Feykir - 19.07.2012, Síða 4
4 Feykir 28/2012
Nú styttist í það að
unglistahátíðin Eldur í
Húnaþingi 2012 verði sett en
hún hefst miðvikudaginn 25.
júlí. Dagskráin er spennandi
fyrir alla en allskyns íþróttir
og tónlistarflutningur verður
áberandi þáttur hátíðarinnar.
Útvarp Unglist verður
starfandi og fer í loftið
mánudaginn 23. júlí á Fm
103,7.
Hægt er að nálgast dag-
skrána á rafrænu formi á
Norðanátt.is og að sjálfsögðu
er Eldurinn kominn á Fésbók-
ina.
Dagskrá Elds í
Húnaþingi 2012
Miðvikudagurinn 25. júlí ein-
kennist af opnunarhátíðinni og
tónlistarveislu í Hvammstanga-
kirkju.
Fimmtudaginn 26. júlí er leikja-
dagur á Mjólkurstöðvartúninu,
listasýning, sirkusnámskeið, borð-
tennis, skotbolti, fjallaskokk,
dómurum í hverfakeppni mútað,
tónleikar í Óríon með ÚlfurÚlfur,
Melló Músíka og svo tónleikar í
Félagsheimilinu Hvammstanga
með Lovely Lion og ÚlfurÚlfur.
Föstudaginn 27. júlí verður förð-
unarnámskeið, heimsmeistaramót
í Kleppara, tónleikar í Kirkju-
hvammi með Miðtúnsbandinu,
Ásgeir Trausti og Ylja í Borgarvirki
og Jet Black Joe og Bedford
Splinters í Félagsheimilinu
Hvammstanga.
Lokadagur hátíðarinnar, laugar-
dagurinn 28. júlí, er sannkall-
aður fjölskyldudagur með
sápurennibraut í Tomma-brekkur,
fjölskyldudagskrá á Bangsatúni,
fyrirtækjakeppni, sápubolta á
Mjólkurstöðvartúninu og fótbolta-
leik í Kirkjuhvammi. Um kvöldið
verða svo dansleikir með Buff í
Félagsheimilinu Hvammstanga.
/PF
Frá Eldi í Húnaþingi sumarið 2010.
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Karl Jónsson / trommari
Myndi frekar tromma
í sturtunni en syngja
Karl Jónsson, eða bara Kalli
Jóns, ólst upp í syðri bænum
á Sauðárkróki, nánar tiltekið
á Hólaveginum og nágrenni.
Hann býr nú heldur utar í
bænum. Hljóðfærið hans Kalla
eru trommur en hann lék
reyndar á trompet í 5 ár. Hann
er fæddur árið 1969.
Helstu tónlistarafrek: Hljóm-
sveitirnar Bad Boys, Metan
og Herramenn. Síðar ýmis
tónlistarverkefni á Ísafirði, m.a.
stórsýningin Those Were the Days
og síðar Hljómsveitin Eidís, sem
sérhæfði sig í 80’s ballprógrammi.
Svo átti ég ógleymanlega stund með
Bakarasveitinni, á útgáfutónleikum
Róberts bakara, það var virkilega
skemmtilegt verkefni, sem ég æfði
lengi fyrir.
Uppáhalds tónlistartímabil? 80’s
…….. nema hvað!
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Coldplay
finnst mér svakalega flottir, Keane
sömuleiðis og öll þessi frábæru
íslensku bönd sem eru að gera
góða hluti.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? Pabbi hlustaði mikið
á klassík og ég ólst talsvert upp við
það sem og gömul og góð íslensk
sönglög. Mínar stundir við viðtækið
voru þegar Lög unga fólksins voru
og hétu.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? Fyrsta LP platan, var
Greatest Hits með Blondie. Fyrsti
CD-inn var Still Got the Blues með
Gary Moore.
Hvaða græjur varstu þá með? Ég
átti forláta Sony combo-græju sem
ég fékk í fermingargjöf frá foreldrum
mínum og við hana var tengdur
Marantz plötuspilari sem ég keypti
mér fyrir fermingarpeningana. Þegar
fyrsti diskurinn var keyptur átti ég
ferðaspilara, Sony, sem tengdur var
við Pioneer græjur.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
Syng aldrei upphátt af tillitssemi við
heimilisfólkið, en inni í mér syng
ég ýmislegt. Myndi frekar tromma í
sturtunni ef það væri hægt.
Wham! eða Duran? 50/50, ég er
svo líbó.
Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent
eða innlent eða bæði)? Mörg
prýðislög komið úr Júróvisjón. Ég
lifi í draumi eftir Eyfa Kristjáns finnst
mér eitt það flottasta úr íslensku
keppninni.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Ég
myndi byrja á Eagles Farewell tour
tónleikunum á meðan fólk væri að
koma sér í gírinn en um miðbikið færi
heimasmíðaður 80’s partýdiskur að
rúlla, á honum eru margir gullmolar
frá þeim tíma. Seinni hlutinn væri
svo helgaður meira rokki; Big
Country og Van Halen og 2-3 lög
af The Unforgettable Fire með
U2. Partýinu myndi svo ljúka með
tónleikaútgáfu Comfortably Numb
með Pink Floyd. Kannski myndu
ekki allir komast í stuð við þetta, en
ég alla vega!
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Ég myndi byrja á því að fara
í bakaríið og kaupa rúnstykki og
setja svo diskinn með bakaranum
í græjurnar í eldhúsinu. Einstaklega
þægilegur diskur, rétt eins og
maðurinn sjálfur, silkimjúkur.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? Pottþétt á Pink Floyd tónleika,
kannski bara í Earls Court, eða í
Feneyjum. Ætli ég myndi ekki bjóða
Bogga Reynis með mér.
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera? Nick Mason,
trommara í Pink Floyd, taka eina
tónleika úr Pulse eða Delicate
Sound of Thunder túrunum. Hef
stundum spilað með þessum
tónleikum á settið í kjallaranum
þegar ég er einn heima. .
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Öss,
þessi er rosalega erfið. Margar
frábærar plötur koma í hugann að
mínu mati. Mínar uppáhalds síðan í
den eru Steeltown með Big Country,
1984 með Van Halen, Making
Movies með Dire Straits. Svo
náttúrlega Dark Side of the Moon
með Pink Floyd, ég gæti haldið
endalaust áfram. Annars legg ég
mig eftir því að eignast dvd-diska
með hljómsveitum á tónleikum.
Þar komast fáir með hælana þar
sem Pink Floyd hefur tærnar, nema
kannski U2 og Farewell túrinn með
Eagles eru flottir tónleikar.
( LJÓÐ )
Rúnar Kristjánsson
Ort um hina einu og
sönnu Blönduós-gæs
Blönduósgæsin hring um háls
hefur lengi borið.
Megi hún áfram fljúga frjáls,
finna bæjarvorið.
Hún á Ósinn mætir með
miklum vængjaslætti.
Þar er tryggðin sýnd og séð,
sönn að gildi og mætti.
Líður hún um loft með þrá,
langflugs hæfni nýtur.
Uns hún bökkum Blöndu á
blessun lífsins hlýtur.
Meðan sumar glæðir greitt
glitið sólarbjarta,
Berst með gleði í brjósti eitt
Blönduósgæsar hjarta.
Það var hörkuleikur á
Sauðárkróksvelli þegar
Drangey tók á móti toppliði
Magna frá Grenivík í 3.
deildinni í síðustu viku.
Leikurinn var hin besta
skemmtun en þegar upp
var staðið skiptu liðin
stigunum á milli sín,
lokatölurnar 0-0.
Dómari leiksins, Marinó
Þorsteinsson, fór mikinn í
leiknum en hann dæmdi
löglegt mark af Drangey, var
of snöggur að flauta útspark
en leikmaður Drangeyjar
kom boltanum fyrir markið
áður en hann fór aftur fyrir
og heimamenn skoruðu – en
markið semsagt dæmt af. Í
blálokin dæmdi hann síðan
vítaspyrnu á Bjarka Árna
vegna hættusparks en eftir
mótmæli leikmanna Drang-
eyjar skipti hann um skoðun
og dæmdi óbeina auka-
spyrnu.
Drangey er með 12 stig
eftir 9 leiki en lið Magna er
enn ósigrað í deildinni,
hefur unnið 5 leiki og gert 4
jafntefli. Í kvöld sækir lið
Drangeyjar KB heim og
verður leikið á Leiknisvelli.
/ÓAB
3. deildin í knattspyrnu
Jafntefli hjá
Drangey og
Magna
Erum með vörur
fyrir skíða- og
skotmanninn
Kíkið á okkur á
Facebook
Blönduósi Sími 848 2760
Eldur í Húnaþingi dagana 25. - 28. júlí
Spennandi dagskrá