Feykir - 05.07.2012, Qupperneq 6
6 Feykir 26/2012
Þau Friðrik og Bjarnhildur
eru bæði af Norðurlandi
vestra, Friðrik frá Sauðárkróki
sonur Helgu Friðriksdóttur og
Kristins Haukssonar nú búsett
í Garðabæ og Bjarnhildur er
hins vegar frá Skagaströnd
dóttir Birnu Bjarnadóttur og
Níelsar Grímssonar nú búsett
í Reykjavík. Þau Friðrik og
Bjarnhildur hafa sjálf komið sér
upp heimili í Reykjavík þar sem
þau starfa, hann sem smiður en
hún sem viðskiptafræðingur
hjá Deloitte. Þau voru fyrst
spurð hvenær og hvernig
ættleiðingarferlið hafi hafist
hjá þeim og hvernig það hafi
gengið fyrir sig.
„Við ákváðum í brúðkaups-
ferðinni okkar í júlí 2006
að við ætluðum að ættleiða
barn. Í kjölfarið fórum við að
skoða málið og leist okkur
best á Kólumbíu.Við fórum
síðan í fyrsta viðtalið okkar
hjá Íslenskri ættleiðingu í
desember 2006, þar var okkur
sagt að biðin eftir börnum
frá Kólumbíu væri tæplega
2 ár“, segir Bjarnhildur en
þau lögðu inn umsókn til
að fá forsamþykki þann 15.
janúar 2007. Forsamþykki
þurfa allir að hafa frá
íslenskum stjórnvöldum til
að mega ættleiða erlendis
frá. Það er mikil félags- og
sálfræðilegur pakki sem erfitt
er að fara í gegnum og einnig
er fjárhagurinn tekinn út og á
endanum stóðu þau uppi með
stóra skýrslu um það hvað
þau væru gott fólk og myndu
verða góðir foreldrar. „Þegar
forsamþykkið var tilbúið
sendum við svo umsókn okkar
út til Kólumbíu 29. júní 2007.
Síðan var bara beðið og beðið
og þurftum við að endurnýja
forsamþykkið nokkrum sinn-
um í biðinni. Biðin var mjög
erfið og gekk mjög nærri okkur
en áður en við byrjuðum í
ættleiðingarferlinu vorum við
búin að reyna að eignast börn
í 4 ár“.
Fyrstu upplýsingar um
stelpurnar fengust þann 18.
nóvember 2011. Þá hringdi
Kristinn hjá ÍÆ í Bjarnhildi
og tilkynnti henni að þau
ættu tvær litlar stelpur úti í
Kólumbíu. „Það var ótrúlega
skrítin tilfinning að það væri
loksins komið að okkur, en
mjög ánægjuleg. Síðan á 35 ára
afmælisdegi Friðriks þann 25.
nóvember fengum við svo allar
upplýsingar um stelpurnar og
sáum í fyrsta sinn mynd af litlu
fallegu prinsessunum okkar.
Við fengum margra blaðsíðna
skýrslu um þær og var alveg
dásamlegt að lesa um þær og
urðum við bara ástfangnari og
ástfangnari af þeim með hverri
blaðsíðunni sem við lásum.
Eftir að við lásum skýrsluna
um þær fengum við svo að sjá
myndirnar af þeim og var þá
engin vafi í okkar huga að þetta
voru stelpurnar okkar“, segir
Bjarnhildur enda var það þeirra
fyrsta verk að fara og tilkynna
ættingjum og vinum að þau
ættu tvær litlar prinsessur í
Kólumbíu. „Það voru auðvitað
allir alveg himinlifandi með
fjölgunina í fjölskyldunni“,
bætir Friðrik við. „Við
ákváðum að nefna stelpurnar
okkar eftir mömmum okkar,
Helga í höfuðið á móður minni
og Birna í höfuðið á móður
Bjarnhildar. Karólína og
Salóme eru kólumbísku nöfnin
þeirra sem við vildum að þær
myndu eiga áfram“.
Lagt upp í drauma-
ferðina sem átti að
taka sex vikur
Næstu dagar segja þau að hafi
farið í það að sitja og horfa á
litlu fallegu stelpurnar þeirra
enda hugurinn alltaf hjá þeim
og auðvitað var byrjað á fullu
að undirbúa herbergin þeirra.
Það þurfti að kaupa rúm,
kommóðu, hillur, allskonar
barnadót og auðvitað mikið
af bleiku. „Það var rosalega
gaman að geta loksins farið að
VIÐTAL Páll Friðriksson
Draumaferðin sem tók óvænta stefnu
Hjónakornin Friðrik Kristinsson og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir fóru til Kólumbíu fyrir síðustu jól
til að hitta og sækja dætur sínar sem þau hugðust ættleiða. Ferðalagið átti að taka um sex vikur
en hefur dregist á langinn og ekki útséð með það hvenær þau komist öll til Íslands. Málið hefur
eðlilega vakið mikla athygli hjá landsmönnum enda um óvenjulegt ferli að ræða sem kemur illa
við litlu fjölskylduna. Þau Friðrik og Bjarnhildur voru tilbúin að segja sögu sína í Feyki enda þakklát
öllum þeim sem hafa stutt þau með ráðum og dáð.
Föst í Kólumbíu
Systurnar Helga Karólína og Birna Salóme bíða eftir því að komast til Íslands ásamt þeim sem elska þær mest, Friðriki Kristinssyni og Bjarhildi Hrönn Níelsdóttur.