Feykir


Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 11

Feykir - 03.03.2011, Blaðsíða 11
 09/2011 Feykir 11 ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) Höskuldur og Elín kokka Ferskt og fer vel í maga 2 msk. ristuð sesamfræ Salt og pipar Meðlæti: 6-8 ristaðar franskbrauðsneiðar og smjör Skerið kjúklinginn í strimla og steikið á pönnu. Bætið BBQ sósunni á og blandið vel saman. Kælið. Skolið og rífið salatið niður, skerið tómatana, laukinn, agúrkuna og jarðarberin niður. Blandið öllu saman í skál og ásamt rúsínunum og kotasælunni. Skiptið á 6 diska, vætið í salatinu með balsamsósunni. Ristið sesamfræ og furuhnetur með því að velta á heitri, þurri pönnu uns brúnast. Stráið sesamfræjunum og hnetunum yfir og skiptið kjúklingastrimlunum á diskana og skreytið með grein af ferskri kryddjurt. Berið fram með ristuðu brauði og íslensku smjöri. Einnig má steikja bringurnar heilar og skera svo niður. Grænt Thailenskt kjúklingakarrý 500 gr. kjúklingakjöt, beinlaust Pipar Salt 2 msk. olía 2 msk. grænt karrýmauk (green curry paste) eða eftir smekk 2 dósir létt-kókósmjólk 1 kúrbítur meðalstór 250 gr. spergilkál 250 gr. kirsuberjatómatar 2 vorlaukar 1 límóna ½ knippi kóríander Kjúklingurinn er skorinn í teninga, kryddaður með salti og pipar og brúnaður létt í olíunni í þykkbotna potti. Karrýmaukið og kókosmjólk- inni er hrært saman við og látið malla í heitum potti við vægan hita í ca. 10-15 mín. Kúrbíturinn er skorinn í helminga og síðan í 1 cm. þykkar Það eru þau Höskuldur Birkir Erlingsson og Elín Rósa Bjarnadóttir á Blönduósi sem tóku við af áskorendum Guðmanns og Snjólaugar en eftir að blaðið fór í prentun kom í ljós að þeir gátu ekki tekið þátt. -Við veltum mikið vöngum yfir því hverju við ættum að koma á framfæri, hvort að þetta ætti að verða ein samstæð máltíð með forrétti, aðalrétti og eftirrétti eða bara uppskriftir af því sem að okkur finnst gott og er í uppáhaldi hér. Við ákváðum það síðarnefnda, segja þau Höskuldur og Elín og bæta við að kannski væri rétt að taka það fram að hjá þeim er búið að vera heilsuátak og matseðillinn helgist nokkuð af því. -Forrétturinn er salat með BBQ kjúklingi og kotasælu. Rosalega gott og ferskt og fer vel í maga. Við erum oft með þetta á borðum hér og þess vegna sem aðalmáltíð einnig. Okkur Elínu finnst tælenskur matur rosalega góður og aðalrétturinn er ættaður þaðan. Það er Grænt tælenskt kjúklingakarrý. Það er sama með þennan rétt að hann fer vel í maga og maður verður ekki útbelgdur af honum, segir Höskuldur. -Að lokum þá er það eftirrétturinn og þar er svona smá óhollusta. Við köllum hann Eplagóðgæti og með honum má borða þeyttan rjóma eða ís og er reyndar eiginlega alveg nauðsynlegt. Höskuldur og Elín skora á þau Sigurð Erlendsson stórbónda og konu hans Þóru Sverrisdóttur Oddvita Húnavatnshrepps og húsfreyju á Stóru- Giljá að koma með næstu uppskriftir úr Austur- Húnavatnssýslu. Salat með BBQ kjúklingi og kotasælu fyrir 6 manns 2 stk. kjúklingabringur, beinlausar ¼ haus jöklasalat, meðalstór 2 stk. tómatar 1 stk. vorlaukur 1 lítil dós kotasæla ¼ stk. agúrka 8 stk. jarðarber ½ dl. rúsínur 1 msk. ristuð sesamfræ 20 stk. ristaðar furuhnetur 2 msk. olía til steikingar ½ dl. hunangs BBQ sósa Balsamedikssósa: 1 dl. olífuolía 2 msk. balsamedik ½ stk. lítill rauðlaukur sneiðar og spergilkálinu skipt í kvisti. Sett í pottinn og látið malla í 5 mín. Tómötunum bætt í pottinn ásamt söxuðum vorlauk og látið malla í 5 mín. í viðbót. Bragðbættu sósuna með límónu og salti eftir smekk, stráðu söxuðu kóríanderlaufi yfir og berðu réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og límónubátum. Eplagóðgæti 3 stk. epli gul 3 dl. makkarónur 1 dl. rúsínusúkkulaði Karamellusósa Karamellusósa 200 gr. sykur 50 gr. smjör 1 dl. rjómi 1 dl. vatn Meðlætið Þeyttur rjómi eða vanilluís Flysjið eplin og kjarnahreinsið, skerið í bita. Myljið makkarónurnar saman við eplabitana. Saxið