegt þegar verið er að útskýra fyrir fólki hvað þetta er. Fólk bregst misjafnlega vel við, allt frá því að finnast þetta mjög sniðugt og í það að allt að því að móðgast, segir Jón. Í Washington komu um 110 manns á blótið og segir Jón að allt öðruvísi stemning hafi verið þar. -Þarna var fullorðnara fólk og ball á eftir og einhvern veginn allt öðru vísi, segir Jón en hann var ánægður með hvað fólk var jákvætt út í matinn og tilbúið til að smakka á þessum framandi réttum. Að sögn Jóns tókst ferðin í alla staði vel og voru þeir beðnir um að koma að ári og segist Jón vera alveg til í það. Það var líka reynt að skemmta sér í Ameríkunni og farið á NBA leik. Hér gengur undirbúningurinn vel og allt eins og á að vera. Þorrablótsgestir í Phoenix voru á öllum aldri og skemmtu sér vel. Eiður þvær sviðin svo þau líti vel út í Ameríkunni. Það er allt stórt í Ameríku. Hér eru þeir mátar, Eiður og Jón Dan, við styttu af Abraham Lincoln.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.