Feykir


Feykir - 24.04.2012, Blaðsíða 15

Feykir - 24.04.2012, Blaðsíða 15
16/2012 Feykir 15 Uppbygging ljósmyndavefs á vegum Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, Söguseturs íslenska hestsins og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur staðið yfir í nokkuð langan tíma og hann mun verða formlega opnaður í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans miðvikudaginn 2. maí kl. 20:00. Unnar Ingvarsson héraðsskjalavörður Skagfirðinga sagði Feyki frá tilurð Ljósmyndavefsins, sérstöðu hans og innihaldi. „Við höfum lengi velt fyrir okkur birtingu á ljósmyndum á netinu svo almenningur eigi auðvelt með að skoða ljósmyndirnar sem við geymum. Á síðustu árum hefur verið settur aukinn kraftur í verkefnið, sérstaklega eftir að fjármagn fékkst til skönnunar og skráningar frá Menningarráði Norðurlands vestra, bæði til héraðsskjalasafnsins og Söguseturs íslenska hestsins og síðan verulegt fjármagn frá Ljósmyndavefur Skagfirðinga Opinn öllum sem hafa ánægju af ljósmyndum ríkinu til héraðsskjalasafnsins síðastliðin tvö ár. Þá hefur Sveitarfélagið stutt vel við verk- efnið enda hefur það hentað ágætlega sem átaksverkefni fyrir fólk, sem hefur ekki haft atvinnu,“ segir Unnar. Ljósmyndum hefur verið safnað skipulega á vegum Sögufélags Skagfirðinga og síðar Héraðsskjalasafns Skagfirðinga frá árinu 1937. Þannig segir Unnar að ýmislegt hafi safnast, og það sem er ekki síður mikilvægt, þá eru flestar myndirnar sem safnið varðveitir nafngreindar. „Ég held að það sé nánast einstakt hversu mikið hefur verið gert af því að reyna að nafngreina myndir og átta sig á myndefni,“ segir Unnar. Hundruð þúsundir ljósmynda „Við vitum í raun ekki hversu mikið af ljósmyndum eru geymdar hjá þessum þremur aðilum. Þær eru að minnsta kosti 300.000 og verður aðeins hluti þeirra birtur á ljósmyndavefnum. Þar kemur margt til m.a. höfundarréttarmál. Vefurinn verður opnaður með um 15.000 myndum og fljótlega munu bætast við einhverjir tugir þúsunda,“ útskýrir Unnar. Meðal þess sem nú verður birt eru myndasöfn sem varðveitt eru í héraðsskjala- safninu og ná yfir allt landið, ljósmyndir Páls Jónssonar, sem Örlygur Hálfdanarson bókaútgefandi gaf til safnsins og einstakt safn Brunos Schweizer sem afkomendur hans afhentu fyrir milligöngu Örlygs. Þá má nefna brot af myndasafni Kristjáns C. Magnússonar sem er að mestu frá Sauðárkróki og hluti af myndasafni Feykis sem Þórhallur Ásmundsson fyrrum ritstjóri gaf til safnsins. „Síðan er hluti af myndum fyrstu ljósmyndaranna á Sauðárkróki birtur, þannig að við gefum smá innlit inn í myndasafnið. Sveitarfélagið Skagafjörður birtir um 1200 myndir sem teknar hafa verið af ýmsum atburðum síðustu 10 ára og Sögusetrið birtir um 4000 myndir af íslenska hestinum og ýmsum viðburðum honum tengdum,“ segir Unnar. Ljósmyndavefurinn verður öllum opinn og kostar ekkert að nota hann sem slíkan. Hins vegar segir Unnar notkun myndanna ekki heimil nema með leyfi viðkomandi aðila og greiða verður fyrir notkunina á myndunum. „Við vonum að fólk hafa ánægju af því að skoða myndirnar og geti nýtt sér þær með einum eða öðrum hætti. Við erum að stíga fyrstu skrefin. Smátt og smátt verður vefurinn viðameiri og auknar upplýsingar verða birtar um hverja mynd. Við vonum líka að fólk hjálpi okkur að greina myndir eða leiðrétta villur, en auðvitað er talsvert af villum í svona grunni, annað er óhjákvæmilegt,“ segir Unnar. Sem fyrr segir verður vefurinn formlega opnaður miðvikudaginn 2. maí kl. 20:00. „Þá verður dagskrá í Bóknámshúsi Fjölbrauta- skólans þar sem við fáum góða gesti og ætlum að fjalla um gamlar myndir frá ýmsum hliðum. Þar eru allir velkomnir, sem vilja fræðast um gamlar ljósmyndir,“ segir Unnar í lokin. Hægt verður að komast inn á vefinn með því að fara í gegn um heimasíðu héraðsskjalasafnins: www. skagafjordur.is/skjalasafn. /BÞ Jónas Björnsson á Hólabaki í Þingi Hún. með hestinn Rauð undir böggum. Hundurinn Kjammi mænir á húsbónda sinn. Myndin er tekin árið 1936. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur verið í fararbroddi iðnmenntaskóla á landsbyggðinni og boðar enn meiri fjölbreytni í námi á komandi haustönn. Feykir sendi Ingileif Oddsdóttur nokkrar spurningar. Hvernig hefur fyrsti vetur þinn sem skólameistari lagst í þig? Eitthvað sem hefur komið á óvart? -Að mínu mati er starfið mjög skemmtilegt og krefjandi en það er einmitt það sem ég átti von á. Það sem hefur kannski komið skemmtilega á óvart er hversu mikinn velvilja við finnum hjá fyrirtækjum og atvinnulífinu almennt, bæði á Norðurlandi vestra og víðar. Samstarf við atvinnulífið hefur aukist mikið í vetur og við erum að vinna að ýmsum nýjungum með fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Hvernig hefur hið nýja Hátæknimenntasetur reynst og hver er framtíðarsýn þess? Með tilkomu Hátækni- menntasetursins hefur skólinn skapað sér ákveðna sérstöðu. Fyrirtæki eru þegar farin að sækjast eftir formlegu samstarfi við skólann, þar sem mikil þörf er fyrir fólk með þekkingu á tölvustýrðum iðnvélum. Nemendum við Árskóla hefur um margra ára skeið staðið til boða kynning á iðnnámi við skólann. Í vetur var nemendum utan Sauðárkróks í fyrsta skipti boðið upp á slíka kynningu. Yfir fjörtíu grunnskólanemendur frá Varmahlíð, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd sóttu kynninguna og er óhætt að segja að kynningin hafi hitt í mark. Ljóst er að framhald verður á þessu verkefni á næsta skólaári. Starfræna smiðjan (FabLab) hefur líka sannað gildi sitt. Með því að tengja verknámsdeildir skólans og smiðjuna hafa skapast óendanlegir mögu- leikar sem við höfum verið að vinna með. Þar má, meðal annars, nefna svokallaða frumkvöðlasmiðju sem við erum að fara af stað með. Skólinn mun í framtíðinni geta tekið á móti frumkvöðlum alls staðar af landinu. Þeir geta komið hingað og unnið að hugmyndum sínum enda allar aðstæður fyrir hendi. Reyndar höfum við þegar tekið á móti nokkrum frumkvöðlum það sem af er vetri. Þá höfum við verið að vinna að hugmyndum um hönnunarbraut þar sem allar deildir Hátæknimennta- setursins, ásamt stafrænu Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Nýjungar á haustönn smiðjunni, munu nýtast. Nú hefur verið boðið upp á kvikmyndanám í vetur hjá FNV. Verður framhald á því? -Síðastliðið haust hófst kennsla í kvikmyndagerð í samstarfi við Skottu kvikmyndafjelag. Í vetur hafa 26 nemendur stundað nám í kvikmyndagerð. Skólinn sótti um leyfi hjá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu fyrir námsbraut í kvikmynda- gerð síðastliðið haust. Nú er að störfum nefnd á vegum ráðuneytisins sem mun marka stefnu varðandi nám í kvik- myndagerð á Íslandi. Við munum væntanlega fá svör þegar nefndin hefur lokið störfum en höfum fullan hug á því að halda áfram með þetta nám. Aðstæður fyrir námið eru allar fyrir hendi hér í firðinum. Þessa dagana vinnur skólinn, Kvikmyndafjelagið Skotta og fleiri aðilar að stofnun Kvikmyndaakademíu Skagafjarðar. Við sjáum fyrir okkur að miðstöð kvikmynda- gerðar á landsbyggðinni eigi heima hér í Skagafirði. Er eitthvað nýtt á döfinni á haustönn? Skólinn hefur gert samstarfssamning við hár- snyrtistofu á Sauðárkróki og vonumst við til að geta farið af stað með hársnyrtinám í haust. Þá munum við byrja nám í plastiðnum, með námskeiðahaldi næsta haust. Skólinn er einnig að vinna að því að nemendur geti hafið nám á Afreksíþróttabraut næsta haust í tengslum við stofnun körfuboltaakademíu hér í bæ. Við höfum einnig verið að skoða möguleika á listnámi í náinni framtíð, með áherslu á sérstöðu okkar svæðis. Þá var nýlega haldinn fundur á Blönduósi um starfs- menntun og þar komu fram óskir atvinnulífsins um nám tengt matvælavinnslu og ferða- mennsku. Við höfum þegar hafið samvinnu við fyrirtæki í matvælavinnslu til að skoða málið frekar. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Ég vil fyrst og fremst þakka frábæru starfsfólki skólans fyrir gott samstarf í vetur. Metnaðarfullt og gott skólastarf byggir á góðu starfsfólki. Þá vil ég þakka fyrirtækjum og stofnunum sem við höfum unnið með í vetur fyrir gott samstarf og mikinn velvilja. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.