súkkulaðið og bætið í. Hellið karamellunni yfir, og blandið vel saman. Karamellusósa: Bræðið sykurinn við vægan hita á pönnu. Hrærið smjörinu saman við þegar sykurinn er orðinn ljósbrúnn. Bætið loks rjóma og vatni saman við. Sjóðið örlítið niður og kælið karamelluna – en athugið að karamellan þykknar við að kólna. Verði ykkur að góðu! Heilir og sælir lesendur góðir. Sú villa varð í síðasta þætti að föðurnafn Torfa frá Hóli misritaðist, þar á að standa Sveinsson. Fyrsta vísan að þessu sinni, held ég endilega að sé eftir hinn snjalla Sveinbjörn Beinteinsson frá Draghálsi. Bið lesendur að gera mér viðvart ef þeir telja það ekki rétt. Íturmenni hljóms og hjals hélt þá enn að væri, upp til hennar aðaldals opið rennifæri. Þegar verið var að koma héraðsfrétta- blaðinu Borgfirðing á koppinn á sinni tíð var auglýst eftir tillögum að nafni á blaðið. Magnús Jósefsson í Borgarnesi svaraði með þessum þremur vísum. Nafns þið leitið, verðlaun veitið völdu heitinu. Gott nafn veit; það gæti heitið Gróa á leitinu. Héraðsfréttir heita skal. Held að það sé nafnið rétt. Utan frá sjó og inn í dal á að bera héraðsfrétt. Borgfirðingur blað skal heita best á vorri jörð. Lesið jafnt til sjós og sveita sé um Borgarfjörð. Og eins og áður segir var nafnið Borgfirð- ingur valið. Einhverju sinni er þeir voru staddir á vísnakvöldi í samkomuhúsinu Logalandi, Magnús og allsherjargoðinn, orti Magnús svo fallega til goðans. Röddin skær og hugsun heið hrundið fær burt trega. Sveinbjörn tæra sónarleið siglir bærilega. Ennið hátt en augun snör ekkert flátt í sinni. Silfurgrátt er skegg og skör skart frá náttúrunni. Ein vísa kemur hér í viðbót sem tengist Vesturlandinu, ef rétt er munað að höfundur sé Björn Eggertsson. Heims ég sjaldan happa nýt hníg loks kaldur nás að börum. Mínum aldri eyða hlýt í veraldar svaðilförum. Einhverju sinni er karlakór Bólstað- arhlíðarhrepps hafði ákveðið að fara í söngferð eina helgi suður á land álpaðist undirritaður til að taka að sér að sjá um að flytja gamanmál, í hléi sem gert yrði á söng kórsins. Of lítið hafði verið unnið í því máli þegar ferðin hófst, og var þá sá einn kostur í stöðunni, að semja sem hraðast í rútunni. Eftir að svo hafði gengið Vísnaþáttur 541 nokkra hríð, sendi Jakob Sigurjónsson á Hóli mér miða með eftirfarandi áletrun. Guðmundur nú gamanmál glaður ritar niður. Hans að gleðja sauðarsál sýnist fastur liður. Mig minnir að það hafi verið á hagyrðingakvöldi á milli Borgfirðinga og Húnvetninga sem allsherjargoðinn orti svo. Hversu fagnað fram í sveit fyrir norðan yrði. Kæmi þar í konuleit karl úr Borgarfirði. Þórhildur frá Hóli svaraði. Ferðin yrði ekki góð - engu er vert að leyna. Þar er orðið fátt um fljóð en fjöldi piparsveina. Ekki man ég höfund næstu vísu. Munu tildrög hennar hafa verið þau að hann hitti fyrrverandi sambýliskonu sína og orti þá svo. Einlífinu unir Dísa illa, og reikar föl um haga. Ekki þarf ég því að lýsa það er ný og gömul saga. Dísa mun hafa verið fær um að svara vel fyrir sig. Rauðeygður og rýr á kroppinn reiðigjarn og svarabráður. Syfjaður og samanskroppinn síst af öllu betri en áður. Þar sem góa hefur nú gengið í garð hér á skerinu rifjast upp vísa sem ég held endilega að sé eftir borgarlögmanninn Magnús Óskarsson. Þessi ró er þekkt og hlý þó ei lóan syngi. Nú er góa gengin í garð með snjóakyngi. Ekki er neitt illt að frétta enn í okkar sveitum af ótíð góunnar og verður hún vonandi frekar hagstæð okkur landsins börnum. Bið lesendur að senda nú þættinum eitthvað af vísum sem þar mætti birta við hentugleika. Gott að kveðja með annarri hringhendu eftir borgarlögmanninn. Nú er víða frosin fold fönnin hlíðar þekur. Þó um síðir þiðnar mold þá við blíðan tekur. ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) Verið þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum 541 Blönduósi Sími 452 7154

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.