Feykir


Feykir - 24.04.2012, Blaðsíða 11

Feykir - 24.04.2012, Blaðsíða 11
Skagafjörður2012 Lífsins gæði & gleði ATVINNA, MANNLÍF OG MENNING : SÝNING Á SAUÐÁRKRÓKI DAGANA 28.–29. APRÍL Komdu í íþróttahúsið á Sauðárkróki helgina 28.–29. apríl og sjáðu hvað Skagafjörður hefur upp á að bjóða í þjónustu, framleiðslu og menningu á glæsilegri sýningu Félagasamtök, fyrirtæki, ferðaþjónustuaðilar, framleiðendur. Skemmtiatriði á sviði – Veitingar og ýmis konar varningur til sölu á staðnum. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, og Bjarni Jónsson, forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, munu setja atvinnulífssýninguna í íþróttahúsinu laugardaginn 28. apríl kl. 10:30. Skagfirski kammerkórinn syngur nokkur lög við setninguna. Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar mun setja Sæluviku Skagfirðinga á sama stað sunnudaginn 29. apríl kl. 14:00. Karlakórinn Heimir syngur nokkur lög við setningu Sæluviku. Á sýningartíma verða fjölbreytt skemmtiatriði á sviði en þau verða kynnt nánar á sýningunni. SÝNINGIN ER OPIN laugardag 28. apríl frá 10–17 og sunnudag 29. apríl frá 10–16 FRÍTT INN – allir hjartanlega velkomnir! Málstofur í tengslum við sýninguna Skagafjörður 2012 – Lífsins gæði & gleði Laugardagur 28. apríl 2012 Kl. 11:00–12:00 Þróun og tækifæri í iðnaði Sigfús Ingi Sigfússon, verkefnastjóri atvinnumála hjá Sveitarfélaginu Skagafirði - Hvar er koltrefjaverksmiðjan? Kristinn Hafliðason, verkefnisstjóri hjá fjárfestingarsviði Íslandsstofu - Möguleikar og tækifæri erlendra fjárfesta á Íslandi Stella Marta Jónsdóttir, viðskiptastjóri á markaðs- og viðskiptaþróunarsviði Landsvirkjunar - Tækifæri í uppbyggingu koltrefjaiðnaðar Arinbjörn Clausen, verkefnastjóri á rannsókna- og þróunarsviði Össurar - Virkni koltrefjafóta Kl. 13:00–14:00 Skagafjörður allt árið – Fjölbreytni í ferðaþjónustu Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum - Hestar og ferðamenn Arngrímur Viðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Álfheima - Gönguparadís fyrir ferðamenn framtíðarinnar Arnheiður Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri hjá Markaðsskrifstofu Norðurlands - Air 66°N klasasamstarf um eflingu á beinu millilandaflugi inn á Norðurland Svanhildur Pálsdóttir, formaður Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði - Gæði og þjónusta Rósa María Vésteinsdóttir, frá klasasamstarfi í fuglatengdri ferðaþjónustu í Skagafirði - Bí, bí og blaka – klasasamstarf í fuglatengdri ferðaþjónustu í Skagafirði Kl. 14:00–15:30 Nýsköpun og þróunarstarf í landbúnaði Steinunn Anna Halldórsdóttir, héraðsráðunautur, Leiðbeiningamiðstöðinni - Landbúnaður í Skagafirði – tölfræðileg samantekt og upplýsingar um landbúnað í Skagafirði Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga - Eitt skref enn Gísli Einarsson, viðburðastjórnandi og fréttamaður - Landbúnaðartengdir viðburðir Þráinn Freyr Vigfússon, meistarakokkur - Gæðahráefni í nútímaeldhúsi Eyþór Einarsson, héraðsráðunautur, Leiðbeiningamiðstöðinni - Nýsköpun í landbúnaði Þórarinn Leifsson, bóndi í Keldudal í Hegranesi - Að vera bóndi í Skagafirði Kl. 15:30–17:00 Rannsóknir og nýsköpun – Verið vísindagarðar Gísli Svan Einarsson, framkvæmdastjóri Versins vísindagarða - Verið vísindagarðar Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnastjóri á líftækni- og lífefnissviði Matís - Verðmætamyndandi og heilsueflandi rannsóknir Kristinn Ólafur Kristinsson, fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun - Veiðimálastofnun – hlutverk, starfsemi og áherslur Arnljótur Bjarki Bergsson, sviðsstjóri á sviði vinnslu, virðisaukningar og eldis hjá Matís - Matvælavinnsla mannlífið bætir Almennar kynningar samhliða málstofum á laugardegi, frá kl. 13:00 Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur - Á hvaða leið ert þú? Markmiðssetning í eigin lífi. Guðjón Hauksson og Pétur Ingi Björnsson, sérfræðingar í tölvuöryggismálum hjá Fjölneti - Að éta börnin sín. Áhrif fjölmiðlabyltingar og netöryggi heimilanna. Hjörtur Ágústsson frá „Evrópu unga fólksins“ - Ungt fólk í Evrópu – Hvaða möguleikar leynast þar fyrir íslensk ungmenni? • Kynning á þeim árangri sem náðst hefur með Evrópu unga fólksins og hluta þeirra verkefna sem styrkt hafa verið á Íslandi. Margrét Björk Arnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og situr í ráðgjafateymi Fléttunnar - Fléttan – verkefni til að efla þjónustu við langveik börn og börn með ADHD/ADD og fjölskyldur þeirra Svava Jónsdóttir, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs VIRK starfsendurhæfingarsjóðs - Forvarnir og fjarvistastjórnun á vinnustað. Árangur og ávinningur! • Virkir starfsmenn – ánægðir starfsmenn – virkir vinnustaðir • Hvað kostar fjarvera frá vinnu? Er hægt að minnka hana? • Samstarf, sveigjanleiki og stuðningur • Ráðgjafar VIRK í starfsendurhæfingu Sjá dagskrá sunnudags í opnu

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.