Feykir - 16.05.2012, Blaðsíða 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 5
Gróska í skagfirskri
tónlistarútgáfu
Önnur plata
Joe Dubius
BLS. 5
Spjallað við Jóhönnu
Erlu Pálmadóttur um
Vatnsdælu á refli
Spor í söguna
Lið Tindastóls hefur hafið
keppni í 1. deild Íslands-
mótsins í knattspyrnu
Donni ánægður
með hópinn
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
AFLMIKIL
Packard bell ts 11 fartölva
Ný kynslóð fartölva með Sandy Bridge
og því nýjasta og öflugasta sem
í boði er ásamt 2GB ofur
öflugu leikjaskjákorti.
SJÓÐANDI HEIT
Í LEIKINA
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
19
TBL
16. maí 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
FERSKUR Á NETINU
Hér er laust pláss!
Feykir er sterkur
auglýsingamiðill
á Norðurlandi vestra.
Hafðu samband
Feykir.is
Dregið hefur verið í áskrifendaleik Feykis sem efnt var til
fyrir skömmu en þar voru nöfn þriggja heppinna
áskrifenda dregin úr lukkupotti sem innihélt nöfn allra
áskrifenda blaðsins.
Þar var aðalvinningurinn ferð til Prag í haust fyrir tvo á
fjögurra stjörnu hóteli í boði Heimsferða. Annar og þriðji
vinningur var hið vinsæla strigaprent þar sem fólk getur
látið þrykkja uppáhalds myndunum sínum á striga.
Það er Þorbjörn Ágústsson á Sporði í Húnaþingi vestra
sem hreppir fyrsta vinninginn og er á leið til Prag. Annar
vinningur kemur í hlut Gunnlaugar Hartmannsdóttur í
Kópavogi en þar getur hún sett myndir á einn fermetra á
striga hjá Nýprenti og Sigurjón Valgarðsson í Villinganesi
í Skagafirði fær einnig strigaprent á hálfan fermetra.
Vinningshafar mega búast við gjafabréfum inn um
bréfalúguna hjá sér innan skamms og óskar Feykir þeim
til hamingju. /PF
Dregið í áskrifendaleik Feykis
Þorbjörn datt í lukkupottinn
Norðurland vestra
Mæðulegt mæðradagshret í maí
Enginn var svo heppinn á Norðurlandi vestra að sleppa
alveg við það hret sem skall á síðasta sunnudag er
mæðradagurinn var haldinn hátíðlegur og norðan
sperringur með hríð og frosti lék búfénað bænda grátt
í miðjum sauðburði.
Það má þó teljast lán í óláni að þessi slæma sending
kom ekki seinna í mánuðinum þegar sauðburður væri
yfirstaðinn og farfuglarnir búnir að unga út.
Engin stóráföll hafa verið gerð opinber vegna áhlaups-
ins þó rekja megi dauða einhverra nýborinna lamba og
jafnvel smáfugla til þess.
Þó þurftu björgunarsveitarmenn að bregðast við og
aðstoða vegfarendur sem lentu í vandræðum á ferðum
sínum yfir fjallvegi. Veðurspáin gerir ráð fyrir að öll
válynd veður verði að baki eftir helgi með mildu veðri og
vor í lofti. /PF